NT - 24.04.1984, Blaðsíða 2

NT - 24.04.1984, Blaðsíða 2
-ia: Fréttir ' Jóhanna llff| Tryggvadóttir IW forstjóri * *1 Heilsuræktar- y innar í Glæsi- ■ 1 bæ: I latarlaus mánuð „Drekk soðið vatn með örlítilli mjólk út í og ekkert annað“ Þriðjudagur 24. apríl 1984 2 ■ Gkki var hægt að sjá að tæplega eins mánaðar næringarskortur væri farinn að hafa áhrif á Jóhönnu Tryggvadóttur í gær þegar Ijósmyndari NT smellti þessari mynd af henni. Við ákváðum að verða kaþólskar Tvær systur, 9 og 10 ára skírðar við kaþólska messu á páskanótt ■ Jóhanna Tryggvadóttir for- stjóri Heilsuræktarinnar í Glæsibæ er enn uppistandandi og með ólíkindum hress þrátt fyrir nær mánaðarlangt svelti. Hún hefur verið í hungurverk- falli síðan 29. mars. Ég reyni að hugsa sem minnst um það ■ Árni Johnsen Gatið er „albert“ ■ Árni karlinnJohnsengetur fleira en svarað fyrir sig að sjómannasið. I góðra vina hópi á þingi sunnlenskra sveitarfé- laga fyrir skemmstu útskýrði hann fjárlagagatið hans Al- berts vafalítið að „sjómanna- sið“. Göt eru misgóð sagði Árni. ■ Þau sem eru loðin og teygjan- leg eru afskaplega indæl. En þessu er öðruvísi farið með gat ríkisstjórnarinnar, það er ekk- ert loðið heldur bara „albert" Viðskiptastríð í fámenninu!! ■ Það þarf ekki neina risa eins og Miklagarð og Hagkaup til að heyja hið harðasta við- skiptastríð. Eitt slíkt stríð er nú sagt hafið á Laugabakka í Miðfirði, rúmlega 100 manna byggðakjarna í V-Hún., milli fyrirtækja sem gamansamir Húnvetningar hafa gefið nöfn- in Eiríkskjör og Tröllagarður (í stíl við Miklagarð). Á Laugabakka hefur maður hvernig mér líður, sagði hún í gær, þegar NT spurði hana um líðanina Næristu á einhverju? - Ég drekk soðið vatn með örlítilli mjólk útí, ekkert annað. Ég ætla að halda þessu áfram að nafni Karl rekið Essó bensín- stöð og svolitla sjoppu um árabil og minnast Dropar þess að heyra í viðtali við hann í útvarpinu í fyrrasumar að við- skiptin væru heldur lítil, enda staðurinn fámennur. Að Karli gengnum skrifaði þó hrepps- nefndin Kaupfélaginu á Hvammstanga og vildi fá það til að koma upp útibúi á staðnum. Kaupfélagsmenn voru seinir til svara þar sem þeir töldu einsýnt að slíkt úti- bú yrði aldrei rekið nema með stórtapi. Einn stjórnarmanna kaup- félagsins sá sér hins vegar leik á borði, hélt til Reykjavíkur og samdi við Essókónganá urn rekstur sjoppunnar. Auk venjulegs sjoppuvarnings selur hann nú í Eiríkskjöri nokkrar brýnustu nauðsynjar svo sem mjólk, brauð, tannkrem og dömubindi, sem hann fær frá Kaupfélaginu á Hvamrns- tanga. Húnverskir hreppsnefndar- menn bæru ekki nafn með rentu létu þeir sigra sig svo auð- veldlega, enda vilja slíkir venjulega láta nokkuð eftir sig liggja. Höfðu þeir hið snarasta samband við Olískóngana í Reykjavík, sem brugðu við skjótt og létu hvorki stórhríðir né frosthörkur á Þorra hamla sér frá að hefja gröft fyrir nýjum Olístanki um 50 metra frá Essótankinum á Lauga- bakka. Þarna í Tröllagarði eru nú auk tanksins risnir tveir myndarlegir Olísskúrar þar sem m.a. eru seldir vinnugall- ar, vasahnífar, derhúfur og fleira góss, allt sagt á góðu verði og að sjálfsögðu merkt Olís. Er nú svo komið að Vestur-Húnvetningar sjást vart búnir öðru en Olísgöllum nema kannski einstaka sann- kristnir Framsóknarbændur. Tröllagarðskonur eru hins veg- ar heldur sárar út í þjónustuna ennþá, þar sem þeirra mánað- arlega nauðsynjavara mun ekki enn á vörulista Olís. Að leita á náðir Eiríkskjörs gera þær örugglega ekki fyrr en í fulla hnefana svo annað hvort er talið að þær muni nú í þangað til égsigra kallana. Ekki var á henni að heyra að neitt þokaðist í