NT - 25.04.1984, Síða 24
60 ný vígorð
■ íbúar Sovétríkj-
anna þurfa ekki að hafa
mikið fyrir því að
mynda sér skoðanir.
Æðstráðendur í Kreml
sjá um allt slíkt umstang
fyrir þá og nú hafa verið
tilkynnt 60 ný slagorð
sem vísa almenningi
veginn. Megininntak
þeirra er að sovéskir
borgarar eigi að leggja
harðara að sér við vinn-
una og að stöðva beri
herskáa utanríkisstefnu
Bandaríkjanna. Hin
nýupphugsuðu slagorð
munu borin á borðum í
göngum um borgir og
útvarpað um ríkið allt.
■ HEIMSÓKN Reagans
forseta til Kína var bersýnilega
ákveðin á sínum tíma með
tilliti til þess, að hún gæti orðið
eins konar framlag í kosninga-
baráttunni, sem í raun er hafin,
þótt forsetakosningarnar fari
ekki fram fyrr en í byrjun
nóvember.
Vel heppnað ferðalag Reag-
ans til Kína gat vissulega orðið
gott upphaf kosningabarátt-
unnar. Við það miðuðust tíma-
ákvarðanir og annar undirbún-
ingur.
Reagan hefur búið sig undir
Kínaferðina með svipaðri ná-
kvæmni og þegar hann var að
æfa erfið kvikmyndahlutverk
áður.
Fyrirfram vissi Reagan ekki
mikið um Kína. Síðustu vik-
urnar hefur hinn rúmlega sjö-
tugi forseti keppzt við að læra
um Kína eins og áhugasamur
táningur, sem er að búa sig
undir erfitt próf.
Reagan hefur fengið marga
sérfræðinga í málum Kína til
fundar við sig og ekki sízt þá,
sem taldir voru vel heima um
siðvenjur Kínverja og hugsun-
arhát't. Reagan mátti ekki láta
neitt koma sér á óvart. Hann
mátti hvergi leika af sér. Öll
framkoma hans varð að bera
merki þess, að hann væri vand-
Brasilía:
■ í norðausturhéruðum Brasi-
líu búa 30 milljónir manns og
margir þeirra við sult og seyru
og fjölgar sífellt þeim sem flosna
upp og sækja til borga og bæja
í von um atvinnu, eða að
minnsta kosti mat. En ríkis-
anna. 1 Ohio fer fram svipuð
skðanakönnun 8. maí, sem
ráða mun skiptingu 140 kjör-
manna. Bæði þessi ríki sendá
fleiri kjörmenn á flokksþingið,
sem velur forsetaefnið, en þeir
verða valdir með öðrum hætti.
Síðan prófkjörunum í New
York (3. apríl) og Pennsyl-
vaníu (10. apríl) lauk, báðum
með sigri Mondales, hefur bar-
áttan milli þeirra Harts og
Mondales haldið áfram með
svipuðum hætti og áður.
Mondale hefur haldið uppi á-
rásum á Hart og reynt að færa
rök að því, að hann væri
óreyndur og laus í rásinni.
Þetta virtist bera talsverðan
árangur í New York og Penn-
sylvaniu og því ekki óeðlilegt,
þótt Mondale haldi þessari iðju
áfram.
Hart hefur hins vegar ekki snú-
izt til verulegra andsvara, held-
ur látið sér nægja að segja um
Mondale eins og áður, að hann
tilheyrði fortíðinni. Hart hefur
jafnframt lagt vaxandi áherzlu
á þann málflutning, að hann
væri maður nýs tíma og nýrrar
stefnu.
Gallinn á málflutningi Harts
hefur verið sá, að honum hefur
ekki tckizt að gera nægilega
ljósa grein fyrir hinni nýju
fóíkið væntir lítillar aðstoðar
frá ráðamönnum í suðri.
í síðasta mánuði féll regn á
skrælnaða jörð og bændur sáðu
en hvort veðurguðirnir verða
þeim hliðhollir á meðan korn og
önnur matvæli eru að vaxa og
þroskast er engu hægt að spá
um.
