NT - 04.05.1984, Blaðsíða 15

NT - 04.05.1984, Blaðsíða 15
Fóstudagur 4. maí 1984 15 Um tíma gengu slúðursögur fjöllunum hærra um það, að nú væri hjónaband Raquel Welch • Andrc Weinfeld endanlega úr sögunni. Þvi fer þó víðs fjarri og hann er dyggasti uðningsmaður Raquel við bókargerðina. Ný keppnisgrein á Ólympíuleikum ■ Ný keppnisgrein verður tek- in upp í fyrsta skipti á Olypíul- eikunum í Los Angeles í sumar. Á ensku heitir þessi grein „sync- hronized swimming", sem kannski mætti kalla „sarahæft listsund" á íslensku. Til skýring- ar má geta þess, að þetta sund mun vera í svipuðum stíl og Esther Williams gerði frægt á árunum 1940-19(3). Þetta er öhnur tveggja greina á ÓlympL- uleikunum, sem eingöngu kon- ur keppa í. Hin er nútíma- fímleikar. Á Olympíuleikunum 1948 var slíkt listsund sýnt, en hingað til hefur það þótt of „lítilmótleg" íþrótt til að taka til keppni á lcikunum. Bandarískarstúlkur, sem keppa fyrir hönd þjóðar sinnar í sumar, þær Cqndy Cost- ie og Tracie Ruiz, eru ekki á þeirri skoðun, að það sé neitt ómerkilegt við íþrótt þeirra. - Þegar einhverjir segja við okkur: Uss, þetta er ekkert annað en ballett í vatnij segjum við alltaf: Komið bara og fylgist með því, hvernig við æfum okkur. Þá sjá þeir fljótlega, hvað þetta er erfitt og krefst mikiliar þjálfunar. Eitt er víst, að áhugi á því að fylgjast með þessari keppni er gífurlegur. Þeir 34.000 miðar, sem gefnir voru út að þessum tveggja daga keppnislið, seldust upp því nær samstundis. í þetta fyrsta skipti verða keppendur saman tveir og tveir, þó að oft sé einstaklingskcppnin í smærri keppnum. Stærstu Ijós Bandaríkjanna, þær Candy Costie og Tracie Ruiz, sem fyrr eru nefndar, eiga sér langan feril í íþróttinni, fyrst sem ein- staklingar, en síðari árin hafa þær líka keppt saman. Það er ekki eingöngu lagt mikið upp úr því að hreyfingar parsins séu samhæfðar, heldur verður líka útlitið að vera sem líkast, ef þær eiga að falla í smekk dómaranna. Þar er við ramman reip að draga fyrir þær Candy og Tracie, því að meðal keppninauta þeirra eru m.a. kanadískir tvíburar og alsystur frá Ohio. En þær eru svo heppnar, að þegar þær eru renn- votar í sundbolunum, má nánast villast á þeim, svo líkar eru þær þá. Á þurru landi eru þær hins vegar eins og svart og hvítt, Candy Ijóshærð og full af fjöri, en Tracie dökkhærð og hlédræg. En þær eru báðar 160 cm á hæð og vega 53 kíló (Candy fór nýiega í megrunarkúr og léttist um 10 kíló til að ná þessum æskilega árangri) og það kann að tryggja þeim gullið, ásamt færni þeirra í íþróttinni. A.nt.k. gera landar þeirra sér miklar vonir um að þær fari mcð sigur af hólmi í þessari fyrstu keppni í listsundi á Olympíuleikum. M Þær Candy Costie og Trac- ie Ruiz eru eins og tveir vatns- dropar í sundinu. Skipun dómarans: ,Mættu í brúðkaup íóttur þinnar í irímubúningi eða ■■ I Stjúpdóttir ifís Johnson igregluþjóns í Vichita, ansas. ætlaði ð fara að anga í það hei- ga og heimt- aði að faðir hennar mætti til brúðkaupsins í búningi, sem hæft hefði í leikriti eftir Shakespeare! „Aldrei," svaraði pabbi hennar alveg harðákveðinn. „Þú færð mig aldrei til að vera eins og fífl til fara við brúð- kaupið þitt!“ En sú stutta var ekki á því að gefa sig. Hún gekk á fund dómarans í bænum,semúr- skurðaði að Bill yrði að fara að óskum brúðar- innar. Hann bætti reyndar við: „Ef ég treysti mér til að mæta í brúð- kaupið í þess háttar klæðn- ” aði, þá getur þú það alveg eins.“ Dómarinn er nefnilega gam- all fjölskyldu- vinur og skipun hans var í gamni gerð. Þessar undar- legu óskir brúð- hjónanna um klæðnað brúð- kaupsgesta má rekja til þess að kynni þeirra hófust, þegar þau léku saman í Shakespeare- leiksýningu.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.