NT - 25.04.1984, Qupperneq 13
Miðvikudagur 25. apnl 1984 1 3
Málsvari frjálslyndis,
samvinnu og félagshyggju
Útgefandi: Nútíminn h.f.
Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm)
og Þórarinn Þórarinsson
Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Síðumúli 15, Reykjavík. Sími:
86300. Auglýsingasími: 18300.
Kvöldsímar: 86387 og 86306.
Verð í lausasölu 25 kr.
, Áskrift 250 kr.
r|1T'AIV'V"|%T Setning og umbrot: Tæknideild NT.
M. 1 ^ Prentun: Blaðaprent hf.
Þekkingin
er undirstaðan
■ Ef fylgzt er með þeirri umræðu, sem nú fer fram í
heiminum um atvinnumál og kennslumál, má óhætt telja
tillögu Tómasar Árnasonar og fleiri Framsóknarmanna
um tengsl fræðslukerfis og atvinnulífs meðal merkustu
mála, sem nú liggja fyrir Alþingi.
í flestum ríkjum er nú rætt um meiriháttar breytingar á
fræðslukerfinu, sem gangi í þá átt að því verði beint meira
í þjónustu atvinnulífsins en verið hefur um skeið.
I Bandaríkjunum er þetta eitt helzta kosningamál
beggja aðalflokkanna. Hin nýja stefna, sem Gary Hart
boðar, felst ekki sízt í því, að hann boðar róttækastar
breytingar á fræðslukerfinu, sem stuðli að því, að
Bandaríkin hafi forustu í framleiðni og hagræðingu og geti
því haldið uppi samkeppni á heimsmarkaðnum, án þess
að grípa til hafta. Síðustu árin hafa Bandaríkin dregizt
aftur úr Japönum og Vestur-Evrópu hvað snertir fram-
leiðni og vinnuafköst á ýmsum sviðum.
Sama er sagan í Sovétríkjunum. Fyrsta verk hins nýja
valdhafa þar, Chernenkos, hefur verið að boða róttækar
breytingar á skólakerfinu. Skólaskyldan verður lengd um
eitt ár og skólarnir meira tengdir við atvinnuvegina.
■ Eins og fleiri voru þeir Örlygur Sigurðsson, listamaður, Guðmundur Ingi Kristjánsson, skáld og Jóhannes Stefánsson
framkvæmdastjóri frá Neskaupstað, ánægðir með nyja blaðið.
■ NT var vel tckið á Akureyri um hádegisbilið í gær þegar lausasala
hófst. Hér má sjá Helga M. Bergs bæjarstjóra, lesa eitt fyrsta blaðið
sem selt var nvrðra.
Hertókum
Reykjavík
með stæl
Kjartan Ásmundsson dreifingar-
stjóri NT ánægður með viðtökurnar
■ „Þetta er gott blað og við-
tökurnar voru í samræmi við
það. Upplagið seldist svo til
upp,“ sagði Kjartan Ásmunds-
son dreiflngarstjóri NT, þegar
við spurðum hann hvernig
móttökur fyrsta tölublað nýja
blaðsins hefði fengið í gær.
„Þetta var meiriháttar dagur,“
sagði hann.
Kjartan sagði, að salan hefði
gengið svona vel, bæði í
Reykjavík og úti á landi, en
þangað hefði blaðið farið með
fyrstu hugsanlegu ferðum og
það hefði verið komið á helstu
þéttbýlisstaði uppúr hádeginu.
Um eitt hundrað sölubörn
buðu NT á götum Reykjavíkur
í gær og gekk þeim mjög vel,
seldu nær öll blöðin. Sömu
sögu er að segja úr söluturnun-
um og báðu margir um meira.
„Ástæðan fyrir því að þetta
gekk svo fljótt og vel fyrir sig
er sú, að margir lögð hönd á
plóginn og stóðu sig allir með
mikilli prýði, hvort sem það
voru blaðsölukrakkarnir, af-
greiðslufólkið eða aðrir sem
að blaðinu stóðu.
■ Kjartan Ásmundsson,
dreifíngarstjóri NT.
NT-mynd Árni Sæberg.
Viðtökurnar gefa okkur
ástæðu til að vera bjartsýnir.
Þetta var okkar D-dagur og
við hertókum Reykjavík með
stæl,“ sagði Kjartan Ásmunds-
son dreifingarstjóri NT.
I þriöja heiminum gætir þe&sa sjónarmiðs ekki minna.
Þar hefur fengizt sorgleg reynsla af því, að það nægir ekki
að fá stór erlend lán og mikið fjármagn til framkvæmda.
Það er þekkingin, sem er sá grundvöllur, sem allt byggist
á. Þegar hana brestur fer illa.
Samkeppnin á sviði atvinnulífsins fer síharðnandi og þar
mun sigurinn falla í skaut þeim, sem ráða yfir mestri
þekkingu.
Þess vegna verður í framtíðinni að beina fræðslukerfinu
meira inn á þá braut að vera í lifandi tengslum við
atvinnulífið. Þetta gildir ekki minnst á sviði háskóla-
menntunar, eins og rakið er í tillögu Tómasar Árnasonar
og félaga hans.
Margir stúdentar eru nú í efa um, hvert þeir eigi að
stefna, því að víða er nú offramleiðsla á þeim sviðum, sem
mest stund hefur verið lögð á að undanförnu. Þetta getur
breytzt, ef fleiri tækifæri yrðu sköpuð á sviði atvinnulífsins.
í þessu sambandi er t.d. ekki úr vegi að geta þess, að
Farmanna- og fiskimannasamband íslands hefur hafið
máls á því við stjórnarvöld, að hugað verði meira að
menntunarmálum sjómanna í heild, t.d. með aukinni
samvinnu skóla, sem nú eru starfræktir á því sviði.
Alþingi ber því vissulega að taka vel tillögu Tómasar
Árnasonar og félaga hans og menntamálaráðherra þarf að
fylgja fast eftir.
Dropinn holar
steininn
Hin svokallaða friðarvika tókst betur en flestir þorðu að
vona. Þátttaka mátti heita góð. Þeir, sem vikuna sóttu,
eru áreiðanlega margs vísari um þessi mál eftir en áður.
Það var ekki sízt ánægjulegt við friðarvikuna hversu
mörg samtök stóðu að henni. Það sýnir, að meginþorri
þjóðarinnar er fylgjandi þeirri stefnu, að þegar verði
stöðvuð uppsetning allra kjarnavopna og smáþjóðum eins
og Hollendingum ekki þröngvað til að taka við þeim gegn
vilja sínum.
Ýmsir hafa orðið til þess að láta í ljós þá skoðun, að
svona starfsemi hafi ekki mikla þýðingu. Þetta er misskiln-
ingur. Það gildir hér eins og víðar, að dropinn holar
steininn.