NT - 24.04.1984, Blaðsíða 1
Þridjudagur 24. apríl 1984 - 95. tbl. 69. árg.
ALBERT
stoppar
í gatiö
¦ - Þetta er helvíti mikið gat
hjá ykkur, varð Albert Guð-
mundssyni á orði er hann hóf að
stoppa í NT-sokkinn. Fjármála-
ráðherra varð ljúflega við þeirri
beiðni að stoppa í gatið fyrir
okkur, enda kominn með nokkra
reynslu í að fást við-slíkt. Um
páskana var upplýst að fjár-
málaráðherra og forystumenn
stjórnarflokkanna sem undan-
farið hafa fjallað um fjárlaga-
gatið, hefðu nú komist að niður-
stöðu um hvernig það skuli
afgreitt. Eins og fram kemur
'annars staðar í blaðinu eru endar'
enn lausir í þeim prjónaskap eins
og reyndar var einnig raunin á
þegar glímt var við NT-sokkinn.
Meðal þeirra tillagna sem nú
eru ræddar í sambandi við fjár-
lagagatið eru auknar erlendar
lántökur, lækkun á niður-
greiðslum landbúnaðarvara,
söluskattur á þjónustu t.d. verk-
fræðinga, lögfræðinga og arki-
tekta. Hækkun á lyfjaverði og
þjónustu sérfræðinga og hærra
bensínverð.
Er við spurðum Albert
Guðmundsson að því hvort ekki
væri við hæfi að geyma eitthvað
af gati NT-sokksins til næsta
árs, sagðist hann enga ástæðu
sjá til þess og var snöggur að
rimpa í það. Fram kom að þetta
er fyrsti sokkurinn sem Albert
Guðmundsson fjármálaráð-
herra stoppar í um dagana.
NT-mynd Róbert
Sjá nánar bls. 4
Doktorsritgerdinni hafnað:
Höf ðar meiðyrðamál
gegn dómnefndinni
¦ Eiríkur Jónsson, fyrrum
menntaskólakennari og höf-
undur bókarinnar „Rætur fs-
landsklukkunnar", sem hann
hugðist verja sem doktorsrit-
gerð við Háskóla íslands hefur
höfðað mál fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur vegna ummæla
sem dómnefnd heimspeki-
deildar HÍ viðhafði í álitsgerð
um verkið en dómnefndin
komst að þeirri niðurstöðu að
það væri ekki tækt til doktors-
varnar óbreytt.
„Eiríkur telur að í álitsgerð
nefndarinnar séu meiðandi
ummæli um hann sjálfan.
Hann gerir þá kröfu eina að
þessi ummæli verði dæmd
ómerk" sagði Jóhannes L. L.
Helgason, lögmaður dóm-
nefndarínnar, í samtali við NT.
Jóhannes sagði, að ummælin
hefðu verið á þá leið að ýmis-
legt sem bent væri á í ritgerð-
inni hefði áður komið fram á
prenti, meðal annars í ritgerð
eftir Peter Hallberg, sem raun-
ar var einn dómnefndarmanna.
Pá mun sagt á einum stað að
við tiltekið atriði hafi Eiríkur
tæplega staðið fullheiðarlega
að verki. Ennfremur setur
nefndin út á notkun Eiríks á
Orðabók Háskóla íslands.
Auk Peters Hallberg áttu
þeir Ólafur Halldórsson, hand-
ritafræðingur og Sveinn Skorri
Höskuldsson, prófessor, sæti í
dómnefndinni. Sveinn Skorri
vildi ekki tjá sig um málið
þegar NT ræddi við hann í gær.
Málið var dómtekið og flutt
14.apríl síðastliðinn. Að sögn
Auðar Þorbergsdóttur, borg-
ardómara, er dóms að vænta
innan tíðar.
¦ Bretar hafa slitið
stjornmalasambandi
við Líbýu og skipað
sendiráðsmönnum
fráLondonn.k.sunnu-
dag. Bresku dipló-
matarnir í Tripoli eru
þegarfarniraðpakka
saman og hér eru
börn sendiherrans
farinaðtínaeigursín-
ar niður í ferðapok-
ana.
Harðneskjuleg
eignakönnun
Nigeria innkallar
gjaldmiðilinn og
lokar landamærunum.
L
Bh. 21
Johanna
Tryggvadóttir:
Matarlaus
í mánuð
- erþóennuppi-
standandi og hress
- sjábls 2 -