NT - 04.05.1984, Blaðsíða 26

NT - 04.05.1984, Blaðsíða 26
Föstudagur 4. maí 1984 26 Snoker- Open ■ Fyrsta opna golfmótið í ár á Reykjanessvæðinu fer fram um næstu helgi, dag- ana 5.-6. maí á Hvaleyr- inni. Keppnin nefnist SNOKER-Open og verð- ur 36 holu keppni og verða því 18 holur leiknar hvorn dag. Keppnisfyrirkomu- lagið er 7/8 forgjöf (punkta- keppni). Verðlaun verða vegleg og auk þess eru þrenn aukaverðlaun fyrir að vera næstur holu í upphafshöggi á 5.7. og 11. holu. Þátttaka tilkynnist í síma 53360 fyrir 5. maí og verður þá gefinn upp rás- tími. Prentvillu- púkinn á ferðinni ■ Hvort sem um er aí kenna prentvillupúkanum pervisna eða lítilli greind blaðamanns, eða jafnvel skertri heyrn þá urðu mis- tök ekki flúin í örstuttri umfjöllun um Andrésar Andarleikana í NT-blað- inu, á íþróttasíðu, á þriðjudaginn. En nú skal sko leiðrétt! Sæunn Björnsdóttir sigraði í svigi og stórsvigi 8 ára stúlkna. Sæunn var ranglega feðr- uð Bjarnadóttir í stór- sviginu. Fífi Malmquist er ekki til og keppti alls ekki á Andrésar andarleikun- um á skíðum. Aftur á móti var það Sísí Malmquist sem sigraði stórsvigi og svigi 9 ára stúlkna. I svigi 10 ára drengja sigraði Hrannar Pétursson en ekki Hermann Pétursson. Hlutaðeigandi eru beðnir innilegrar velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Heiður fyrir Courtney ■ UEFA hefur skipað þá George Courtney frá Bretlandi og Paolo Berg- amo frá Italíu sem dómara í undanúrslitaleikjunum á Evrópukeppni landsliða í Frakklandi í júní. Dómari á úrslitaleikinn verður ekki skipaður fyrr en vitað er hvaða tvö lið leika til úrslita 27. júní. Liðin sem leika í úrslita- keppninni eru í riðli eitt: Frakkland, Danmörk, Belgía og Júgóslavía. I riðli tvö eru svo V-Þjóð- verjar, Portúgalir, Rúm- enía og Spánn. HK náms- skeiði lokið ■ Velheppnuðu hand- knattleiksnámskeiði HK lauk um helgina. Þátttaka var mjög góð og leiðbein- endur á þessu fyrsta hand- knattleiksnámskeiði HK voru engir aðrir en yfir- þjálfari handknattlciks- deildar HK, Rudolf Hav- lek og Þorsteinn Jóhanns- son hjá Fræðslunefnd HSÍ. Gefin var út bók um undirstöðuatriði hand- knattleiksíþróttarinnar. Þátttakendurnir voru á aidrinum 10-12 ára og fengu allir viðurkenningar skjal í lok námskeiðsins sem fór fram í hinu nýja íþróttahúsi í Digranesi í Kópavoginum. _________íþróttir______ „Ekki spenntur fyrir Bayern Leverkusen‘ - segir Paii ■ „Ég er ekkert sérlega spenntur fyrir því að leika með Bayern Leverkusen í hand- knattleik næsta vetur“, sagði Páll Ólafsson, handknattleiks- maður úr Þrótti í viðtali við NT í gær. Ertu búinn að fá tilboð frá Leverkusen? „Nei, nei. Ég stórefast meira að segja um að Þjóðverjarnir hafi séð mig spila. Eg veit bara að þeir hafa áhuga á að fá mig til sín“, sagði Páll. Ætlarðu út að líta á aðstæður hjá félaginu? „Það kæmi vel til greina að gera það en eins og ég segi þá er ég ekkert yfir mig spenntur fyrir því að leika erlendis næsta Olafsson, handknattleiksmaður vetur. Það eru ýmsar ástæður sem liggja að baki því. Það væri frekar að ég færi erlendis eftir næsta keppnistímabil." Ætlarðu að leika með Þrótti næsta vetur í handknatt- leiknum, eða með einhverju öðru liði? „Það er ekkert á hreinu með hvaða liði ég myndi leika en ekkert frekar með Þrótti en einhverju öðru félagi“, sagði Páll. Ertu kominn á fullt í knatt- spyrnuna eina ferðina enn? „Já, blessaður vertu. Búinn að æfa af krafti og kominn í lið. Eg er einmitt að fara að keppa gegn Val í kvöld í Reykjavíkur- ■ Páll Ólafsson mótinu“, sagði Páll að lokum. Karate: Landsliðsþjálfari Noregs hér á landi ■ í gær kom til landsins Sviss- lendingurinn Martin Burkhat- ler, landsliðsþjálfari Noregs í karate. Hann mun hafa æfinga- búðir fyrir landsliðsnefnd ís- lands í karate. Burkhatler hefur þegar tekið til hendinni og nú eru hafnar æfingar fyrir alla sem æfa karate og fara þær fram í íþróttahúsi Alftamýrarskóla og standa til fimmta maí. í dag og á morgun verða æfingar sem hér segir. Föstudaginn 4ða maí. kl. 10.00 fyrir 9.