Tölur um hungsursneyð og
þá sem farist hafa af skorti og
sjúkdómum sem rekja má til
ástandsins liggja ekki fyrir, en
það segir sína sögu að barna-
dauði er um 25%.
Sudene nefnist þróunarstofn-
un sem fyrir aldarfjórðungi var
sett á stofn til að skipuleggja
aðgerðir til að þróa atvinnuvegi
og bæta ástand norðausturhér-
aðanna. Hún hefur ekki af öðru
að státa en að hafa vaxið í mikið
skriffinnskubákn og undanfarin
ár hefur stofnunin útdeilt lítil-
mótlegum bótum til að halda
lífi í þeim sem verst eru staddir.
Neyðaráætlun var samin og
samkvæmt henni fá 2.7 milljónir
heimilisfeðra upphæð sem svar-
ar 12 dollurum á mánuði og
vinna þeir við lítt arðbæra at-
vinnubótavinnu, svo sem að
leggja vegi með handverkfærum
°g byggja stfflur sem ekkert
vatn fyllir að.
Kosningabarátta stendur nú
yfir vegna væntanlegra forseta-
kosninga í Brasilíu og ekki vant-
ar loforðin hjá frambjóðendum
að stuðla að félagslegum um
bótum á norðaustursvæðunum.
Einn þeirra ætlar að koma á
stofn sérstöku ráðuneyti til að
annast þau mál og annar býður
betur og lofar að setja á fót sex
ráðuneyti sem taka eiga að sér
þetta verkefni. Herforingja-
■ Hart er búinn að setja upp Texashattinn.
stjórnin er vanbúin að mæta
þörfum þessa fólks. Mikið fé
hefur verið lagt í iðnað og
tæknivædda atvinnuvegi í
suðurhluta Iandsins en norð-
austurhlutinn orðið útundan.
síst bætir úr skák að í fimm ár í
röð hafa þurrkar valdið upp-
skerubresti.
Fólk sækir í borgirnar en þar
er ekki að neinu að hverfa og
veldur þetta ástand sífelldum
óeirðum og uppþotum. Hungr-
aður lýður fer ránshendi um
verslanir og korngeymslur og
upplausn ríkir. Stjórn landsins
hefur lítið sem ekkert aðhafst til
að bæta úr þeim ógöngum sem
þessi stóri og fjölmenni lands-
hluti er kominn í, en það hefur
reyndar ekki verið gert lengi og
Einn mesti kornútflytjandi
heims, en hungursneyð ríkir
Hörð keppni Mondales og
Harts í Texas og Ohio
Reagan í kosningaferðalagi í Kína
anum vaxinn jafnt í stóru sem
smáu. Hann mátti hvergi leika
of eða van.
Meðal þeirra manna, sem
Reagan fékk til fundar við sig,
voru þrír fyrrverandi forsetar
Bahdaríkjanna, Nixon, Carter
og Ford, en þeir hafa allir
heimsótt Kína meðan þeir
gegndu forsetaembættinu.
Alls mun Reagan dvelja sex
daga í Kína og meðan mun
meginathygli fjölmiðla í
Bandaríkjunum og raunar
víðsvegar um heim beinast að
ferðalagi hans þar og við-
ræðum hans við leiðtoga Kín-
verja. Eitthvað alveg óvenju-
legt þarf að gerast, ef aðalat-
hyglin á ekki að beinast að
Reagan næstu dagana.
ÞAÐ ER mikil spurning
hvort þeir Mondale og Hart
hafa ekki ástæðu til að fagna
því, að þeir verða miklu minna
í sviðsljósinu en ella þann
tíma, sem Reagan verður í
Kína. ÞeSsa dagana munu þeir
heyja harða baráttu um kjör-
menn í tveimur stórum
fylkjum, Texas og Ohio.
í Texas mun fara fram 5.
maí eins konar skoðana-
könnun, sem ræður því
hvernig 154 kjörmenn munu
skiptast milli frambjóðend-
stefnu, a.m.k. virðist almenn-
ingi ekki hafa orðið það nægi-
lega Ijóst. Undanfarið hefur
hann því einkum snúið sér að
því, að leitast við að skýra þessa
stefnu sína betur. Það mun
sennilega koma í Ijós í Texas og
Ohio, hvernighonum hefurtek-
izt það.
