NT - 25.04.1984, Blaðsíða 27
Draumaferð til Stuttgart:
Asgeir tekur á
móti NT-krökkum
- Ólafur Sigurvinsson verður fararsf jóri
■ Ferð til Stuttgart, þar sem
Ásgeir Sigurvinsson knatt-
spyrnumaðurinn frægi tekur á
móti þér, sýningaferð um hina
glæsilegu íþróttavelli borgar-
innar og miði á leik Stuttgart
og einhvers annars þýsks stór-
liðs er hjá flestum aðeins fjar-
lægur draumur. En NT getur
gert jafnvel ótrúlegustu
drauma að veruleika og í sam-
vinnu við blaðasölu- og blað-
burðarfólk blaðsins getur þessi
draumur hæglega ræst.
NT hefur ákveðið að efna til
happdrættis meðal þeirra, sem
starfa að dreifingu blaðsins.
Happdrættið er í því fólgið að
dugnaður og framtaksemi
verður verðlaunað með happ-
drættismiðum og síðan verður
dregið um 4-6 verðlaun í ágúst-
mánuði. Verðlaunin eru, sem
fyrr segir, fólgin í ferð til
Stuttgart seint í ágúst eða
snemma í september.
Happdrættismiða getið þið
fengið eftir tvenns konar
leiðum. Annarsvegarfærblað-
burðarfólk blaðsins 4 miða á
mánuði í maí, júní og júlí
mánuðum fyrir kvörtunarlaus-
an mánuð. Fyrir hverja
kvörtun fækkar miðunum hins
vegar um einn. Þannig getur
blaðburðarfólkið fengið allt
upp í 12 miða eftir þessari leið.
Hin leiðin er fólgin í því að
selja NT í lausasölu. Fæst
þannig einn miði fyrir hver 100
seld blöð. Afgreiðslan á NT
sér um að halda skrá yfir þau
blöð, sem þú hefur selt og
leggj a tölurnar saman í mánað-
arlok. Komir þú t.d. 8 sinnum
til að selja blaðið og 50 blöð
seljast í hvert skipti, ertu strax
kominn með 4 miða fyrir mán-
uðinn. Munið eftir, að það er
hægt að selja NT alla daga
vikunnar. Allt, sem þið þurfið
að gera, er að koma upp í
Síðumúla og fá blöð afgreidd.
í>eir sem búa utan höfuðborg-
arsvæðisins, geta haft samband
við umboðsmann NT.
Stuttgart-ferðin, sem er í
verðlaun, er tvímælalaust
draumaferð. Landsliðsmaður-
inn frægi, Ólafur Sigurvinsson
úr Eyjum, bróðir Ásgeirs,
verður fararstjóri og mun hann
leiða hópinn um alla helstu
staði Stuttgart með aðstoð Ás-
geir Sigurvinssonar. Þar sem
við vitum ekki enn hvenær
ferðin verður nákvæmlega
farin, getum við ekki sagt um
hvaða leik verði að ræða, en
það verður örugglega eitt af
stcérstu nöfnunum í þýsku
knattspyrnunni. Áfram nú,
því mikjð er til að vinna:
Dreifum NT vel og seljum.
Miðvikudagur 25. apríl 1984 27
■ Ásgeir Sigurvinsson - tekur á móti NT-krökkum í haust.
Liverpool er
helst í hættu
bresku liðanna 6 í EM í kvöld - Manchester Utd í erffiðri aðstöðu
Kínverjar unnu
- Sovétmenn í öðru sæti
■ Kínverjar unnu í 9
þjóðakeppni í fímleikum
sem haldið var í Peking, og
lauk í fyrrakvöld, að því er
fréttir frá Kína herma.
Sovétmenn urðu í öðru
sæti, skammt á eftir Kín-
verjum. Lokastaðan varð
sú, að Kínverjar voru með
118,5 stig, Sovétríkin fengu
117,70, Búlgaría 115,30, og
A-Þjóðverjar hlutu 115,20
stig.
Besti einstaklingur móts
ins var Ma Yan Hong,
fyrrum heimsmeistari, frá
Kína. Ma hlaut 39,55 stig,
skammt á undan hinni 16
ára Zhou Ping frá Kína og
Tatiana Frolova frá Sovét- i
ríkjunum, sem báðar hlutu íl
39,30 stig.
Eyjamenn
lögðu Fram
■ ÍBV vann Fram í æf-
ingaleik í knattspyrnu um
síðustu helgi í Eyjum. Ur-
slitin urðu 2-0, mörkin
skoruðu Sigurjón Krist-
jánsson á 34. mínútu og
Kári Þorleifsson á 49. mín-
útu.
