Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 20.09.1979, Qupperneq 4

Heimilistíminn - 20.09.1979, Qupperneq 4
ANNAFRANK hefði orðið fimmtug í sumar Föstudaginn 12. júni vaknaði ég fyrir allar aldir. Það var vor. Þetta var afmælið mitt. En auðvitað fékk ég ekki að klæða mig svona snemma. Ég varð að liggja á tilhlökkuninni þangað til klukkan var nærri sjö. Þá þoldi ég ekki lengur við, klæddi mig og fór fram i borð- stofu. Og þar fagnaði blessuð kisa mér heldur en ekki. Klukkan rúmlega sjö fór ég inn til mömmu og pabba og siðan fram í stofu til þess að leysa utan af afmælis- gjöfunum. Og það fyrsta, sem heilsaði mér varst þú, (þ.e. dagbókin), og það var þaðlbezta af því öllu saman. A borðinu var stóreflis rósavondur, bóndarósir og potta- blóm. Seinna fékk ég enn fleiri blóm. Þetta er þaö fyrsta, sem Anna Frank skráöi i dagbókina sina, sunnudaginn 14. jáni 1942, eöa fyrir rúmum 37 árum. Henni hefur llklega ekki dottiö í hug, aö þessi orö hennar og þaö, annaö, sem hún átti eftir aö færa inn f dagbókina sina næstu tvö árin, eöa fram til 1. ágúst 1944, ætti eftir aö koma fyrir augu aiheimsins. Bókin sem litla stúlkan færöil hugrenningar slnar og frásagnir af þvi sem geröist á meöan hún og fjölskylda hennar liföi I leyni I bakhúsi I Amsterdam, á fiótta undan Þjóöverjum, átti eftir aö vekja heimsathygli. Hún hefur komiö út á fjöimörgum tungumálum, og upp úr henni hefur veriö samin kvikmynd og leikrit. 12. júnl I ár heföi Anna Frank oröiö fimmtug, ef hún heföi fengiö aö lifa. Hún dó I þýzkum fangabúöum I marz 1945, aöeins tveimur mánuöum áöur en Hol- land var frelsaö úr greipum nazistanna. Stytta af önnu Frank stendur I her- berginu hennar. Ef Anna heföi fengið aö lifa, og heföi hún enn búiö i Amsterdam, getur vel veriö, aöhúnheföi tekiö sér far meö vagn- inum niöur til Dam, gengiö síöan nokkrar húslengdir til Preinsengraacht 263-265 þar sem hún og fjölskylda hennar bjó I felum frá þvi' 9. júll 1942 og þangaö til nazistar fundu fólkiö 4. ágúst, 1944. Nú er I húsinu þar sem Anna bjó meö fjölskyldu sinni safn, til minningar um hana og Gyöingaofsóknirnar, og kyn- þáttahaturogofeóknirfyrr ogsiöar. Anna Frankhuis er húsiö nefnt á hollenzku, og þaö mun vera auövelt aö finna þaö, komi maöur til Amsterdam. Sértu staddur á Dam, i miöborginni sjálfri, er ekki annaö aö gera en taka stefnu á Konungshöllina, halda til hægri, fram hjá pósthúsinu, sem ku fremur likj- ast konungshöll en pósthúsi og svo eftir Ráöhúsgötu Amsterdamborgar — Raad- huis straat — yfir skurðina Singel, Kezers gracht og þangaö til maöur sér West- er-kirkjuna. Bak viö hana finnur maður svo Prinsen gracht, beygir tii vinstri og heldur eftir hægri bakka skuröarins, þar tilkomið er aö 263-265og Anne Frankhuis. A mesta feröamannatimanum er víst tæpasthægt aö ganga fram hjá húsinu án þess aö taka eftir þvi, þar sem mikið er þar alltaf af gestum, en þegar minna er um aö vera aö vetrarlagi gæti maöur misstaf þvi,ef maöurtæki ekki eftir skilt- inu, sem segir, aö þarna sé safn til minn- ingar um önnu Frank. ----------—« Þetta er Hkan af efstu hæöinni, þar sem Van Daan-fjölskyldan bjó. 4

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.