Heimilistíminn - 02.04.1978, Side 38

Heimilistíminn - 02.04.1978, Side 38
11 I I | I náttúrunnar Það mætti eiginlega telja tunglfiskinn til svifs þar sem hann færist einna mest úr stað með straumum hafsins rétt eins og þau. Tunglfiskurinn er þó heldur meiri um sig en svif- in, þvi hann vegur allt að einni smálest. Latnesku heitin Mola og Masturus benda á það hversu mjög hann likist kvarnarsteini. Hann fer um hitabeltishöfin og sýgur i sig blekfiska og alls konar smá- fiska sem hann lifir á en hann fer svo sannarlega ekki hratt yfir. Uggunum beitir tunglfiskur- inn á sama hátt og ræðarinn beitir árunum og með þessu „róðrarlagi” færist hann hægt og rólega úr stað. En tungl- fiskurinn hugsar ekki hraðar enhann hreyfir sig, og hjartað i honum er heldur ekki stórt. Hjarta tunglfisks, sem sjálfur vegur 400 kiló er á stærð við baun, og það vegur ekki nema fjögur grömm. Þegar veðrið er gott og stillt, kemur tunglfiskurinn upp á yfirborðið til þess að sóla sig. Þá gripa indverskir fiskimenn tækifærið til þess að veiða hann. Þeir nota til þess annað hvort skutla eða spjót. * ® rs J 400 Kg Tunglfiskurinn verpir hvorki meira né minna en 300 milljónum eggja. Ur hverju eggi kemur örsmár fiskur sem er 1 mm að lengd. Þess vegna má segja að afkvæmið sé i svipuðu hlutfalli við móðurina og bærum við saman 70 kflóa árabát og 60 stórskip á borð við Queen Mary. Tunglfiskurinn lifir eins og áður segir i heitum höfum en á haustin rekur hann með golfstraumnum til norðurs. Þegar rok er á Norðursjó rekur oft tunglfiska þar á fjör- ur og sá stærsti sem fundizt hefur þar um slóðir, vó 450 kiló og fannst eitt sinn i Sviþjóð. 1 \ 38

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.