ÍBV virðist vera til alls
líklegt í sumar, þegar litið
er á þessi úrslit. Fram
leikur í 1., deild næsta
sumar, en ÍBV féll í 2.
deild eftir málaferli sem
kunnugt varð. Eyjamaður-
inn sterki í knattspyrnunni,
Ómar Jóhannsson sem
gckk til liðs við Fram í
vetur, lék með Fram í
áðurnefndum æfingaleik.
Saudi-Arabar
keppa á OL
í knattspyrnu
■ Saudi-Arabia varð
fyrsta þjóðin frá Asíu til að
tryggja sér þátttökurétt í
knattspyrnukeppni Olym-
piuleikanna í Los Angeles
í sumar. Arabarnir unnu
S-Kóreu 5-4 í skemmti-
legum leik í Singapore. Ar-
abar unnu þar með í riðli A
í undankeppni OL. í B-
riðli þarf Quatar aðeins
jafntefli við Japan í síðasta
leik keppninnar á þriðju-
dag, til að komast á OL. Ef
Quatar nær ekki stigi, berj-
ast írak og Malaysía um
sætið.
■ Bryan Robson - verður að
líkindum með Manchester
United í Tórínó í kvöld.
■ Juventus heldur áfram á
leiö sinni til sigurs í ítölsku
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu. Liðið sigraði Udinese
um síðustu helgi 3-2. Á meðan
gerði AS Roma, aðalkeppi-
nauturinn á toppnum 2-2 jafn-
tefli við Avellino.
Rossi skoraöi fyrst fyrir Ju-
ventus, en Massimo Mauro og
Zico hinn brasilíski komu
Udinese í 2-1. Þá kom hetja
leiksins til sögunnar, varamað-
urinn Beniamino Vignola.
Vignola, sem kom inn á fyrir
Pólverjann Zbigniew Boniek,
skoraði jöfnunarmark eftir
sendingu frá Marco Tardelli,
og síðan sigurmarkið eftir mik-
ið einkaframtak upp allan völl.
Roma byrjaði vel gegn
Avellino, Roberto Pruzzo
skoraði sitt 100. 1. deiidar-
mark, 1-0, og síðan bætti Bras-
ilíumaðurinn Toninho Cerezo
■ í kvöld eru síðari leikirnir
í undanúrslitum Evrópu-
keppnanna í knattspyrnu. Álls
eru 6 leikir, og helmingur
þeirra 12 liða sem keppa eru
frá Bretlandseyjum. Öll hafa
bresku liðin góða möguleika á
að komast áfram í úrslit
Evrópukeppnanna þriggja, en
þó hlálegast að það lið sem
á klénasta möguleikana eru
Englandsmeistarar Liverpool.
Liverpool leikur gegn Rúmen-
íumeisturunum, Dynamó
Búkarest, og náði aðeins að
sigra þá 1-0 heima á Anféld
Road.
Leikirnir sem eru í kvöld eru
þessir: (í sviga eru úrslit í fyrri
íeiknum).
Evrópukeppni Meistaralióa:
AS Roma-Dundee .......... (0-2)
öðru við. En Argentínumað-
urinn Ramon Diaz skoraði þá
fyrir Avellino, og Gian Pieter
Taglioferri jafnaði.
Haasi Muller átti stórleik
með Inter Mílanó gegn Fior-
entina. Aldo Serena skoraði
fyrir Inter, en Argentínumað-
urinn Daníel Bertoni jafnaði
fyrir Flórensbúana.
Enski landsliðsmaðurinn
Trevor Francis skoraði sigur-
mark Sampdorian gegn Pisa,
og er Pisa nú nálægt falli.
Daninn ungi, Michael
Laudrup skoraði tvö mörk fyr-
ir Lazio, og Bruno Giordano
eitt í 3-2 sigri yfir Napoli.
Verona og Torino, sem berj-
ast við Mílanó um sæti í
UEFA-keppninni, gerðu jafn-
tefli 2-2. Juventus er nú efst á
Ítalíu með 40 stig, Roma hefur
36, Fiorentina 34 og Verona
Torino og Inter hafa 31 stig.
Dýnamó Búkarest-Liverpool .. (0-1)
Evrópukeppni Bikarhafa:
Juventus Tórínó- Man. Utd. .. (1-1)
Aberdeen-Portó ............; (0-1)
UEFA-keppnin:
Anderlecht-Nott. Forest ... (0-2)
Tottenh.-Hadjuk Split ..... (1-2)
Manchester United á einnig
mjög á hættu að falla úr, ferð
til Tórínó á Ítalíu með jafntefli
aðeins í vasanum. En þess ber
þó að geta, að United mætti á
Old Trafford fyrir hálfum mán-
uði með hálft lið, án Ray
Wilkins, Arnold Muhren og
Bryans Robson. Wilkins verð-
ur með í kvöld, og að líkindum
Bryan Robson einnig. Ekki er
alveg ljóst með Muhren, en
talið ólíklegt að hann leiki.
