NT - 25.04.1984, Side 2
Minni Núpur í Gnúpverjahreppi:
Háspennulínur Landsvirkjunar
valda fósturláti í búpeningi
- „Ef línan félli þyrfti enginn á bænum að binda um sárin
sín,“ sagði starfsmaður Landsvirkjunar sem kom að bænum
■ A þessari mynd sjást fjárhus Krístjáns bónda á Minna Núpi þar
sem féð er nú lokað inni frá því um fengitímann og fram yfir
sauðburð til þess að forða fósturláti hjá lambám en áður en það var
gert misstu allt að 70% lambáa fóstur beggja lamba og nokkrar gutu
öðru lambfóstrínu en fæddu hitt lifandi. Fjárhúsin sem eru
járnklædd virka sem nokkurskonar skýli fyrir rafsegulsviðinu;
Fairadaysbúr á máli eðlisfræðinnar.
talsverðu af sér haustið 1976 en
það var einmitt þá um vorið sem
109 af 160 lambám gutu löngu
fyrir burð. Sláturinnleggið um
haustið var því fyrst og fremst
gamalt fé og lambær sem ekki
höfðu losað sig við hildina við
burð vegna sjúkdómsins sem
herjaði á þær.
Arin næst á eftir gutu heldur
færri lambær enda almennt talið
að kind sem gýtur lambfóstri
eitt árið geri það ekki næsta ár
á eftir.
Gunnlaugur Skúlason átti þá
hugmyndina að því að það væri
rafsegulspennan sem ylli þessu
og lagði til að féð yrði lokað inni
frá því um fengitímann og fram
yfir sauðburð sem var fyrst reynt
árið 1979 og hefur síðan ekki
borið á þessum kvilla í skepnun-
um. Eins og fyrr sagði gaut samt
ein hryssa síðastliðið vor eftir
að hafa verið höfð á hættusvæð-
inu undir línunni í vikutíma.
Samkvæmt mælingu sem
Kristján lét Verkfræðistofu
Suðurlands gera er fjarlægð frá
barðinu ofan við fjárhúsið að
línunni 13,78 metrarenfjarlægð
línu frá fjárhúsi er 27,6metrar.
„Línan byggð
samkvæmt lögum
og reglugerðum“
- segir fulltrúi Landsvirkjunar
um háspennulínuna að Minna Núpi
■ „Línan er byggð samkvæmt
lögum og reglugerðum um há-
spennulínur og tekin út af Raf-
mangseftirliti Ríkisins. Ég held
líka að það sé langt því frá að
það megi rekja þennan kvilla í
ánum til línunnar. Parsem fjar-
lægð hennar frá jörðu er hvað
minnst þá er hún um 13 metrar
en það er langt ofan við þau
lágmörk sem sett eru. Við
höfum líka aldrei heyrt um
þessi áhrif háspennu á búpen-
ing,“ sagði Þorgeir Andrésson
verkfræðingur á Línudeild
Landsvirkjunar þegar blaða-
maður innti hann álits á stað-
setningu háspennulínunnar að
Minna Núpi.
- En nú er línan mjög nærri
bænum. Gæti ekki orðið þarna
stórslys ef annað mastrið félli og
línan slengdist í bæjarhúsin.
„Þetta held ég að sé ekki rétt,
línan er byggð samkvæmt þeim
reglum sem okkur eru settar og
gæti aldrei náð í bæjarhúsin",
sagði Þorgeir.
■ „Fyrsta árið gutu 109 af 160
lambám dauðum lambfóstrum
sínum löngu fyrir burð og
nokkrar af hinum sem eftir voru
gutu öðru fóstrinu en báru hitt
lambið lifandi. Þetta sama ár
gutu þrjár hryssur sem voru
með fyl á bænum. Næsta ár hélt
þetta áfram og hætti ekki fyrr en
ég tók upp á því að loka féð
alveg inni frá því um fengitím-
ann og framyfir sauðburð", seg-
ir Kristján Guðmundsson bóndi
að Minna Núpi í Gnúpverja-
hreppi en þar á bænum liggur
220 þúsund volta háspennulína
Landsvirkjunar eina tylft metra
yfir grasbarði sem sauðfé hefur
alla tíð sótt í að liggja á þegar
því er hleypt út á vetrum. Gras-
barðið er aðeins spölkorn frá
bæjarhúsum. Að mati Kristjáns
og héraðsdýralæknisins Gunn-
laugs Skúlasonar í Laugarási
má telja nær fullvíst að rafsegul-
sviðið sem stafar frá línunni
orsaki fósturlátin í skepnunum.
