NT - 25.04.1984, Qupperneq 10
FRÚIN HLÆR í BETRI BÍL
Range Rover árgerð 1980. Grænn.
Cherokee Chief árgerð 1981.
Range Rover árgerð 1976. Skipti ath.
M Benz 250 árgerð 1979. Bíll með öllu. Skipti.
Cherokee Chief árgerð 1977. Skipti ath.
Range Rover 1974. Skipti ath.
Buick Station með öllu árgerð 1978. Ath. skipti.
Benz Unimog árgerð 1972 6 cyl dísel, vökvastýri,
loftbremsur, spil, gír, tvöfaldur gírkassi yfirfarinn af
Benz.
Range Rover árgerð 1982 4ra dyra. Litur blásans. Ekinn
20 þ.km.
Til sýnis og sölu hjá
Bílasölu Guðfinns
Sími 81588.
líl Mið vikudagur 25. apríl 1984 10
_ M
Dr. Halldór Pálsson,
búnaðarmálastjóri
Fæddur 26. aprfl 1911
Dáinn 12. aprfl 1984
fremst á sviði sauðfjárræktar-
innar, en Halldór var sauðfjár-
ræktarráðunautur Búnaðarfé-
lags {slands frá árinu 1937 til
’ 1962 eða í 25 ár. Mér var það
fljótlega ljóst, að þar var enginn
meðalmaður á ferð. Hann var
fæddur fjármaður, harðglöggur
svo að ótrúlegt mátti teljast, sá
og skildi á augabragði eiginleika
hvers einstaklings, sem leiddur
var fram fyrir hann, og var
ómyrkur í máli að kveða upp
hnífskarpa dóma á stundinni og
kveða þar fast að orði um kosti
og lesti, hver sem í hlut átti.
Lognmolla þekktist aldrei í ná-
vist Halldórs Pálssonar og skal
játað, að mér þótti hann stund-
um full óvæginn í dómum, en
síðar varð mér Ijóst, að Halldór
hafði sem fyrirmynd að framtíð-
ar kindinni íslensku, bestu kjöt-
eiginleika bresku sauðfjárstofn-
annaeinsogt.d. hjásauth-down
og cheviotstofnunum og því var
hér mikið verk að vinna.
Jafnframt sauðfjárráðunauts-
starfinu gegndi Halldór einnig
ýmsum mjög tímafrekum og
vandasömum störfum. Þannig
var hann samtímis sérfræðingur
í búfjárrækt við Atvinnudeild
Háskólans, öll þessi ár, sem
hann var sauðfjárræktarráðu-
nautur og ennfremur for-
stöðumaður Búnaðardeildar-
innar mest allan þann tíma.
Árið 1945 fékk Halldór því
komið í kring, að sett var á stofn
Fjárræktarbúið á Hesti í Borg-
arfirði og starfrækt af Atvinnu-
deild Háskólans og síðar af
Ra.La. Þessi stofnun var undir
yfirstjórn Halldórs í yfir 30 ár
og eftir að hann lét af störfum
sem búnaðarmálastjóri 1980
vann hann ósleitilega að rann-
sóknarstörfum við þá stofnun til
hinstu stundar.
Það er skemmtilegt að hugsa
til þess að Halldóri og samstarfs-
mönnum hans tókst í ræktunar-
starfinu að fá fram einstaklinga,
sem nálguðust mjög að kjötgæð-
um þá fyrirmynd, sem stefnt var
að í upphafi starfsins um 1940.
Fyrir þremur árum var svo kom-
ið á, mest fyrir áeggjan
Halldórs, samstarfi milli allra
sauðfjársæðingarstöðvanna og
Hestbúsins á þann veg, að
stöðvarnar tækju við árlega
afkvæmadæmdum hrútum frá
Hesti og notuðu þá til skiptis á
sæðingarstöðvunum. Meðþessu
móti njóta allir landsmenn fjár-
ræktarstarfsins á Hesti og nú
þegar er komið í ljós, að mjög
mikill árangur ætlar að verða af
þessu starfi.
Til þess að fá ræktunarstarf
sauðfjárins á sem breiðastan
grundvöll vann Halldór að því
að koma á sauðfjárræktarfé-
lögum um allt land, með það að
markmiði að rækta upp samtím-
is í stofninum betra kjöt og ull
um leið og afurðasemi, hreysti
og dugnaður yrði ekki látinn
verða útundan í ræktunarstarf-
inu.
Margar minningar leita á hug-
ann frá þeim tímum, þegar við
Halldór vorum að stofna fjár-
ræktarfélög hér á mínu starfs-
svæði, oft fótgangandi í alslags
veðri og stundum var ekki kom-
ið í náttstað til gistingar fyrr en
þrjú að nóttu. Þessi kraftur og
áhugi kveikti áhugabál meðal
bænda fyrir fjárræktarstarfinu
og það varð almennt og svo
árangursríkt að allir sjáandi fá
það nú séð.
