Heimilistíminn - 02.04.1978, Síða 9

Heimilistíminn - 02.04.1978, Síða 9
Þetta er aðeins einn af mörgum fuglum, sem allt bendir til, að manninum ætli að takast að útrýma, ef ekki verður gripið til einhverra afgerandi aðgerða og það fljótt. milljónir fugla. t Suður-vestur Frakklandi eru árlega fangaðir i snöru eða skotnir um 10 milljónir fugla. Veiðitiminn á ítaliu er frá þvl I lok ágúst og fram i marz. A þann hátt ná veiði- mennirnir fuglunum á báðum ferðum þeirra yfir landið, en fuglarnir koma i stórum hópum, hvort sem er á leiðinni norðureða suður um. Algjörlega andstætt vilja veiðimannanna verða þeir þó að gefa fuglunum frið rétt á meðan þeir eru að verpa og koma upp ungunum, i von um, að þeim takist að auka stofninn á ný. Þetta fugladráp er nú orðið svo gifur- legt, að fjölmargar stofnanir og félaga- samtök auk einstaklinga hafa snúið sér til stjórnvalda i viðkomandi löndum, til þess að reyna að fá þvi framgengt, að veiðin verði bönnuð og stöðvuð. Ekki hafa þessar tilraunir borið nokkurn árangur fram til þessa. Nú hefur verið ákveöiö, aö þessir aöilar reyni að leggjast á eitt og bindast samtök- um til þess ab leysa vandann. Alþjóðleg samtök fugiaverndunarfélaga sem einnig eru starfandi i áburnefndum löndum, hafa hrundið af stað opinberri fjársöfnun i Evrópulöndunum, til þess að geta fjár- magnaö rannsóknir á fugladrápinu og einnig upplýsingaherferð, sem á að verða til þess að vinna gegn þvi. Einnig er I ráöi, aö leggja fé I land- svæði, þar sem fuglarnir eiga að geta fundið sér friðland- Þangaö ættu þeir aö geta leitað á leið sinni yfir þessi hættuiegu lönd, matazt og hvilzt. Að lokum er svo I ráði, að mál þetta verði lagt fyrir ráö- herranefnd Evrópuráðsins, og kannað hvort ekki sé hægt aö setja lög, sem ætlað sé að takmarka fuglaveiðarnar I framtiö- inni. þfb H^IÐ, Þú mátt ekki misskilja þetta, en mér finnst brennt salat gott. 9

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.