NT


NT - 25.04.1984, Side 16

NT - 25.04.1984, Side 16
Hallar undan fæti hjá Debbie Harry? Hún segist vera laun dóttir Marilyn Monro ■ Það var árið 1977, að Debbie Harry, söngkona Blondie, geystist fram á sjónarsviðið eins og hvítur stormsveipur og tók rokkheiminn með áhlaupi. Aðdáendur hennar stóðu á öndinni og vissu eiginlega ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Þá var hún 31 árs gömul. legu sögur um mig. Hvað með það, þó að leiksýningin á Broad- way hafi fallið, eða vídeó- myndin þyki ekki merkileg. Ég hef þó leikið á sviði á Broadway og í kvjkmynd og það er meira en flestir aðrir geta hrósað sér af. ■ Debbie Harry fyrr. og nú. En mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim 7 árum, sem liðin eru. Nú þykir ýmsum sem allur vindur sé úr Debbie og velta því fyrir sér, hvort ástæð- an sé sú, að hún er farin að sjá hilla undir fertugsafmælið, eða hvort hún sé í öngum sínum yfir þcim ógöngum, sem þeim sýnist hún komin í á frama- brautinni. - Það er langt frá því að ég sé að gefast upp, scgir Debbie sjálf, enda heldur hún því fram að hún sé laundóttir Marilyn Monroe og oft hafi móðir hennar komist í hann krappann. - Ég hef það á tilfinning- unni að einmitt nú sé eitthvað í þann veginn að gerast, alveg eins og ég fann það á mér, þegar Blondie var um það bil að slá í gegn. Ég er núna að vinna að sóló-plötu og ég samdi textann við eitt lag í nýjustu mynd Als Pacino, Scarface. Þeir, sem hafa séð Debbie nýlega, hallast þó að því, að nú hafi verulega hallað undan fæti hjá henni. Þeir segja hana liafa gjörbreytt um útlit, og ekki til hins betra. Ljósa hárið, sem einu sinni var einkenni hennar, hefur nú orðið að vfkja fyrir réttum háralit, sem reynist vera svartur. Og hún er orðin þrútin í andliti, já og reyndar um allan skrokkinn. Sumir vilja hreinlega kalla það, að hún sé orðin feit, en hún gefur þá skýringu, að hún hafi lagt hart að sér við að byggja upp vöðvana mánuðum sarnan fyrir hlutverk glímu- konu, sem hún fór með á Broadway í fyrra. Reyndar fór svo, að leikritiö var ekki sýnt nema einu sinni, og hlýtur það að nálgast met á sinn hátt, en það tók langan tíma fyrir vöðv- ana að átta sig á því, að þeir þurftu ekki að takast á við það hlutverk, sem þeir höfðu verið byggðir upp fyrir, nema þessa einu kvöldstund. Ekki tókst betúr til, þegar Debbie hugðist hasla sér völl í vídeóheiminum nú fyrir skemmstu. Hún tók þátt í vídeómynd, sem átti að vera ádeila á hryllingsmyndir þær, sem grassera á myndböndum, en ekki tókst betur til en svo, að hennar mynd þótti síst gefa hinum eftir I ógeðslegum at- riðum. Því var það, að þegar hún heimsótti Éngland til að auglýsa myndina, var henni tekið vægast sagt illa. Þrátt fyrir allar þessar ófarir upp á síðkastk' er Debbie Harry ekki á þvi aó gefast upp. Hún segir: - Þaó er eitthvað að þessum blaöamönnum, sem skrifa allar þessar andstyggi- John Travolta og Olivia Newton-John leika saman aftur í kvikmyndinni „TWO OF A KIND“ Hundaveður! ■ Þó að Marma Duke, sem er stór hundur af Dana-kyni (Great Dane), sé stæðilegur og stór, þá er hann viðkvxmur fyrir kulda, og því var eigandi hans svo hugsunarsamur að lána honum pevsu. Eiginlega hefði Marma Duke þurft að fá tvær peysur til að honum kólnaði ekki á afturendanum! ■ Þegar þau John Travolta og Olivia Newton-John léku saman í Grease fyrir 5 árum urðu þau góðir vinir. Þau hafa oft síðan ráðgert að vinna aftur saman að kvikmynd, þar sem þeim tókst svo vel hér um árið. Úr því hefur samt ekkert orðið þar til nú, að kvik myndin „Two of a Kind“ var gerð i Hollywood.'Travolta leikur í myndinni uppfinningamann, sem lendir í klónum á okrur- um, þar sem uppfinningar hans leiða ekki til gróða strax. Hann verður svo aðþrengdur, að hann ætlar að reyna bankarán, en í bankanum vinnur stúlka sem hann verður hrifinn af - og hún er leikin af Oliviu Newton-John... og svo heldur sagan áfram. Grease varð hrein gullnáma fyrir kvikmyndafyrirtækið, því hún var sýnd um allan heim fyrir fullu húsi langtímum saman. Hvort „Tvö eins“ verð- ur jafnsigursæl á eftir að koma Jaqueline Onassis hyggst ekki giftast oftar ■ Jacqueline Bouvier- Kennedy-Onassis hefur þegar orðið að þola þá þungu raun að verða tvisvar ekkja. En þar sem hún þykir hinn besti kvenkostur, auðug, fögur og fræg, og er ekki nema 54 ára gömul, er stöðugt verið að gera þvi skóna, að hún láti sér ekki nægja ekkjustandið til eilífðar. Jackie er nú búin að lýsa því yfir, að hún hafi hreint engan hug á því að giftast oftar. Hún sé ánægð með lífið og tilveruna eins og er, og það sé henni nægt verkefni að fylgjast með uppvexti barna sinna, Caroline og Johns yngri, auk þess, sem hún sé í mjög ánægjulegu starfi sem útgáfustjóri stórs bókaút- gáfufyrirtækis. En Jackie hefur fleira fyrir stafni en að sinna tveim fyrr- nefndum verkefnum. Hún átti t.d. drjúgan hlut að því að gömlu járnbrautarstöðinni á Manhattan, Grand Central Station, var hlíft, þegar stóð til að rífa hana niður og byggja nýja. Og nú er hún farin að beita sér fyrir nýju húsfriðun- arverkefni á Manhattan. Hún ætlar að hindra að hin þekkta St.Bartholomew kirkja verði rif- in og í staðinn reist 59 hæða skrifstofuhús. ■ Jackie Onassis var boðið í lestarferð frá Grand Central járnbrautarstöðinni á Manhattan til Albany, höfuðborgar New York-ríkis, í virðingarskyni við þann áhuga, sem hún hefur sýnt á því að koma í veg fyrir að þessi gamla járnhrautarstöð verði rifin. Má búast við að henni verði áhugamálum sínum til fram- vel ágengt, enda er hún þekkt dráttar, og áhrif hefur hún að því að beita áhrifum sínum, víða. - enda hefur hún nóg önnur áhugamál!

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.