Heimilistíminn - 13.07.1980, Síða 3
Jólatréð og
agúrkur œktin
Gróðurhúsum fer stöðugt
fjölgandi hér á landi, og þá á
ég við gróðurhús i einka-
eign, heima við ibúðarhús.
Fjölmargir eru því farnir að
rækta grænmeti, t.d. tómata
og agúrkur, og uppskeran
getur orðið býsna góð hjá
mörgum. Eitthvað þarf að
gera til þess að halda uppi
agúrkuplöntunum, og flestir
binda þær liklega upp, en
nýlega rakst ég á tvær
snjallar hugmyndir fyrir
agúrkuræktendur i banda-
risku blaði. Birti ég af
þeim myndir, sem ættu að
auðvelda fólki, að notfæra
sér leiðbeiningarnar.
Þvi miður getið þið vist ekki notfært
ykkur hugmyndina um agúrkuvaxið
jólatréð fyrr en á næsta sumri og þá
þvi aðeins aö þið leggið i vana ykkar
að kaupa lifandi jólatré. Þið eigið
nefnilega að halda þvi til haga, þegar
jólin eru um garð gengin. Leyfið þvi
bara að liggja einhvers staðar utan
dyra i roki og rigningum, svo allar
barrnálarnar detti af greinum þess.
Þegar svo er kominn timi til þess að
hefja agúrkuræktina i gróðurhúsinu
skulið þið ná i jólatréð. Klippið stuttar
greinar af, og styttið lengstu greinarn-
ar þannig, að þær verði ekki nema 50
cm langar, i mesta lagi. Stingið trénu
niður i moldina i gróðurhúsinu, og nið-
ur með þvi skulið þið svo stinga tveim-
ur góðum spýtum, sem hægt er að
binda það við, svo það falli ekki um
koll. Þá er komið að agúrkuplöntun-
um. Þegar þær taka að hækka og
lengjast eiga þær að vefjast utan um
og styðja sig við greinar trésins, og i
staðinn fyrir jólatré hafið þið eignast
agúrkutré.
Hin hugmyndin fyrir agúrku-
ræktandann er, að fá sér bildekk. Sá
agúrkufræjunum innan i það, i góða og
frjásama mold. Setjið svo nokkuð
gróft virnet, gjarnan girðingarnet
utan um dekkið, eins og sést að gert
hefur verið á myndinni, og látið þaö
ekki ná alveg saman. Þannig verður
auðveldara að teygja sig inn og lag-
færa eða hagræða agúrkuplöntunum.
Festið netið niður með tveimur spýt-
um eða kústsköftum, eins og sést á
myndinni.
I bandariska blaðinu er gert ráð
fyrir, að agúrkurnar séu ræktaðar
utan dyra, enda er þar hitinn nægur.
Þar er talað um, að svart dekkiö haldi
vel hita að fræjum og plöntum og
það genr þaö án efa ekki siður hér,
þótt i gróðurhúsi sé. Einnig er sagt, að
rigningarvatn renni ekki eins auðveld-
lega frá plöntunum vegna dekksins, en
i gróðurhúsinu ætti að vera hægt að
vökva nægilega oft til þess að sá kostur
komi ekki til greina. Vonandi getiö þið
hagnýtt ykkur þessar hugmyndir, þótt
ekki verði fyrr en næsta vor, og jóla-
tréð er tilbúið til notkunar.
fb
Blómin okkar
3