Heimilistíminn - 20.09.1979, Blaðsíða 6

Heimilistíminn - 20.09.1979, Blaðsíða 6
sýnir hvernig ibúöin var búin húsgögnum 1942-1944. Likanið sýnir nákvæmlega hvernig allt leit út, þegar vinir Gyðinga- fjölskyldnanna komu þarna inn eftir að fólkið hafði verið flutt til Þýskalands. t herberginu hennar önnu Frank hanga enn leikaramyndir á veggjunum, og einnig dýramyndir. Þykk plastfata skýlir myndunum og veggfóðrinu, en gestir hafa þegar látiö greipar sópa og tekið með sér minjagripi um heimsóknina í húsið. — Litla stofan okkar var heldur kulda- leg i fyrstu, allir veggir auðir. En pabbi var svo fyrirhyggjusamur að koma með allt leikkonumyndasafnið mitt og póst- kortin. Og nú er ég búin að fá mér lim og breyta veggjunum i eitt allsherjar myndasafn. Fyrir vikiö er allur svipur stofunnar orðinn glaðlegri og þegar Daans-fólkið kemur, ætlum við aö ná i fjalir uppi á þakloftinu og smiöa skápa og hillur á veggina. Og þá batnar enn. 13. júli flutti Van Daan-fjölskyldan til Prinsengracht. — Klukkan hálf tiu um morguninn, á meðan við vorum að boröa, kom Pétur. Hann er sonur Daans, tæplega sextán vetra, fremur daufgerður, feiminn og kjánalegur. Það verður ekki mikil skemmtun að honum. A veggjunum i herbergi önnu hanga enn leikaramyndirnar hennar. tekið er við aðgangseyrinum kemur þú inn i það sem áður voru þrjú lagerher- bergi. Búið er aö taka i burtu veggina, sem skildu að herbergin og nú er þarna sýning, sem minnir á Gyðingaofsóknir Nazista-Þýskalands fyrir og meðan á slðari heimsstyrjöldinni stóð. Úrþessumsal er svo gengið eftir gangi, sem liggur að þeim stað, þar sem fram- og bakhúsiö tengjast. Bókahilludyrnar standa opnar ogfólksmeygir sér fram hjá og inn I fortiðina! Þann tima, sem Gyðingafjölskyldurnar tvær leyndusti Prinsengracht var kjaliari og fyrsta hæð notuð ein$ og venja hafði verið fyrir skrifstofur og geymslur. Ekki vissu allir, sem þarna unnu um tilvist fólksins, sem faldi sig þarna á efri hæð- unum. Þetta hljómar heldur ótrúlega, en er þó ekki svo ótrúlegt, þegar á það er litiö, hversu vandlega felustaðurinn var falinn. — Engum getur dottið i hug, hversu mörg herbergi leynast bak við þessar grámáluðu dyr, skrifaði Anne Frank I dagbókina. Handan hillanna koma gestir i dag inn I herbergiö, þar sem Edith og Otto Frank sváfú, en það var einnig dagstofan. Þaðan ergengiö inn til Anne og Margot Frank og 6 i baðherbergi ogþvottaherbergi, en I einu horninu er klósettið. 1 miðju svefnher- bergi fullorðna fólksins stendur likan sem Dagbók Önnu Frank kom út í íslenzkri þjjðingu séra Sveins Víkings árið 1957, en einnig hefur verið samið leikrit um hana og gerð kvikmynd sem meðal annas hefur verið sýnd i íslenzka sjónvarpinu

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.