Á fyrstu árum Framhalds-
deildarinnar á Hvanneyri
kenndi Halldór við deildina
sauðfjárrækt og lífeðlisfræði.
Ég held að hann hafi kennt 5
fyrstu árgöngunum sem útskrif-
uðust þaðan. Það féll í minn
hlut að vera prófdómari á
Hvanneyri í sauðfjárrækt þessi
ár, og þori ég að fullyrða, að
þessir piltar voru óvenju vel
undirbúnir að gegna störfum í
sauðfjárrækt, enda hafa margir
þeirra orðið snjallir sauðfjár-
dómarar og velstarfandi ráðu-
nautar. Til viðbótar kom það
líka til, að Halldór fékk marga
unga búfræðinga og búfræði-
kandidata til starfa með sér í
fjárragi og kjötrannsóknum á
Hesti, og þar fengu margir
menn mikilsverða kennslu og
áhugavakningu.
Það er erfitt að hugsa til þess,
að slíkar heimsóknir að Hesti
verða ekki framkvæmdar með
sama hætti framar, þó að ég
treysti því, að sú mikilvæga
starfsemi megi halda þar áfram
og blómgast.
Halldór kom því í kring, að
ísland gengi í Búfjárræktarsam-
band Evrópu. Ég hygg, að ég
hafi ásamt nokkrum starfs-
bræðrum farið 6 eða 7 sinnum á
ársþing þessara samtaka og oft-
ast farið í einhverja fræðsluför
að þinginu loknu. Halldór Páls-
son mætti þarna jafnan og var
þar hrókur alls fagnaðar og í
miklu áliti vegna vísindastarfa
sinna, bæði fyrr og síðar, því að
hann var alltaf duglegur að
skrifa og flytja fyrirlestra við
erlenda háskóla og kynna sínar
skoðanir og störf.
Á þessum árum kynntist ég
því, að meðal erlendra vísinda-
manna á sviði sauðfjárræktar er
vel fylgst með íslenskum rann-
sóknum og skapast hafa tengsl
vináttu og þekkingarmiðlunar
á þessu sviði og átti Halldór
drýgstan þátt í að koma þeim á.
Arið 1962 tók Halldór Páls-
son við starfi búnaðarmála-
stjóra. Hér opnaðist nýtt svið
fyrir fjölþætta hæfileika hans,
og tel ég að Búnaðarfélag ís-
lands hafi aukið mjög mikið
starfsemi sína og vaxið í áliti
þau 18 ár sem Halldór var
búnaðarmálastjóri, en hann
sagði starfinu lausu vegna
heilsubrests árið 1980. Ég og
margir samstarfsmenn hans
sáum eftir honum úr þessu em-
bætti, og hvöttum hann til að
gegna því lengur, en honum
varð ekki þokað. Halldór gat
aldrei hlíft sér í nokkru starfi en
það óttaðist hann, að hann
þyrfti að gera, ef hann héldi
áfram að starfa sem búnaðar-
málastjóri. Hann vissi, að margt
var enn ógert í sambandi við
tilraunastörfin á Hesti í Borgar-
firði, sem hann hafði ætlað sér
að ljúka og svo stóð alltaf til að
sinna ritstörfum meira en tími
hafði gefist til, og að þessu
hefur hann unnið þessi tæplega
fjögur ár, sem liðin eru síðan,
og var hann enn mikilvirkur við
þau störf eins og jafnan áður.
Hann var einnig ennþá í stjórn-
um nokkurra félaga og tók þátt
í ýmsum mikilvægum nefndar-
og stjórnarstörfum.
Sumum þótti Halldór Pálsson
hrjúfur í viðmóti og harður í
horn að taka. Það var hann þó
alls ekki að öðru leyti en þvf, að
hann barðist ætíð hart fyrir því,
sem hann vissi réttast og í ræðu
og riti fékk hið fjölþætta ímynd-
unarafl hans honum í hendur
hárbeitt vopn, sem hann beitti,
ásamt meðfæddum humor og
bersögli, þannig að í svip gat
sviðið undan.
Hitt var miklu ríkari þáttur í
fari hans, hjálpsemi við þá, sem
áttu í erfiðleikum eða stóðu
höllum fæti. Og ekki hef ég
þekkt barnbetri mann en hann,
og vil ég í því sambandi minnast
þess hve góður hann var mínum
börnum, og veit ég að fleiri en
þau hugsa nú til hans þakklátum
huga.
