NT


NT - 25.04.1984, Síða 11

NT - 25.04.1984, Síða 11
 Miðvikudagur 25. apríl 1984 11 flestra fjáræktarmanna og leið- beinenda í sauðfjárrækt. Hall- dór var flóðmælskur og orðfær í besta lagi, hugsaði hratt og talaði hratt en gætti þess alltaf að halda athygli viðmælenda sinna vakandi, hann hafði yndi af að leiðbeina og gerði það með mjög persónulegum hætti. Búnaðarfélagið efnir til sauð- fjársýninga í öllum sveitum landsins á nokkurra ára bili. Halldór var alla sína tíð sem ráðunautur, dómari á flestum þessum sýningum. Hann hafði einstakt lag á því að gera þær eftirminnilegar. Neytti hann þess þá að hann var allra manna skemmtilegastur og orðsnjall- astur þannig að menn lögðu leiðbeiningar hans á minnið og höfðu þær heim með sér. Halldór var mjög búhneigður og hefði án efa getað orðið mikill fyrirmyndarbóndi hefði hann gert það að lífsstarfi sínu. Hann var fjárglöggur svo af bar og mjög minnugur á sauðfé. Þann eiginleika hafði hann frá Páli föður sínum. Þeir höfðu báðir einstakt lag á því að gera allt fjárrag að hátíð og fagnaði og það er mér ógleymanlegt að vera með þeim feðgum báðum saman í fjárragi, þá vai stórhá- tíð. Þegar Halldór tók við starfi búnaðarmálastjóra naut sín mjög vel búmennska hans. Hann hafði til að bera stjórn- semi og hagsýni ásamt með framsýni og framkvæmdavilja. Halldór átti því láni að fagna að eiga góða samstarfsmenn hvar sem hann lagði hönd að verki og hafði enda gott lag á því að starfa með öðrum enda skap- gerðin hans lipur og lundin glöð. Þjóðmál lét Halldór að sjálfsögðu til sín taka. Hann var félagshyggju- og samvinnumað- ur, þjóðlegur í hugsun og úr- ræðum. Hann átti lengi sæti í miðstjórn Framsóknarflokksins og lét þar margt til sín taka og eins og annarsstaðar var á hann hlustað þegar hann beitti brandi sínum. Halldór var óvæginn í ræðu- stól, stórorður og hittinn, en ætíð glaður og drenglyndur þannig að honum fyrirgafst undra margt að orrustu lokinni. Fjölbreyttur og annasamur starfsdagur er á enda. Halldór hlífði sér hvergi, var sístarfandi og gekk að hverju starfi með eldlegum áhuga. Hann var allra manna fljótastur að skilja og minnugur svo af bar og lundin svo glöð, hugurinn svo vakandi að hæfileikarnir nýttust með ágætum. í einkalífi sínu var Halldór gæfumaður. Hann giftist Sigríði Klemensdóttur frá Húsavík. Sigríður er mikil afbragðskona, bráðgreind, skoðanagóð og skemmtileg. Þau hjón voru mjög samhent og samrýmd og áttu sér gott heimili. Fyrir mörg- um árum fór Halldór að kenna sjúkleika enda var honum ósýnt um það að hlífa sjálfum sér. Þá kom til kasta Sigríðar að hafa vit fyrir bónda sínum og þess er ég fullviss að mörg seinustu árin af starfsævi Halldórs eigum við Sigríði að þakka. Ungur fór Halldór að heim- an, hann fékk miklu áorkað íslenskum bændum og þjóð sinni allri til heilla. Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í dag, síðan verður hann borinn til moldar í heimagrafreit á Gúðlaugsstöðum, þá er hann kominn aftur heim. Við vandamenn hans sem þekktum hann best, vorum stolt af honum meðan hann lifði og söknum hans þegar hann er alltur. Við vottum Sigríði inni- legustu samúð okkar. Páll Pétursson. t Með Halldóri Pálssyni er fall- inn frá einn fjölmenntaðasti for- ystumaður bændasamtakanna. Störf hans innan þeirra eru samt ekki hvatinn að fáeinum kveðjuorðum við fráfall hans, heldur störf hans að samgöngu- málum þjóðarinnar og skipu- lagningu þeirra. Halldór átti sæti í skipulags- nefnd fólksflutninga um tveggja áratuga skeið, allt til dauðadags sem fulltrúi Búnaðarfélagsins. Hann var þeirrar skoðunar og fór ekki dult með, að bætt vegakerfi, betri samgöngur væri undirstaða aukinnar hagsældar á verklegu og menningarlegu sviði. Halldór var traustur málsvari dreifbýlisins þegar rætt var um skipulagningu sam- gangna, og lagði ríka áherslu á að skipulag þeirra miðaði ekki síst að auknu öryggi fyrir íbúa viðkomandi byggðarlaga á sem flestum sviðum. Halldóri var örugglega ljós- ara en flestum öðrum hversu afgerandi þáttur fyrir búsetu í mörgum sveitum landsins er að á samgöngumálin sé horft með þá staðreynd í huga af viðkom- andi ráðamönnum. Það var mjög ánægjulegt að eiga við hann samvinnu og samstarf, maðurinn var fjölgáf- aður og sá gjarnan fyrstur manna ljósari fletina á erfiðum úrlausnarefnum. Hann var manna tillitssamastur þegar þeir áttu í hlut er þurftu liðveislu og ráku mál sín hispurslaust og án hliðarleiða. Nú þegar leiðir skilja, er okk- ur sem með honum störfuðu í Skipulagsnefnd fólksflutninga og starfsfólki efst í huga þakk- læti fyrir ánægjulegt og lær- dómsríkt samstarf á liðnum árum. Eftirlifandi eiginkonu hans Sigríði Klemensdóttur vottum við dýpstu samúð. Einar Ögmundsson. Er stíflað Fjarlægjum stíflur úr vöskum W.C. rörum, baö- körum og niðurföllum. Notum ný og fullkomin tæki. Skolphreinsun. Ásgeir Halldórsson - Siguröur Guðjónsson símar 71793-71974 - þjónusta allan sólarhringinn. Tilboösverö Svalahuröir úr oregonpine meó i| lœsingu, húnum og þéttilistum. Verö írá kr. 5.654,- Útihuröir úr oregonpine. Verö írá kr. 6.390,- l ' Bílskúrshuröir, im TlTTI 9lu99ar °9 gluggaíög. ailllllú Gildir til 1.05.84. TRÉSMIÐJAN MOSFELL H.F HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06 'T) t _s ieðToshiba rbylgjuofn’ -yl*r* parar )ú minnst 50% af raf á matreiðslunámskeið rinnst boð parestveit án sssksm; Ssfea.-^ SEET 3g síðast en þanntímasem * _ / 1. X — Htr\ ntður amatarútgjoiuij- i hér um bilekkl ne' Toshiba ð,bJ)®"[íjSíreifing» meM"'Ts"meSb^- Deltawave, sem e venid»ð.Mk»»m” „esta sndningstekut á5,gShSisofna-«tom,n þjónusta. foSHlBA Hlífóorfatnaður fró Sjókiœðagerðinni: I>róaður til að mæta kröfum isienskra sjómanna við erílðustu aðstæður. VINVL glóhnn o- ____________________-__i>raelstcrkir vinyihúðaðtr vinnuvettiíngar SEXHU CG SEX NORÐUR með sérstSkum gripfleti scm gefur gott tak. Skúlogötu 5! Sími 11520

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.