NT - 25.04.1984, Blaðsíða 23
\\\ Miðvikudagur 25. apríl 1984 23
lil Útlönd
Afganistan:
Stórsókn
Sovétmanna
lslambad-Kcuter
■ Afgönsk yfírvöld sögðu í gær
að þau hefðu náð á sitt vald
Panjsher-dalnum sem hingað til
hefur verið á valdi afganskra
skæruliða sem berjast gegn
stjórninni og sovéska setuliðinu
í landinu.
Átöká
landamærum
Indlands og
Bangladesh
Nýja Delí og Dakka-Reutcr.
■ Mikil spenna er nú á
landamærum Indlands og
Bangladesh vgna þeirrar ák-
vörðunar Indverja að loka
landamærunum að hluta til
með rammgerðum gadda-
vírsgirðingum.
Indverjar tóku ákvörðun-
ina um að leggja gaddavírs-
girðingu á landamærunum
eftir miklar óeirðir í Assam-
héraði á Indlandi í febrúar
1983 þegar meira en 3000
manns létu lífið. Óeirðirnar
beindust þá aðallega gegn
fólki af Bengalisuppruna en
hluti þess hefur komið frá
Bangladesh á undanförnum
árum í leit að vinnu í Assam
sem er eitt helsta olíufram-
leiðslusvæði Indverja.
Stjórnvöld í Bangladesh
og á Indlandi höfðu samið
um það sín í milli árið 1975
að engin hernaðarmannvirki
skyldu reist á 150 metra
breiðri ræmu eftir endi-
löngum landamærum ríkj-
anna. Ríkisstjórn Bangla-
desh telur að 100 km langar
gaddavírsgirðingar sem Ind-
verjar vinna nú við að reisá á
tveimur stöðum við landa-
mærin séu brot á þessu sam-
komulagi Indverjar svara
þessu með því að fullyrða að
gaddavírsgirðingarnar séu
ekki hernaðarlegs eðlis held-
ur sé þeim ætlað að koma í
veg fyrir stöðugan straum
fólks sem flyst ólöglega frá
Bangladesh í leit að vinnu á
Indlandi. Stjórnvöld í Bang-
ladess neita því hins vegar að
íbúar þaðan flytjist í nokkr-
um mæli til Indlands og líta
á gaddavírsgirðinguna sem
mikla niðurlægingu fyrir
Bangladesh.
Fyrstu átökin vegna þessa
máls urðu í aprílbyrjun en í
gær urðu þau harðari en þau
hafa hingað til verið. Her-
menn frá Bangladesh reyndu
að stöðva girðingarlagningu
Indverja á milli Bangladesh
og Assamhéraðs í Indlandi
með valdi. Bæði Indverjar
og Bangladeshmenn gripu
þá til skotvopna og að
minnsta kosti tveir indverskir
særðust og einn hermaður
frá Bangladesh.
Talsmaður stjórnarinnar í
Dakka í Bangladesh segir að
stjórnvöld þar muni láta reisa
24 varðturna við landamærin
til að fylgjast með athöfnum
indverska hersins sem þegar
hafi reist nokkra slíka varð-
turna sín megin við landa-
mærin.
íbúar í Bangladesh, sem
búa nálægt átakasvæðinu
urðu skelfingu lostnir vegna
þessara átaka. Um 1200
þorpsbúar í Bhurungamari
flýðu heimkynni sín strax
þann 6. apríl síðastliðinn
þegar átökin hófust.
Tilkynning stjórnarinnar kom
í kjölfar mikillar sóknar sovéska
hersins inn í Panjsher-dainn en
þetta er í sjöunda skiptið sem
Sovétmenn gera tilraun til að
ná dalnum á sitt vald.
Skæruliðar segja að Sovét-
menn hafi notað meira en 500
skriðdreka í upphafi sóknarinn-
ar sem hófst fyrir nokkrum
vikum og að mörg hundruð
skriðdrekar og önnur brynvarin
farartæki hafi sótt inn í dalinn.
Sovétmenn eru líka ásakaðir
fyrir að hafa gert loftárásir á
íbúa á svæðum uppreisnar-
manna úr mikilli hæð með stór-
um sprengjuflugvélum til að
undirbúa innrás sína inn í
dalinn. Sovétmenn hafa áður
notað herþyrlur til að gera árás
á uppreisnarmenn úr lofti en
samkvæmt heimildum frá
Washington mun þetta vera í
fyrsta skiptið sem Sovétmenn
nota ákafar loftárásir úr mikilli
hæð í baráttu sinni við skæru-
liða.