„Sláandi sönnunargagn fyrir
þessari kenningu kom síðastlið-
ið vor þegar við tókum hér heim
á bæinn hryssu til þess að hafa
Uppgangstímar
og músadauði!
■ Miklir uppgangstímar eru
nú í Vestmannaeyjum og á
Hvolsvelli í kjölfar komu kvik-
myndahópsins sem nú vinnur
að töku kvikmyndarinnar
Enemy Mine. Hópurinn er nú
í Vestmannaeyjum og þar er
mikið um að vera enda horfa
gestirnir ekki í peningana.
Verslunareigendur geta í hvor-
ugan fótinn stigið því hópurinn
er ekki smátækur í innkaup-
um. Þannig fréttist af því að
fjárfest hefði verið í einni búð-
inni í 160 lítrum af svartri
málningu. Þá hefur leigubíla-
stöðin í Vestmannaeyjum not-
ið góðs af gestunum. Stórblað-
ið LIFE hefur útsendara á
staðnum og blaðamenn þess
hafa undanfarið tekið sér
leigubíl á morgnana og skilað
honum á kvöldin og allan þann
tíma gengur gjaldmælirinn.
Hópurinn hefur tekið ein-
býlishús á leigu í Vestmanna-
eyjum og á Hvolsvelli og það
hefur heyrst að fólk leggi ýmis-
legt á sig til að geta gengið úr
húsi fyrir kvikmyndafólkinu.
Þannig munu nokkrir Hvols-
vellingar ætla á meðan að
dvelja í sláturhúsinu á Djúpa-
dal sem ekki er starfrækt á
veturna. Aðstæður í húsa-
kynnum sláturhússins munu
ekki hafa verið aðlaðandi þeg-
ar að var komið því þar moraði
allt í músum, dauðum og lif-
andi.
Frjálshyggja
á villigötum
■ Þegar mikið er að gerast,
allt á fullu og menn á kafi í
hundrað mismunandi málum,
gerast oft sérkennilegir hlutir.
eins og starfsmenn NT liafa
fengið að reyna að undan-
„Háspennulínan er líka
hættulega nærri bæjarhúsunum
hér. Starfsmaður Landsvirkjun-
ar sem ég fékk til að líta á þetta
og fullyrti að línan væri löglega
staðsett lét þess einnig getið að
ef hún félli í jörðina án þess að
rafmagnið dytti út áður þá
þyrfti enginn að binda um sárin
sín hér á bænum", sagði Krist-
ián Guðmundsson bóndi á,
Minna Núpi.
NT sneri sér til Gunnlaugs
Skúlasonar héraðsdýralæknis í
Laugarási, en hann kvað mega
slá því föstu að féð hefði látið
fóstur vegna rafsegulsviðsins
sem myndast umhverfis línuna.
Þá kom fram hjá honum að
ástæða þess að þessa hefði ekki
gætt eftir að féð var lokað inni í
húsi er að sviðið nær ekki innfyr-
ir járnklætt húsið sem leiðir allt
rafmagn beint í jörð. Á máli
eðlisfræðinnar er hér á ferðinni
svo kallað Fairadaysbúr sem
verkar einangrandi í rafsegul-
sviði.
„Ég tel mjög mikilvægt að
menn láti þetta mál verða sér
víti til varnaðar. Vafalaust á
eftir að leggja háspennulínur
víðar um landið og atriði að
menn láti það ekki henda aftur
að línur liggi svona nærri bæjurn
og fénaðarhúsum", sagði Gunn-
laugur. „Að Minna Núpi hafði
ég reynt öll hugsanleg lyf gegn
fósturláti á skepnunum án
nokkurs árangurs.“
Forsaga máls þessa er sú að
þegar Landsvirkjun lagði línuna
ofan frá Búrfeílsvirkjun 1970
var rekið kúabú að Minna Núpi.