Halldór Pálsson var mikill
gæfumaður og fann það og hafði
orð á því, þó að hann yndi því
að vísu illa að heilsubrestur ylli
því að hann varð að fara varlega
á ýmsan hátt síðustu 20 ár
ævinnar. En hann var sá gæfu-
maður að eignast þá konu sem
hann unni allt frá skólaárum,
Sigríði Klemenzdóttur frá
Húsavík og voru þau einstak-
lega samhent bæði á heimili
sínu, þegar gesti bar að garði og
einnig á ferðalögum, jafnt
innanlands sem utan. Sigríður
var alltaf með Halldóri eftir að
heilsan bilaði og gætti hans og
hjálpaði honum á allan hátt.
Við hjónin vorum oft með
þeirn á ferðalögum bæði hér
heima og erlendis og eigum
margar ógleymanlegar minning-
ar frá þeim ferðalögum. Okkur
verður nú þessa dagana hugsað
til Sigríðar í hennar miklu sorg,
því að hún hefur svo mikið
misst, að engin huggunarorð
finnast. Ekkert nema það, að
Halldór var sá gæfumaður, þrátt
fyrir heilsubrest, að ljúka því-
líku ævistarfi, að líkja má því
við mörg Grettistök, og við
brottfall hans fylgja honum
hvarvetna af landsbyggðinni,
allstaðar að af landinu, innilegar
þakkir og samúðarkveðjur til
allra aðstandenda hans.
Ég kom einu sinni með Hall-
dóri að Guðlaugsstöðum og gisti
þar. Faðir hans var þá enn við
góða heilsu og þeir töluðust
lengi við, því að Halldór var
skilningsgóður á öll vandamál
manna og skepna, bæði heima
á Guðlaugsstöðum og í sveit-
inni. Ég fann þá að þar átti hann
svo djúpar rætur að þær mundu
aldrei slitna. Halldór var alla tíð
sami sveitamaðurinn, sami
Húnvetningurinn. Það sýndi
hann með málfari sínu og hugð-
arefnum. Þó að hann væri einnig
heimsborgari og hann nyti sín
vel í samkvæmislífi höfuðborg-
arinnar og í ráðstefnusölum
heimsborganna, var hugurinn
bundinn átthögunum.
Mér finnst því gott að vita, að
Halldór á nú að leiðarlokum
eftir að halda heim að Guð-
laugsstöðum eftir langa ferð,
frægðarför til annarra landa og
um íslenskar byggðir. Hann
kemur nú heim í föðurtún hlað-
inn heiðri og þökkum samtíð-
armanna sinna.
Hjalti Gestsson
t
Halldór Pálssonfyrrv. búnað-
armálastjóri verður borinn til
moldar í dag. Löngum og heilla-
drjúgum starfsdegi hans er
lokið.
Halldór fæddist á Guðlaugs-
stöðum í Blöndudal 26. apríl
1911, sonur hjónanna Páls
bónda þar Hannessonar bónda
og smiðs á Eiðsstöðum og Guð-
rúnar Björnsdóttur Eysteins-
sonar.
Halldór stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri og
Menntaskólann í Reykjavík og
varð stúdent 1933. Síðan nam
hann við Edinborgarháskóla og
lauk þaðan doktorsprófi 1937.
Þegar Halldór kom heim frá
námi gerðist hann ráðunautur
Búnaðarfélags íslands í sauð-
fjárrækt og gegndi því starfi þar
til hann tók við starfi búnaðar-
málastjóra 1963 sem hann
gegndi til 1980. Halldór var
maður mikillar gerðar. Náms-
ferill hans var mjög glæsilegur
og doktorsritgerð hans grund-
vallarrit sem aflaði honum
viðurkenningar búvísinda-
manna víða um veröld. Jafn-
framt ráðunautsstarfi, var hann
um langt árabil forstjóri við
Atvinnudeild Háskólans. Allan
starfsdag sinn sem ráðunautur
og búnaðarmálastjóri sinnti
hann vísindastörfum, einkum
rannsóknum á sauðfé og eftir að
hann lét af starfi búnaðarmála-
stjóra starfaði hann áfram sem
sérfræðingur við Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins og
hafði umsjón með tilraunabúinu
á Hesti. Halldór var eftirsóttur
fyrirlesari við erlenda háskóla
og dvaldi nokkrum sinnum er-
lendis við fyrirlestrahald og
rannsóknir og eftir hann liggja
margar ritgerðir.
Eins og áður sagði var Hall-
dór ráðunautur Búnaðarfélags
{slands í sauðfjárrækt. Þar fékk
hann geysimiklu áorkað. Ég
hygg að hann hafi mótað ís-
lenska sauðfjárstofninn að veru-
legu leyti á starfstíma sínum
með óvanalegri glöggskyggni og
hann mótaði einnig smekk
Lokað vegna jarðarfarar Skrifstofur okkar verða lokaðar í dag mið- vikudaginn 25. apríl vegna jarðarfarar dr. Halldórs Pálssonar fyrrverandi Búnaðar- málastjóra. Búnaðarfélag íslands