NT - 04.05.1984, Side 2
-J1
Itt
Föstudagur 4. maí 1984
m É »' 'ft w i
m «! i
■ Breiðhyltingar eru meðal þeirra sem vita hvað alkalískemmdir geta þýtt. Míglek hús.
Tjón af alkalískemmdum meira en af Vestmannaeyjagosinu:
„Alkalískattur“ á alla landsmenn?
- til að bæta húseigendum í Reykjavík tjón þeirra
■ „Mér finnst líklegt að tjón
af alkalískemmdum í húsum sé
meira en það tjón sem varð í
Vestmannaeyjagosinu á sínum
tíma. Spurningin er svo hvort
hægt er að bæta mönnum þenn-
an skaða og hvort menn hafa
hug á því.
Landslýður var t.d. inni á því
að bæta Vestmannaeyingum
tjónið sem þeir urðu fyrir í
gosinu", sagði Pétur Blöndal,
form. Húseigendafélags
Reykjavíkur.
Pétur sagði fjölmarga húseig-
endur hafa leitað til félagsins að
undanförnu með fyrirspurnir og
ábendingar varðandi alkalí-
skemmdir og aðrar steypu-
skemmdir í steinhúsum. Telur
Pétur raunar að í þessum
skemmdum sé fólginn einn
mesti vandi sem steðjar að hús-
eigendum nú um stundir, þótt
opinber umræða um þessi mál
hafi verið furðu lítil miðað við
það hve miklir hagsmunir eru
þarna í húfi. Vegna þessa hefur
Húseigendafélagið nú ákveðið
að efna til almenns borgara-
fundar um þessi mál þar sem
leitast verður við að brjóta
vandamálið til mergjar og finna
á því tæknilegar, lögfræðilegar
og pólitískar lausnir.
Um tæknilegu sjónarmiðin
verður fjallað af Hákoni Ólafs-
syni, yfirverkfr. hjá RB, um
lögfræðilegu hliðina fjallar
Hrafn Bragason, borgardómari
og Birgir Isl. Gunnarsson, al-
þingismaður, mun fjalla um
hugsanlega pólitíska lausn, t.d
hvort leggja beri sérstakan skatt
á alla landsmenn til að bæta
tjónið, eða hvort það skuli borg-
að af Viðlagatryggingu.
Erfitt
reikningsdæmi
■ í fréttum útvarpsins í gær-
kveldi var það haft eftir for-
stjóra Grænmetisverslunarinn-
ar að nú færi að vísu að nálgast
sá tími að hægt væri að fá nýjar
kartöflur sunnan frá Miðjarð-
arhafi. Sá galli væri hins vegar
á gjöf Njarðar að nýju kart-
öflurnar væru tvöfalt dýrari en
þær finnsku sem nú eru á
markaðnum.
Svo sem kunnugt er þurfti
að fleygja hluta af finnsku
kartöflunum áður en þær voru
settar á markað hér, og nýlegar
kannanir neytendasamtak-
anna benda til að u.þ.b. helm-
ingur af því sem fór á markað.
sé með öllu óhæft til manneld-
is.
Nú er því spurningin, hvort
nýjar kartöflur frá Miðjarðar-
hafslöndum séu ekki ódýrari
en gamlar finnskar kartöflur,
þótt þær séu dýrari, - eða
þannig.
Ekkert hægt
að gera!!
■ Dropar heyrðu nýverið af
einum léttstígum föður á leið í
banka með sparibauk dóttur-
innar sem þá var orðinn fullur
og þurfti losunar við. Hann
rétti baukinn fram við af-
greiðsluborðið og gjaldkerinn
sem var á svipuðu reki og
faðirinn hellti innihaldinu í þar
til gerða talningarvél, sem er
sérhæfð í smámynt, sem oftast
er uppistaðan í sparibaukum
ungbarna.