Nokkrum árum seinna var kún-
um fargað og Kristján Guð-
mundsson hugðist snúa sér ein-
göngu að sauðfjárbúskap sem
hafði verið á bænum í afar
litlum mæli. Sauðfjárbúið hefði
fyrst átt að skila einhverju um-
Ofan á þessu barði vandi
sauðféð sig á að liggja meðan
því var ennþá hleypt út enda er
það í eðli sauðkindarinnar að
liggja einhversstaðar upp á
hæðum þar sem hún sér vel
yfir, segir Kristján Guðmunds-
son um leið og hann bendir
okkur á hættusvæðið.
Rosknir
vinnings-
hafar óskast
■ Enn nýtt happdrættisár er
nú að hefjast á DAS, einu af
þremur stærstu fjárhættuspila-
fyrirtækjum þjóðarinnar.
Happdrættið hefur löngum
státað af að hafa.eitt slíkra.hús
í verðlaun einu sinni á ári.
Komandi happdrættisár er
engin undantekning í því efni.
Það sem hins vegar verður
að teljast til tíðinda, og mæla
með því að vinningshafar
væntanlegir séu rosknir í meira
lagi, er sú staðreynd að húsið
sem er stærsti vinningurinn í ár
stendur rétt hjá Hrafnistu í
Hafnarfirði og er sérstaklega
hannað sem þjónustuíbúð í
vernduðu umhverfi. Ætli ung-
ur vinningshafi teldi ekki um
dekur að ræða, eða eltist um
aldur fram, ef hann félli í
lukkupottinn hjá DAS.
Samkvæmt heimildum Dropa
munu þau hjónin hafa í hyggju
að búa hér heima á íslandi.
Stefán
giftir sig
■ Páskarnir voru tímamót í
lífi margra íslendinga að þessu
sinni, þar á meðal í lífi Stefáns
Jónssonar fyrrverandi alþingis-
manns. Stefán tók sig nefnilega
til og gifti sig og er hin ham-
ingjusama Kristjana íslandi,
sem verið hefur starfsmaður
Menningarmálaskrifstofu
Norðurlandaráðs í Kaup-
mannahöfn. Kristjana varáður
gift Stefáni íslandi óperu-
söngvara. Þess má geta að
Stefán Jónsson hefur verið
formaður Menningarmála-
nefndarinnar undanfarið.
■ Fram til þessa hefur nafn Brynjúlfs Jónssonar fræðimanns og
skálds orðið til að bera nafn Minna Núps út um jarðir en nú er það
háspennulína Landsvirkjunar og sú ógn sem mönnum og skepnum
stafar af henni sem kemur bænum í pressuna.
NT-myndir Arni Sæberg.
hana sem brúkunarhross og
höfðum hana á blettinum undir
línunni. Eftir aðeins viku tíma
urðum við þess vör að hryssan
hafði látið fyl en hún hafði þá
verið fylfull án þess að við
vissum af því. Aðrar hryssur á
bænum sem voru með fyl og
gengu að sjálfsögðu ekki á þessu
hættusvæði köstuðu sínum fol-
öldum um haustið eins og ráð
var fyrir gert. Þessi hryssa sem
missti fylina, hefur fyljast um
leið og hinar tvær og því átt
nokkra mánuði í að kasta“.
förnu. Það eftirminnilegasta,
sem NT liðið lenti þó í, er
tvímælalaust mistökin varð-
andi leiðarahausinn á fyrsta
NT blaðinu. Þangað hafði ein-
um helsta andstæðingi NT
manna, frjálshyggjunni, tekist
að lauma sér með miklum
klókindum - eins og af henni
var að búast. Ekki virðist þó
henni hafa liðið þar of vel, því
í blaðinu í dag hefur félags-
hyggjan réttilega tekið við að
frjálshyggjunni. Og megi svo
vera um aldur og ævi.
MHMHll