NT - 24.04.1984, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 24. apríl 1984 13
Akureyri:
Fimm fluttir á sjúkrahús
og bíllinn var gerónýtur
■ Fimm ungmenni voru
flutt á sjúkrahúsið á Akur-
eyri aðfaranótt laugardags-
ins eftir að bíll sem þau
voru í lenti á ljósastaur.
Fjögur þeirra fengu að fara
heim eftir skoðun en fram-
sætisfarþegi varð eftir á
sjúkrahúsinu en hann mun
þó ekki hafa meiðst mikið.
Slysið varð við svokallað-
ar Miðhúsaklappir fyrir
ofan Akureyri. Bíllinn mun
hafa verið á töluverðri ferð
þegar hann lenti á staurnum
og er gerónýtur á eftir.
Grunur leikur á að öku-
maðurinn hafi verið undir
áhrifum áfengis.
Undirskrift
Steingríms
vekur athygli
■ Friðarviku ’84 lauk síðdegis í gær með
þvi að Helga Bachmann afhenti Steingrími
Hermannssyni, forsætisráðherra, gestabók
Friðarvikunnar.
Steingrímur kvaðst taka við gestabókinni
með ánægju og sagðist vona að undirskriftir
þessar ásamt þeirri friðarviðleitni sem nú
ætti sér stað um allan heim, hefðu áhrif í þá
átt að horfið yrði frá helstefnu og að hafin
yrði afvopnun undir eftirliti sem við gætum
treyst.
Forsætisráðherra var einn þeirra sem
léðu nafn sitt í gestabók Friðarvikunnar og
var vakin athygli á því í erlendum frétta-
skeytum í gærkveldi, m.a. Reuter, en tíðind-
um þótti sæta að forsætisráðherra Islands
sem er aðili að NATO skuli undirrita
frystingar- og afvopnunarboðskapinn.
NT-mynd: Róbert
■ Sér úr annarri stólalyftunni yfir skíða-
svæðið NT-mynd Árni Sæberg
Fjölmenni í
Bláfjöllum
um páskana
■ Mikill mannfjöldi hefur verið á skíðum
í Bláfjöllum alla páskana. Á föstudaginn
langa voru á fjórða þúsund manns á
svæðinu, eða það næst mesta sem verið
hefur í vetur. Veður var með eindæmum
gott, sól og hiti. Færð var góð á skíðasvæð-
inu, en eins og oftar þegar mikið hefur verið
af fólki á svæðinu voru töluverð vandræði
með bílafjöldann. Svæðið hafði verið rutt
og bílastæði hreinsuð fyrir páska, en á
skírdag gerði óveður, og ekki tókst að ryðja
nægilega vel með þeirri einu ýtu sem í
Bláfjöllum er.
Flugleiðir ogS AS
opna nýjar leiðir
fyrir landkönnuói!
Framhaldsflug frá Kaupmannahöfn tækniundrinu, standa á Rauða to'rginu, kynnast könnun, sjá Flugleiðir um að flytja ykkur til
Ef þú ert landkönnuður sem stefnir í frumbyggjum Amazon-landsins eða telia bjór- Kaupmannahafnar, á almennu ferðamanna-
fjarlæga heimshluta er bæði fljótlegt og nota- krárnar í Munchen? - Regar félög eins og gjaldi, eða á „SAGA CLASS", ef þú vilt iifa lúxuslífi
legt að fljúga með Flugleiðum til Kaupmanna- Flugleiðir og SAS leggjast á eitt, áttu visa þægi- á leiðinni. Síðan getur þú verslað í fríhöfninni á
hafnar. Far býður SAS þér framhaldsflug til lega og ógleymanlega ferð. Kastrup, áður en þú heldur áfram út í heim, í
áfangastaða um víða veröld. Ekkert flugfélag Enn á ný er borgin við sundið orðin dyr hinu þekkta EUROCLASS-farrými SAS-flugfélags-
flýgur til eins margra áfangastaða frá Kaup- Islendinga að umheiminum. ins eða „First Business Class" farrými, t.d. til
mannahöfn og einmitt SAS. Það er næstum Singapore eða Tokyo.
sama hvað þig langar að kanna, Flugleiðir og „EUROCLASS'' og „SAGA CLASS":
SAS gera þér það fært. Langar þig að (júka upp Vellíöan á ferðalögum Fluglelölr og SAS velta þér óteljandi ferða-
leyndardómum Austurlanda, átta þig á japanska Þegar þú og þinir halda af stað I land- tæklfærl!
FLUGLEIÐIR
Gott fólkhjá traustu félagi