Talningarvélin flokkar mynt-
irnar hverja í sinn flokk, en
síðan er sérstakt hólf fyrir
úrkast, ef einhverjir peningar
slæðast með sem ekki er gert
ráð fyrir. Faðirinn tók andköf
þegar hann sá sér til mikillar
hrellingar lítinn grasköggul
hendast ofan í úrkastshólfið.
Mundi hann þá eftir hassköggli
einum sem afgangs hafði orðið
í samkvæmi hjá honum fyrir
nokkrum dögum, sem þótti
best geymdur í sparibauk dótt-
urunnar, þar sem vitað var að
engir utanaðkomandi áttu er-
indi í.
Faðirinn velti því fyrir sér
hvað gjaldkerinn myndi gera.
Yrði hassinu skilað, eða þekkti
hann efnið og myndi e.t.v.
kalla á lögregluna. Maðurinn
varð mjög undrandi þegar
hann sá gjaldkerann seilast of-
aní úrkastshólfið og stinga á
sig kögglinum góða án þess að
sýna nokkur svipbrigði. Pví
næst færði hann upphæðina
inn í bankabók dótturinnar,
og afhenti föðurnum hana
brosandi og þakkaði honum
fyrir viðskiptin.
Faðirinn var hins vegar ekki
eins broshýr vitandi það að
hann gat ekkert gert til að
endurheimta hina forboðnu
eign sína, án þess að koma
sjálfum sér í vandræði um leið.
Hins vegar undraðist hann
hversu háar þóknanir bankarn-
ir væru farnir að taka fyrir svo
lítið viðvik eins og eina litla
innlögn á sparisjóðsbók.
Ráðstafanir í
burðarliðnum
■ Nú á síðustu og verstu
dögum „fjárlagagata" og ann-
arra sviptivinda í stjórnmálum
verður stjórnmálamönnum
tíðrætt um áþreifingar af ýmsu
tagi, útvíkkun hugmynda og
tillagna, jafnframt því að get-
ið er að heildaraðgerðir séu í
burðarliðnum. Dropar heyra
að ein sé sú stétt manna sem sé
sérstaklega óhress með þetta
tungutak stjórnmálamann-
anna, sem eru Ijósmæður og
fæðingarlæknar. Sárnar þeim
að stjórnmálamennirnir skuli
yfirfæra „fagmál" þeirra á sín-
ar vafasömu aðgerðir, enda
ekki kunnugt um Ijósmæðra-
skólagöngu þeirra. Dropar
koma ábendingunni hér með á
framfæri.
NOÐVIIIINN
Fimmtudagur 3. maí 1984
Starfsgreinafunc
- nýr vettvangu
Eilíf sæla
■ Dropar sáu um daginn
viðtal við ungan blaðbera
Þjóðviljans á Austurlandi, þar
sem hann segist vera ánægðast-
ur þegar Þjóðviljinn sé sem
þynnstur, því þá sé hann auð-
veldastur og léttastur í útburði.
Blaðberinn hlýtur að vera í
eilífri sælu.
Bandormurinn lagður fram:
Bankastjórar
mjög óhressir
með 10% bindi-
skylduákvæðið
■ Bankastjórar eru mjög
óhressir með það ákvæði í band-
ormsfrumvarpi ríkisstjórnar-
innar, sem lagt var fram á
Alþingi í gær, sem heimilar
Seðlabankanum að auka bindi-
skyldu innlánsstofnana um allt
að 10% að fengnu samþykki
ríkisstjórnarinnar. Telja banka-
stjórarnir að bindiskyldan sé
ærin fyrir, en hún hefur verið 28
af hundraði síðastliðin fimm ár.
„Mér finnst þetta ákvæðj frá-
leitt eins og staða bankanna er
um þessar mundir. Og verði
heimildin nýtt þýðir það annað
hvort aukinn yfirdrátt viðskipta-
bankanna í Seðlabankanum eða
að útlán dragast verulega
saman," sagði Stefán Gunnars-
son, bankastjóri í Alþýðubank-
anum, í samtali við NT. Hann
sagði að miðað við lánsþörf
fyrirtækjanna í landinu efaðist
hann um að þetta ákvæði væri
framkvæmanlegt.