Dundee Utd. á góða mögu-
leika á að komast áfram, hefur
■ Michael Laudrup - skor-
aði tvö um helgina, og virðist
vera að ná sér á strik.
tveggja marka forskot í Róm.
í Róm verður leikinn úrslita-
leikurinn í Evrópukeppni
bikarhafa, á heimavelli Roma.
Það var ákveðið löngu fyrir
keppnina, er reyndar yfirleitt
á heimavelli Evrópumeistar-
anna. Toppur breskra yrði
algjör, ef Liverpool og Dundee
mættust þar.
Arnór Guðjohnsen og félag-
ar í Anderlecht eiga á brattann
að sækja, þurfa að vinna upp
tveggja marka forskot Notting-
ham Forest, og nú verður Gary
Birtles með.
Allt
vitlaust í
Bretlandi
útaf Zolu
■ Enn hefur allt orðið vit-
laust í Bretlandi vegna s-
afrísku hlaupastúlkunnar
Zolu Budd. Zola fékk sem
kunnugt er breskan ríkis-
borgararétt 10 dögum eftir
að hún sótti um hann.
Hið vinstri sinnaða borg-
arráð í Lundúnum sem lýst
hefur árinu 1984 sem ári
gegn kynþáttamisrétti,
pressar mjög á að Zola fái
ekki að keppa á frjálsíþrótta-
móti í Lundúnum í kvöld.
Þó er ólíklegt að ráðinu
takist að banna Zolu að
hlaupa.
Zola hraktist frá einu slíku
móti, íCrawley.afsvipuðum
orsökum í síðustu viku.
Ástæðan fyrir hegðun
borgarráðsins er sú, að
mörgum finnst að Zola eigi
að bíða eftir ríkisborgara-
rétti eins og aðrir, en ekki fá
hann samstundis vegna
(þróttahæfileika sinna.
Juventus enn
á sigurbraut
Jafnt hjá
Watford og
Southampton
■ Einn leikur var í ensku
1. deildinni í knattspyrnu í
gærkvöld. Watford og
Southampton skildu jöfn,
1-1.
í annarri deild vann
Lecds Oldham 1-0, Ports-
mouth og Chelsea skildu
jöfn 2-2, og Screwsbury
vann Swansea 2-0.
Benfica
skoraði 6
■ Benfica er enn efst í
11. deildinni í knattspyrnu í
Portúgal. Liðið vann Es-
pinho 6-0 um helgina, með
mörkum Diamantino (3),
Nene, sem er markakóngur
deildarinnar með 20 mörk,
Alvaro og Danans Mann-
iche.
Porto, aðalkeppinautur
Benfica, þremur stigum á
eftir með 46 stig, sigraði
Varzim 3-0.
Monaco efst
—í 1. deild í Frakklandi
■ Úrslit urðu þessi í 1.
deildinni í knattspyrnu í
Frakklandi um helgina:
Brest-Laval ............. 1-0
Mcts-Nantes ..............2-1
St. Etienne-Toulouse .....0-1
Monaco-Rouen .............1-0
Auxerrc-Bordeaux..........4-1
Bastia-Nancy .............0-1
Rennes-Sochaux............0-1
Lille-Nimes ............. 1-0
Toulon-Lens...............3-0
Staða efstu liða er þessi:
Monaco ..... 36 21 9 6 54 28
Bordeaux... 36 21 8 7 68 31 50
Auxerre.... 36 20 7 9 57 31 47
ToulouBe...36 19 6 11 56 39 44
Nantes.....35 17 8 10 45 29 42
Feyenoord
á toppnum
■ Úrslit urðu þessi í hol-
lensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu um helginaa.
Tilburg-Helmond .........0-0
Utrecht-Sittard ...........0-0
DS’79-Feyc.noord ...........0-3
Sparta-Haariem ..............34
Excelsior-Groningen ........3-0
Roda-Ajax ................. 1-1
PSV-Ga Eagles .............7-1
AZ’67-Den Boscli ...........1-1
Staða efstu liða:
Feyenoord... 31 22 7 2 86-30 51
PSV....... 31 21 6 4 80-28 48
Ajax...... 31 20 7 4 87-39 47
Haarlem... 31 13 12 6 544 6 38
Sparta____ 31 11 13 7 69-52 36