■ Öflugur lögregluvörður er um líbýska sendiráðið í London og er engum hleypt þaðan út eða inn. Myndin
var tekin í gær er lögreglumenn höfðu vaktaskipti. Símamynd Polfoto.
Einkafulltrúi Kaddafis
brottrekinn með hraði
■ Bretar visuðu í gær úr landi
sérstökum eríndreka Kaddafís
þjóðarleiðtoga Líbýu í Bretlandi.
Abdul Ghadir Baghdadi er yfír-
maður fyögurra manna byltingar-
nefndar sem yfirtók líbýska sendir-
áðið fyrir tveim mánuðum. Hann
nýtur ekki sérréttinda
sendiráðsstarfsmanna og var hann
umsvifalaust rekinn úr landi. Lög-
reglan tók hann fastan í London
og flutti um borð í líbýska flugvél
sem var á leið heimleiðis.
Baghdadi er sagður hafa verið
raunverulegur yfirmaður líbýska
sendiráðsins í London þótt hann
hefði ekki sendiherranafnbót. Fé-
lagi hans í byltingarnefndinni var
einnig rekinn úr landi.
Tveim líbýskum embættis-
mönnum var leyft að koma til
London í gær. Þeir eiga að grciða
fyrir brottflutningi þeirra 20-30
manna sem eru í sendiráðinu og
verða að hverfa þaðan í síðasta
lagi á sunnudag. Öðrum líbýu-
mönnum var ekki hleypt inn í
landið og var nokkrum snúið við
sem þangað komu með flugvél
líbýanska flugfélagsins.
6tonn
afhassi
voru
gerð
upptæk
París-Reuter
■ Franska lögreglan
lagði í gær hald á sex tonn
af hassi sem er mesta magn
af eiturlyfjum sem liigregl-
an hefur nokkurn tímann
komist yfír í einu.
Lögreglan hefur þegar
handtekið sjö manns
vegna þessa máls. Fjórir
þeirra tengjast neðanjarð-
arheimum Marseilles-
borgar en tveir hinna
handteknu eru frá Líban-
on og einn er frá Alsír.
Lögreglan fann fyrst 1,5
tonn af hassi í
vöruflutningabíl en síðan
bættust við um 4,5 tonn af
hassi þegar hún gerði
skyndiáhlaup á vöruhús
þar sern lögreglumenn
höfðu rökstuddan grun
um að mikið magn eitur-
lyfja væri að finna. í vöru-
húsinu fundust einnig um
50 kg af efni mjög áþekku
ópíum.
Það er talið að eiturlyfj-
unum hafi verið smyglað
frá Beirút til Parísar.
Markaðsverð þeirra á
frönskum eiturlyfjamark-
aði mun vera um 300 millj-
ónir franka eða meira en
einn milljarður íslenskra
króna.
Illa fenginn auður að engu gerður
Peningaskiptin í Nigeríu komu öldungis á óvart
■ Gjaldmiðilsbreytingunni í
Nigeríu hefur verið fagnað af
bankamönnum þar í landi, al-
menningi og erlendum sendi-
fulltrúum í landinu sem telja að
aðgerðin sé nauðsynleg til að
stöðva þá miklu spijlingu sem
viðgengst. Þeir sem verst verða
úti eru auðugir Nígeríumenn
sem lúra á fjárfúlgum og geta
ekki gert grein fyrir hvernig eru
fengnar. Erlendir bankar sem
keypt hafa nigeríska naira tapa
einnig því fé. Gjaldmiðillinn er
ekki skráður erlendis og stjórn-
völd í Nigeríu hafa varað banka
við að kaupa hann með miklum
afföllum.
Mikil leynd hvíldi yfir gjald-
miðilsbreytingunni og kom hún
öllum á óvart, nema stjórnend-
um landsins. Bankar vissu ekk-
ert um hana fyrr en tilkynnt var
á mánudag að peningaskipti
yrðu og landamærum ríksins
var lokað til að koma í veg fyrir
smygl á naiörum til Nigeríu.
Byrjað verður að skipta á nýju
peningunum og þeim gömlu í
dag, miðvikudag. Hver einstak-
lingur fær ekki að skipta nema
sem svarar 200 þús. ísi. kr.
Nýju peningarnir voru prent-
aðir í London og var 18 tonnum
af þeim flogið til Nigeríu í
síðustu viku. Eftir 12 daga, eða
6. maí lýkur gjaldmiðilsbreyt-
ingunni.