Stefán Pálsson, bankastjóri í
Búnaðarbankanum, tók í sama
streng. Hann sagðist hreinlega
ekki sjá hvernig bankarnir ættu
að standast aukna bindiskyldu.
Hún hefði verið ærin fyrir.
Hann sagði, að vissulega gæti
aukin bindiskylda dregið úr fjár-
magni í umferð. Hins vegar gæti
hann ekki séð hvernig fyrirtækin
í landinu ættu að þola það. „Ég
nefni verslunina sem dæmi. Til-
koma kreditkortanna hefur
mjög aukið lánaþörf hennar ein-
faldlega vegna þess, að hún fær
seinna greitt fyrir vöruna en
áður var. Hún hefur ekki fengið
þau lán sem hún hefur þurft en
það hefur verið reynt að koma
til móts við hana. Með aukinni
bindiskyldu verður það ófram-
kvæmanlegt," sagði Stefán.
Verðbólga:
SVR hækkar
um 14-15%
sundstaðir
um 25%
■ Fargjöld strætísvagna
í Reykjavík hækka um 14
til 15% frá og með degin-
um í dag og aðgangur að
sundstöðum borgarinnar
um 25% frá sama tírna.
Hækkanirnar voru sam-
þykktar í borgarstjórn í
gær. Kostar einstakur far-
miði fyrir fullorðna með
SVR nú 15 krónur í stað
13 og einstakur barnamiði
4 krónur í stað þriggja
áður.
Alþingi fyrirskipar:
Endurskoðun á
fyrirkomulagi
söluskatts-
kerfisins
■ f gær samþykkti Al-
þingi að fela ríkisstjórn-
inm trámkvæmd ákveð-
inna verkefna í þeim til-
gangi að draga úr skatt-
svikum og gera skatt-
heimtu ríkissjóðs skilvirk-
ari og hraðvirkari en nú er.
Tillagan sem samþykkt
var, er breytingartillaga
Ólafs Þ. Þórðarsonar ofl.
við þingsályktunartillögu
sem Jóhanna Sigurðar-
dóttir var fyrsti flutnings-
maður að. f samþykktri
breytingartillögu er ma.
lagt til að fram fari gagn-
ger endurskoðun á fyrir-
komulagi söluskattskerfis-
ins. Beitt verði lagaheim-
ild um söluskatt til að
fylgjast með fjármagns-
streymi í fyrirtækjum „þar
sem því verður við
komið."
Petta þýðir að nú er
heimilt að koma upp
kössum í verslunum með
sérstökum strimli fyrir öll
söluskattsskyld viðskipti
sem eftirlitsmenn fjár-
málaráðuneytisins eigi
einir aðgang að.
Kleinustuldur
í Seljaskóla
■ Síðastliðna nótt var
brotist inn í Seljaskóla í
Breiðholti og stolið þaðan
kleinum sem tilheyrðu
kennurum skólans. Auk
þess urðu nokkur spjöll á
húsnæðinu þegar þjófarnir
brutu sér leið inn í húsið
og eyðilögðu eldhúshurð
en fyrir innan hana voru
kleinurnar geymdar. Að
sögn heimildarmanns NT
var hér um tilfinnanlegt
tjón að ræða og er auk
þess talið að þjófarnir hafi
haft á brott með sér hljóm-
flutningstæki en liggur þó
ekki alveg ljóst fyrir.
Rannsóknarlögreglu
■ríkisins var ekki kunnugt
um kleinustuldinn en
hafði haft fregnir af inn-
brotinu og skemmdum á
húsinu. Þjófarnirvoruenn
ófundnir þegar NT fór í
prentun í gærkvöldi.