samkomulagsátt milli hennar og borgaryfirvalda. Hún sagði það hörmulegt hvað nú- verandi ráðamenn borgarinnar skorti mikið skilning á málefn- um heilsuræktarinnar. hópum ráðast í barneignir hið snarasta eða reyna að breyta gangi náttúrunnar á einhvern hátt. Andlitslyfting á Þjóðviljanum ■ Það eru fleiri en Tíminn sem taka stakkaskiptum þessa dagana, því Dropar heyra að einmitt þessa dagana sé Þjóð- viljinn á teikniborðinu hjá ■ Gísli B. Björnsson Auglýsingastofu Gísla B. Björnssonar. Stendur til að gera verulega uppstokkun á efni og útliti blaðsins, þó áfram eigi það að þjóna Alþýðu- bandalaginu dyggilega nú sem fyrr. Eina sem vitað er er að útsíðurnar eiga að vera kjurrar á sínum stað, en aðra hluti á eftir að fastsetja. Erfið ráðn- ing prests ■ Eitt af erfiðustu hlutverk- um hverrar kirkju er að kalla góðan prest til starfa. Sóknar- nefndarmaður nokkur, sem staðið hafði í ströngu í þessum efnum missti loks þolinmæð- ina. Hann sá hvernig umsækj- endunum var hafnað, hverjum á eftir öðrum, vegna einhvers - Alvar Alto hreifst hins veg- ar svo af hugmyndinni um sam- norræna heilsuræktarstöð fyrir alla aldursflokka að hann teikn- aði það hús sem ég vil nú láta reisa, sagði Jóhanna Tryggva- dóttir. sem hægt var að finna að þeim. Loks stóð hann upp á sóknar- nefndarfundi og las upphátt bréf frá enn einum umsækj- andanum. Þar stóð m.a.: „Mér skilst að ykkur vanti prest. Mig lang- ar til að sækja um stöðuna. Ég er gæddur rnörgum góðum eig- inleikum. Ég hef predikað lengi og hlotið mikið lof fyrir... Ég er rúmlega fimmtugur að aldri og hef aldrei predikað samfleytt á neinum stað lengur en þrjú ár. Sums staðar hef ég horfið á braut eftir að hafa komið af stað óeirðum og deil- um. Ég verð að viðurkenna að ég hef verið í fangelsi 3svar til 4 sinnum, samt ekki vegna glæpsamlegs athæfis að ég tel... Mér hefur aldrei samið vel við trúarleiðtoga á þeim svæðum sem ég hef dvalið á... Að halda kirkjubækur er ekki mín sérstaka hlið. Ég man t.d. ekki alltaf eftir þeim sem ég hef skírt. Ef þið hafið þörf fyrir mig mun ég gera mitt .besta.“ Sóknarnefndarmaðurinn leit á hina og spurði: „Hvað finnst ykkur? Eigum við að kalla hann til starfa?" Hinir frómu safnaðar- leiðtogar voru bálreiðir. Að kalla sjúkling, vandræðagepil, tugthúslim, sem þar að auki væri viðutan! Var sóknar- nefndarmaðurinn orðinn rugl- aður? Hvaða maður var þetta? Hvernig dirfðist hann að sækja um? Sóknarnefndarmaðurinn leit í kringum sig og sagði síðan: „Bréfið er undirritað: Páll postuli." ■ „Pabbi og mamma vildu láta okkur ráða hvort við yrðum kaþólskar eða lútcrskar, og við ákváðum að verða kaþólskar.“ Þetta sagði Harpa Katrín Gísladóttir, 10 ára, í samtali við NT, en Harpa Katrín og systir hennar, Ásta Sif Theódóra 9 ára, voru skírðar við messu í Landakotskirkju á páskanótt. Það var kaþólski biskupinn á íslandi, Hendrik Frehen, sem framkvæmdi skírnina. Harpa Katrín sagði, að það hefði verið ágætt að láta skíra sig, þó að hún væri orðin þetta gömul, en það hefði kannski verið svolítið skrítið, og hún bætti við, að nú ætluðu þær systur í messu á hverjum sunn- udegi. Foreldrar þeirra Hörpu og Ástu heita Katrín Theódórs- dóttir og Gísli Sigurðsson. ■ Kaþólski biskupinn skírir Hörpu Katrínu Gísladóttur við tnessu á páskanótt. Ásta Sif Theódóra systir hennar horfir á. NT-mynd Sverrir Laugavegi20 Sími 20181 ★ Fyrstir með nýjar plötur ★ Gott úrval af litlum ★ Gott úrval af 12” plötum ★ Gott úrval af nýjum stórum plötum Sérpöntum allar fáanlegar: Popp- Rock - Diskó og millimúsík plötur. Sendum í póstkröfu

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.