Giskað er á að um milljarður
naira séu í bönkum erlendis.
Þessi upphæð svarar til um 40
milljarða ísl. kr Þessirfjármun-
ir verða nú verðlausir því bankar
í Nigeríu þurfa ekki að innleysa
nairana, þar sem þeir eru ekki
skráðir á gengismörkuðum. En
tapið er ekki eins mikið og ætla
mætti, því erlendu bankarnir
hafa keypt þessa peninga með
miklum afföllum.
Á svarta markaðinum í ná-
grannalöndum Nigeríu hefur ná-
iri gengið á sem svarar fimm-
tungi verðgildis miðað við
dollar.
Búist er við örtröð í bönkum
á meðan peningaskiptin fara
fram og verður opið um helgar
til að auðvelda heiðarlegu fólki
að skipta peningum sínum.
Með þessum peningaskiptum
fer fram nokkurs konar eigna-
könnun og er hætt við að margir
eignamenn og braskarar tapi
stórum fjárhæðum sem þeir
Itafa aflað á ólöglegan hátt og
geta ekki gert grein fyrir.
Herstjórnin ætlar með þess-
um aðgerðum að uppræta þá
miklu spillingu sem viðgengist
hefur í landinu.
Vörur hafa horfið úr verslun-
um og gamli nairinn er ekki
mikils virði og vilja heist engir
taka hann sem greiðslu fyrir
varning eða þjónustu.
Líbanon:
Leiðtogarnir reyna að semja
en fylgismennirnir berjast
■ Bardagar halda áfram á
„græna svæðinu" í Beirut og
hafa öryggissveitir dregið sig í
hlé þaðan á meðan skothríðin
geisar. Samtímis reyna leiðtog-
ar hinna sundurleitu afla sem
elda saman grátt silfur í Líban-
on að ná samkomulagi um
stjórnarmyndun.
Gengið er út frá því sem vísu
að mynduð verði samsteypu-
stjórn þar sem allar helstu
stjórnmálahreyfingar og trúar-
hópar eigi sína fulltrúa. Eins og
nú standa sakir er talið hvað
líklegast að Rashid Karami
myndi stjórnina og verði for-
sætisráðherra. Hann er þekktur
stjórnmálamaður, múhameðs-
trúar og er studdur af Sýrlend-
ingum. Gemayel forseti er sagð-
ur geta sætt sig við að sitja í
stjórn undir forsæti Karami, og
eins faðir hans sem er formaður
Falangistaflokksins. Aðrir
kristnir leiðtogar eru ekki eins
hrifnir af Karami sem forsætis-
ráðherra.
Leiðtogarnir eru í miklum
vanda staddir þar sem það er
ekki nóg að þeir geti sætt sig við
hvernig stjórnin á að vera
skipuð heldur verða þeir að
leita samþykkis stuðnings-
manna sinna og bardagarnir í
Beirut benda ekki til að þar séu
allir á einu máli.
Um 40.00 börn deyja
daglega úr næringarskorti
Liv Ullmann segir frá hungursneyd í Afríku
Kom-Kcuter
■ Framkvæmdastjóri Barna-
sjóðs Sameinuðu þjóðanna
skýrði frá því í seinustu viku
að á Sahel-svæðinu í Afríku
þar sem miklir þurrkar hafa
herjað að undanförnu, þjáist 3
af hverjum 5 einstaklingum af
alvarlegum næringarskorti.
Hann sagði ennfremur að nú
væri talið að um 40.000 börn
dæju daglega í heiminum úr
næringarskorti.
Fulltrúar frá 41 landi sitja
nú fund Barnasjóðs Samein-
uðu þjóðanna í Róm þar sem
ýmsar tillögur um, neyðarað-
stoð fyrir sveltandi börn eru
ræddar.
Norska kvikmyndastjarnan
Liv Ullmann sagði fundarmönn-
um í gær ffá ferð sem hún fór til
Afríkulandsins Mali sem er eitt
af 15 löndum þar sem þurrkam-
ir hafa verið sem verstir. Hún
sagði frá því að hún hefði séð
mæður grafa eftir vatni með
berum höndunum í eyðimörk-
inni en þær hefðu ekki fundið
annað en leðju. Allir sem hún
talaði við sögðust vera hungr-
aðir.
Fulltrúar Barnasjóðsins
segja að þeir þurfi á að giska
102 milljónir bandaríkjadala
til að fjármagna fyrirhugaða
neyðaraðstoð.