STYRKUR Mondales hefur
byggzt á því, að flokkskerfi
demókrata styður hann miklu
meira en Hart, en jafnframt
telja þeir, sem lakari stöðu hafa
í þjóðfélaginu, hann hliðhollari
sér en Hart er. Þar er um að
ræða blökkumenn, þótt flestir
þeirra kjósi nú Jackson, Mexik-
ana, litað fólk frá karabísku
eyjunum og gamalt fólk, en
Mondale hefur beitt sér fyrir að
bæta tryggingakerfið. Þá hallast
kvenréttindakonur meira að
Mondale en Hart.
Hart hefur hins vegar enga
slíka hópa sér til stuðnings.
Mestur stuðningur hans virðist
vera hjá menntafólki á miðjum
aldri og óflokksbundnum kjós-
endum. Vegna þess er hann
talinn líklegur til að verða Reag-
an skæðari keppinautur en
Mondale. Skoðanakannanir ■ Kínaferðin er þáttur í kosningabaráttu Reagans.
Wrarinn Þórerinsson, ritstjóri,
virðast ekki benda til þess, og
hvorugur þeirra Mondales eða
Harts er llklegur til að sigra
Reagan, eins ög staðan er nú,
en margt getur breyzt á sex
mánuðum. T.d. getur gangur
mála í Mið-Ameríku og Austur-
löndum nær breytt miklu.
Hart byggir vonir sínar á því,
að hann sé fylgissterkari en
Mondale í vesturríkjum Banda-
ríkjanna, þar sem mestu mun-.
ur um Kaliforníu, sem hefur um
300 kjörmenn. Gallinn er sá, að i
þar verður síðasta prófkjörið og
því kemur ekki í ljós fyrr en í
Íokin hver er sterkastur þar.
Úrslitin geta verið nokkurn veg-
inn ráðin, þegar þangað
kemur.
Fulltrúar á flokksþinginu,
sem velur frambjóðandann,
verða um 4000. Mondale er
þegar búinn að tryggja sér um
1100, en 1957 þarf til þess að
ná kosningu á flokksþinginu.
Hart hefur orðið um 600
kjörmenn, en Jackson tæp 200.
Um 400 kjörmenn, sem þegar
hafa verið kosnir, eru óbundnir
eða hafa lofað öðrum stuðningi
en þremenningunum. Eftir er
að kjósa um 1600-1700
kjörmenn.
Ólíklegt þykir, að þeir skipt-
ist þannig, að það tryggi Mon-
dale hreinan meirihluta. Hins
vegar bendir flest til að hann
hafi langflesta kjörmenn, þegar
á þingið kemur. Hart þarf að
vinna mikið á, til þess að bilið
milli þeirra minnki stórlega úr
þessu.
Flest bendir því til, að það
verði hinir óháðu kjörmenn og
kjörmenn Jacksons, sem úrslit-
um geti ráðið á þinginu. Vel
getur svo farið, að mikil spenna
ríki á þinginu og fyrirfram verði
úrslitin óráðin.
■ Uppflosnaðir sveitamenn
sækja í borgir en þar bíður ekki
annað en sama vesöldin og flúið
er frá.
stjórnin sem nú situr er mátt-
vana og sjálfri sér sundurlynd.
Erlendar skuldir eru miklar og
lítið fé til að koma á félagslegum
umbótum. Alþjóðabankinn
hefur lagt til að varið verði 3.6
milljórðum dollara til þeirra
verkefna. Eitt þeirra atriða sem
bankinn leggur áherslu á að
gera þurfi er að skipta jörðum á
milli landlausra bænda til þess
að þeir gætu framleitt matvæli
fyrir fjölskyldur sínar. Þessi
hugmynd hefur aldrei skotið
upp kollinum innan Sudene síð-
an stofnunin var sett á laggirnar
fyrir 25 árum.
Brasilíumenn hafa enn ekki
getað fengið sig til að biðja um
gjafakorn annars staðar að,
enda væri það dálítið hlálegt
þar sem Brasilía er einn mesti
kornútflytjandi heims.