NT - 25.04.1984, Síða 12
Miðvikudagur 25. april 1984 1 2
mrrm
■ Unnið við að leggja síðustu hönd á filmurnar fyrir plötugerðina á ellefta tímanum í gærmorgun.
-NT-myndir Árni Sæberg
Algeng sjón á götum Reykjavíkur í gær.
NT á gótuna í fyrsta sinn
MÓTTÓKURNAR
STÓRKOSTLEGAR
■ Óhætt er að fullyrða, að NT „hafi átt“ ísland í gær, þegar
blaðið kom í fyrsta sinn á götur landsins. Hvarvetna mátti sjá NT
merkið í bláu og gulu litunum; í söluturnum, götuhornum,
stórverslunum og öðrum almenningsstöðum. Við á NT höfðum
reyndar búist við viðbrögðum, en aldrei jafn hressilegum og raun
bar vitni. Móttökur almennings fóru svo mikið fram úr jafnvel
björtustu vonum, að um tíma þoldi símakerfið okkar ekki álagið,
þannig að blaðið var sambandslaust við umheiminn í nokkrar
mínútur. Sem dæmi um viðbrögðin má nefna tvær einfaldar
staðreyndir: I gær scldust um 40 þúsund eintök af NT og á annað
hundrað nýir áskrifendur bættust við. Við á NT þökkum ykkur
Islendingar.
Mikil spenna
Strax á áttunda tímanum í
gærmorgun var mætt frítt og
föngulegt lið upp á skrifstofur
NT til að leggja síðustu hönd á
fréttir og undirbúningsvinnu.
Að því loknu hófst hin marg-
brotna filmu- og plötugerð í
prentsmiðjunni Blaðaprent.
Á ellefta tímanum var byrjað
að koma prentvélum fyrir-
tækisins af stað og hinir fjöl-
mörgu, sem höfðu lagt hönd á
plóginn söfnuðust saman til að
fylgjast með þegar fyrstu blöð-
in spýttust út úr vélinni. Mikil
spenna var í öllum, enda auð-
skiljanlegt því menn voru
þarna að sjá í fyrsta sinn árang-
ur af margra mánaða undir-
búningsvinnu, sem hafði kost-
að mikinn svita og ekki fá
tárin.
Alltáfullu
Strax og fyrstu blöðin voru
komin út úr vélinni fór pökk-
unardeildin af stað og með
ótrúlega hröðum höndum var
talið og pakkað fyrir hina
margvíslegustu staði úti á landi,
því enga einustu mínútu mátti
missa, ef okkur ætti að takast
að ná í mikilvægar flug- og
áætlunarbifreiðaferðir út á
land. Jafnhliða þessu var byrj-
að að afgreiða þau eitt hundrað
blaðsölubörn, sem höfðu safn-
ast saman í afgreiðslunni.
Starfsmenn NT, blaðamenn
jafnt sem skrifstofufólk, hjálp-
aði síðan til að aka börnunum
á eigin bifreiðum á þá staði,
sem voru líklegir til að gefa af
sérgóða sölu. Samstarfsandinn
í fyrirtækinu var algjör.
Samhliða öllum þessum
látum fóru sendibílar okkar af
stað með blaðapakka í sölu-
turna höfuðborgarsvæðisinsog
í hádeginu má segja, að íbúar
svæðisins hefðu átt að geta
keypt sér NT svo til alls staðar,
þ.e. nema þar sem NT var
þegar uppselt. Slíkt átti sér all-
oft stað.
Margar ótrúlegar
sögur
í öllum þessum látum áttu
sér stað margir sérkennilegir
og skemmtilega ánægjulegir
atburðir. Einn af fyrstu guttun-
um, sem komst með blöð niður
í miðbæ, þurfti að leggja á
flótta undan nokkrum
ágengum væntanlegum kaup-
endum. Guttinn slapp, en
sagðist samt ætla halda áfram
að selja NT, þrátt fyrir öll
lætin.
Strax í hádeginu byrjuðu
umboðsmenn víða að af land-
inu að hringja upp á blað til að
ýta á eftir sendingunum. Slíkur
var þrýstingurinn á þá orðinn
frá spenntum lesendum.
Sendibifreið fór með blöð í
nokkrar sjoppur í Reykjavík
og áður en hún var komin úr
ferðinni, voru þær verslanir,
sem fyrst fengu blaðið, byrjað-
ar að hringja eftir fíeiri
blöðum. Og ástæðan var alltaf
sú sama: NT ER UPPSELT.
Frá ísafirði bárust líka
skemmtilegar fréttir. Finn-
bogi, umboðsmaður og ljós-
myndari NT á staðnum,
hringdi með hraði skömmu
eftir hádegi, því blaðið var
þegar uppselt. í snarhasti var
fleiri blöðum komið til hans
með næstu vél vestur.
Bara byrjunin
Við á NT viljum nota þetta
tækifæri til að þakka þjóðinni
fyrir þessar hressilegu mót-
tökur. Fað var kominn tími til
að setja eitthvað nýtt á íslensk-
an blaðamarkað. Og íslend-
ingar sýndu það vel, að þeir
eru móttækilegir fyrir nýjung-
um.
Vitanlega var þetta bara
byrjunin og hinn raunverulegi
árangur kemur ekki í Ijós fyrr en
seinna. Þangað til getur liðið
langur tími, en við vonum
auðvitað öll, að móttökurnar í
dag séu merki þess sem koma
skal.
■ Óli blaðasali: „Það er bara rúm fyrir eitt þlað á íslandi“. En
hvaða blað?