Heimilistíminn - 02.04.1978, Page 14

Heimilistíminn - 02.04.1978, Page 14
ungis öklinn sem hreyfist litillega skrifar læknirinn. — Sá sem mikið gengur á tréskdm tekur oft eftir óþægilegum þrýstingi ofan á ristina frá yfirleðri skósins. Þeir sem eru með háa rist finna meira fyrir þessu en aðrir. Þessi þrýstingur getur orsakað hnútamyndun á ristinni umhverfis þann stað sem leðríð þrýstir á. Kallast þessir hnútar tréskóhnútar. Þessir hnútar eru aumir viðkomu og getur þá jafnvel orðið erfitt fyrir þann sem þá hefur að ganga i venjulegum skóm. Svo langt getur þessi hnúta- myndun gengið að fjarlægja verði hnútana með aðgerð og stundum myndast þeir meira að segja á beinum fótarins. — Flestir tréskór eru framleiddir á nokkuð góðum leistum og er gott rúm fyrir tærnar bæði til hliðanna og að of- an. Finnst fólki þeir þvi þægilegir á fæti. Þetta á þó ekki við alla skófram- leiðsluna. Sumir skórnir eru fram- leiddir með mjög svo mjóum tám sem klemma að tánum sizt minna en venjulegir þröngir skór. — I gamla daga þegar börn ætluðu sér að hlaupa rösklega tóku þau tré- skóna af sér. 1 dag sezt fólk upp á skellinöðrurnar sinar segir læknirinn ennfremur. Það var vegna þess að fólk getur alls ekki hlaupið með tréskó á fótunum. Reyni maður að hlaupa,end- ar það annað hvort með þvl að maður missir af sér skóna eða misstígur sig vegna þess hve lausir þeir eru á fótun- um. Margir tegundir tréskóa eru með mjög mjóa hæla. Það gerir skóna enn hættulegri og óöruggari og eykur þungann sem hvilir á öklaliðnum og á táberginu sem venjulega er komið með hart sigg vegna þess hve harður sólinn er viðkomu. — Tréskór koma i veg fyrir að fólk hlaupi og þá um leið að það fái eðlilega hreyfingu og þjálfun vöðva og liða, og getur haft margvisleg önnur slæm áhrif segir K.E. Jessen að lokum. Þfb <—.......— - ■ m Tréskór eru einungis heilsusamlegir fyrir þá sem eru með flata il og fyrir fólk sem mikið þarf að standa við vinnu sin. Tréskóatizkan hefur ‘gripið mjög um sig undan- farin ár, ekki sizt meðal ungs fólks. En nú er svo komið að sérfræðingar halda þvi fram að tréskór séu einungis hentugur skófatnaður fyrir þá sem standa mikið við vinnu sina, fólk, sem vinnur mikið úti i kulda — til dæmis í sveitum — og þá sem eru með flatan fót. Þeir fá mjög góðan stuðning við ilina. Hins veg- ar er nú talið alrangt að nota tréskó algjörlega óhugsað eins og gert er nú á timum að sögn danska sér- fræðingsins og læknisins KE. Jessen. 1 nýlegu blaði sem gefið er út i Dan- mörku og nefnist Hjerteforeningens motionsblað skrifar Jessen, að sam- spil sé milli liða og vöðva i fótunum, en viðmikla tréskónotkun fari þetta sam- spil úrskorðum. Sé það vegna þess að sólinn er harður undir tréskónum og beygist alls ekkert. — Fólk spennir vöðva og liði en hreyfir þá næstum ekkert. Það er ein- TBÉSKÓB EBU EKKI ALLTAF HEILSU SAMLEGIB 14

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.