Heimilistíminn - 19.07.1979, Side 33

Heimilistíminn - 19.07.1979, Side 33
tveir rösklegir náungar voru tilbúnir að hlaupa á eftir þeim... Drengjunum var strax ljóst, að nú var ekki um neitt annað að ræða fyrir þá, en að flýja og hlupu tafarlaust út af veginum, hvor til sinnar handar. Halli hrasaði illa i brekkunni neðan við veg- inn, komst þó fljótt á fætur aftur, en varð að fórna töskunni, sem hann hafði alltaf haldið á, og var nú með dótinu, sem Villi hafði lagt undir sig i verzluninni. Þrátt fyrir þetta óhapp, komst Halli inn i greniskóginn, töluvert á und- an manni þeim, sem elti hann. Og nú datt hon- um allt i einu i hug bragð eitt, eða brella, sem einn af gömlu strákunum, eins og þeir yngri kölluðu þá, hafði eitt sinn kennt honum, ef þeim dytti i hug að strjúka. Bragðið var i þvi fólgið, að rugla i riminu þá, sem leituðu, með þvi að kasta steini i gagnstæða átt. Það átti að geta tekizt i vondu skyggni, eða i þéttum skógi, ein- mitt eins og nú var ástatt hér... Hann fann þvi stein og kastaði honum af alefli i gagnstæða átt við þá, sem hann ætlaði, og féll steinninn niður i skóginn með nokkru braki og brestum. Og viti menn. — Halli sá, að þetta bar strax tilætlaðan árangur, þvi að maðurinn hljóp i þá átt þar sem steinninn féll niður. En Halli reyndi að gæta þess af fremsta megni, að láta sem allra minnst heyra til sin, — stiga niður af mikilli varfærni. Annars mundu þeir sennilega finna hann og ná honum. Til öryggis fór hann þvi um stund úr skónum og gekk á sokkunum... Svo kastaði Halli öðrum steini, og það bar alveg sama árangur. Maðurinn hljóp aftur á hljóðið. Nú var maðurinn kominn svo langt i gagn- stæða átt að Halli hætti á, að ganga i sveig til baka, faldi sig þar i þéttu grenitré og sá þaðan niður til vegarins. Þar fór hann aftur i skóna og varð nú hugsað til Villa. Það voru litlar likur til, að hann kæmist undan mönnunum. Hann var alltaf eitthvað svo framtakslaus og ósjálf- bjarga i skóginum. Eina vonin var sú, að hann hefði getað hlaupið ofurlitið á undan, og svo tekizt að fela sig. En Halli óttaðist, að hann mundi brátt sjá stóran og sterkan mann koma með hann út úr skóginum... Þá varð Halla lika hugsað til töskunnar, sem var tilfinnanlegt fyr- irþá að missa, eins og á stóð. En það var alltof mikil áhætta fyrir hann að reyna að ná henni. Enn heyrðist ekkert frá skóginum hinum megin. Ef til vill hafði þá Villa tekizt að fela sig? Nú brakaði hátt i sprekum á ný, og Halla létti mjög, þegar hann gerði sér grein fyrir, að það var hans megin. Stór maður steig þungt til jarðar, skammt frá honum, og nálgaðist lim- gerði, sem var þar við veginn. Maðurinn nam staðar við limgerðið, beið þar lengi og hlustaði. Loksins klöngraðisthann þó yfir það og niður á veginn, i áttina til bilsins. Halli heyrði, að það small i töskulásnum. Enn þá var allt hljótt hin- um megin. Halli varð bjartsýnni. Hann heyrði, að billinn var ræstur, hélt hægt af stað eftir veginum og var brátt horfinn en nú var aðeins einn maður i honum. Hinn maðurinn hlaut þvi að vera að leita að Villa, það var ekkert vafa- mál. Og Halli, sem þekkti vel, að þolinmæði Villa var mjög takmörkuð, var hræddur um, að nú þryti hún of fljótt, og hann yrði kannski tek- inn. Halli laumaðist nú frá grenitrénu og skreið undir limgerði, sem var við veginn. Og þegar hann sá, að enginn var á veginum, hljóp hann leifturhratt yfir hann og inn i skóginn hinum megin, viðbúinn þvi, að einhver náungi kynni að leynast þarna og festa hendur i hári hans. Það varð þó ekki, sem betur fór, og þvi lengra, sem hann kom inn i skóginn, varð hann örugg- ari. Ef til vill var heimskulegt af honum að fara frá veginum, þvi að nú gat hann ekki fylgzt með þvi, hvort Villi næðist, — og hér gat hann reikað um i skóginum og leitað allt til jóla... Halli settist niður um stund, i þungum þönkum, og raunar ráðvilltur. Það var vissu- lega enginn leikur, ekkert gamanmál að strjúka.... Hann ákvað að halda göngunni áfram, inn i dimman skóginn, þótt hann vissi tæpast, hvað hann var að gera. Að sjálfsögðu var hættulegt fyrir hann að vera hér á ferli, þvi að þessi náungi gat legið hér nærri i leyni, og ráðist á hann fyrr en varði. Hann nam staðar við stórt grenitré og hlust- aði. Litil mús þaut fram hjá honum og inn i þéttan runna. Annað hljóð heyrði hann ekki. Hvað átti hann að gera?.. Hvert átti hann að fara? Hann mundi væntanlega geta haft sig fram úr þessum vanda einn. En hvað mundi verða um Villa? Og hvar var hann nú?..Hann hlustaði á ný. Allt var kyrrt og hljótt, það bærð- ist ekki hár á höfði. Það var sem grenitrén stæðu lika á öndinni og hlustuðu. Þá heyrðist allt i einu hár brestur fáa metra frá honum. Halli hrökk við. Hvor þeirra skyldi þetta vera?.. Svo varð allt hljótt á ný. Halli kraup niður og horfði athugull inn á milli trjá- stofnanna. Var ekki þarna áreiðanlega einhver dökk þúst, hjá einu grenitrénu? Jú, þarna hreyfði hún sig, og svo heyrðist annar brestur. Var þetta Villi eða maðurinn frá bilnum?... Nú 33

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.