NT - 25.04.1984, Síða 6
■ Einar geysist niður brekkuna
Miðvikudagur 25. apríl 1984 6
■ Ingibjörg Árnadóttir með stólalyftuna í baksýn
NT-myndir Ámi Sæberg
A föstudaginn langa í Bláfjöllum
■ Páskahelgin hefur alltaf ver-
ið ein aðalskíðahelgi ársins, og
páskahelgin í ár var þar engin
undantekning. Skíðavika var á
Isafírði, Skíðalandsmót á Akur-
eyri og í Bláfjöllum var fjöldi
fólks á skíðum. Flestir komu á
föstudaginn langa, enda var
veðrið þá langbest. Blaðamaður
og Ijósmyndari NT komu á
svæðið nokkru eftir hádegi, og
urðu að skilja bílinn eftir tölu-
vert langt frá skíðasvæðinu, því
vegurinn var fullur af bílum
langt niður eftir veginum.
Fyrst komum við við í aðal-
húsinu á svæðinu, sem hýsir
stjórnstöð og veitingaskála. Þar
hittum við að máli Þorstein
Hjaltason, stjórnanda svæðis-
ins.
- Hve margir heldurðu að
séu á svæðinu í dag?
„Það eru vel á fjórða þúsund-
ið.“
- Er það metaðsókn?
„Nei, það er búinn að vera
einn stærri dagur í vetur. Mest
komu hérna á sjöunda þúsund
manns. Við erum búnir að ýta
út fyrir páskana, og svo kom
stórhríð í gær, sem eyðilagði
fyrir okkur. Það þýðir ekkert að
ætla sér að gera eitthvað með
einni ýtu, við höfum bara eina
ýtu á svæðinu.“
- Hvenær opnið þið?
„Lyftan opnar 10 og þá byrjar
fólk að koma. Aðstreymið eykst
upp úr 11 og fólkið er síðan til
6, þegar lyfturnar loka. 3 virka
daga í viku er opið til kl. 10 á
kvöldin."
- Hvaðertþúbúinnaðvinna
lengi hér? „I 6 ár.“
- Og hvað vinna margir
hérna?
„Við erum 14 að vinna í dag.
Fast starfslið er 8 manns. Við
erum með 4 lyftur, þar af 2
stólalyftur, og síðan höfum við
tvær barnalyftur þar að auki.
Félögin hafa síðan 4 lyftur og
eina barnalyftu."
- Hvaðersvæðið virktlengi?
„Vel fram yfir miðjan maí.
Við höfum oftast orðið að loka
■ Bömin í Dýragarðinum.
B
Dráttarvélar
Þær eru að koma
Peir sem hafa unnið með KJS gröfum
þekkja [ggg gæðin- og þeir sem eiga
eða hafa átt DAVID BROWN
dráttarvél hitta hér gamlan kunningja.
DAVID BROWN
Eigendur
Nú þegar höfum viö yfirtekið
varahlutalager og þjónustu á
þeim David Brown dráttarvél-
um, sem til eru í landinu.
Eftirtaldar stærðir eru boðnar:
'[m 1194 - 49 hestöfl
:zm 1294 - 62 hestöfl
EH3 1394 - 77 hestöfl
&H3 1494 - 85 hestöfl
[&I3 1594 - 97 hestöfl
Allar þessar vélar er hægt aö fá meö framdrifi.
Vélarnar koma allar með besta útbúnaði. Hús og
aöstaöa stjórnanda er frábær.
Kynnið ykkur verð og greiðslukjör
Járnhálsi 2