-4. kyu, kl. 11.00 fyrir 3. kyu til 1. dan. kl. 19.00 fyrir 9.-4. kyu, kl. 20.30 fyrir 3. kyu til 1. dan. Laugardaginn 5ta maí kl. 10.00 fyrir 9.-4. kyu, kl. 11.00 fyrir 3. kyu til 1. dan. kl. 15.00 fyrir 9.-4. kyu, kl. 16.00 fyrir 3. kyu til 1. dan. Norðmenn urðu Norður- landameistarar í karate 1983 undir stjórn Burkhatlers og ætti því enginn áhugamaður um kar- ate að láta þetta tækifæri fara framhjá sér. ■ Eins og flestir vita þá hafa Englendingar á undanförnum árum leikið í þrflitum hvítum, bláum og rauðum landsliðspeys- um. Margir knattspyrnuaðdá- endur liðsins voru orðnir þreytt- ir á þeim búningi og töldu slakt gengi enska landsliðsins standa í samhengi við lit búningsins. Margir minntust alhvítu treyj- unnar frá 1966 þegar Englend- ingar urðu heimsmeistarar. Nú er spurningin: Fer enskum að ganga betur í nýja búningnum? Að ofan sjást kunnir kappar í nýju peysunum. TBR tekur í notkun þrjá tennisvelli ■ TBR er nú að taka í notkun þrjá útitennisvelli í Reykjavík. Eru þeir í eigu Tennis- og band- mintonfélagsins og eru þeir vestan megin við TBR-húsið við Gnoðarvog. Vellir þessir eru upphitaðir og malbikaðir, einnig verða þeir flóðlýstir. Tennis hefur ekki verið stundaður í Reykjavík í 35 ár en hins vegar hafa tennisáhuga- menn á höfuðborgarsvæðinu leikið tennis í Hafnarfirði og í Kópavogi um nokkurra ára skeið. Tennisvellir TBR marka tímamót hja félaginu. TBR átti tennisvöll við Melavöllinn, en hann var tekinn úr notkun fyrir mörgum áratugum. En nú getur félagið aftur farið að standa undir nafni og gefa fólki kost á að stunda þessa hollu og góðu íþrótt sér til heilsubótar og ánægju. ■ Bjöm Borg. KAogÞór í úrslitum ■ Frá Gylfa Kristjáns- syni, Akureyri: Úrslitaleikur Bikarmóts Knattspyrnuráðs Akur- eyrar fer fram á laugardag, 5. maí, kl. 14.00 á Þórs- vellinum. Það eru Þór og KA sem leika til úrslita. Þór hafði áður unnið Vask 3- 0 og KA unnið sama lið 4- 0. KA nægir því jafntefli gegn Þór til að sigra í mótinu á betra marka- hlutfalli. Héraðsmót HSK að Laugarvatni: Kári afreksmaður mótsins ■ Innanhússmót Skarphéðins í frjálsum íþróttum fór fram að Laugarvatni, 23.4. Þátttaka var mikil í mótinu og árangur var góður. Kári Jónsson UMF Selfoss var mesti afreksmaður mótsins. Þrefaldur sigurvegari. Soffía Gestsdóttir UMF Gnúpverja var sigurvegari í tveimur grein- um. Einnig Kristín Gunnars- dóttir, Selfossi. Karlar: I.angstökk án atrennu 1. Kári Jónsson Self. 3.22 m 2. Ámi Svavars. Skcið 3.16 m 3. Unnar Garðarsson Skeið 3.10 m Þrístökk án atrennu 1. Kári Jónsson Self. 9.58 m 2. Árni Svavarsson Skeið 9.49 m 3. Jason ívarsson Samhygð 9.03 m Hástökk án atrennu 1. Kári Jónsson Self. 1.60 m 2. Unnar Garðarsson Skeið 1.55 m llástökk 1. Aðalsteinn Garðars. Self. 1.84 m 2. Jón B. Guðmundsson Self 1.84 m 3. Auöunn Guðjóns. Skeið 1.80 m Kúluvarp 1. Unnar Garðarsson Skeið 12.47 m 2. Jón B. Guðmunds. Self. 11.70 m Konur: Langstökk án atrennu. 1. Birgitta Guðjónsd. Self. 2.54 m 2. Soffia R. Gestsdóttir Gnúp 2.52 m 3. Ingibjörg Ivarsd. Samli. 2.51 m Þrístökk án atrennu 1. Soffía R. Gestsd. Gnúp. 7.60 m 2. Birgitta Guðjónsd. Seif. 7.53 m 3. Ingibjörg Ivarsdóttir Samh. 7.28 m Hástökk án atrennu 1. Kristín Gunnarsdóttir Self. 1.25 m 2. Sigriður Guðjúnsdóttir Self. 1.20 m 3. Sigríður Jónsdóttir Skeið 1.15 m Hástökk 1. Kristín Gunnarsdóttir Sclf. 1.54 m 2. Sigríður Guðjónsdóttir Self. 1.54 m 3. Ingibjörg ívarsdóttir Samh. 1.51 m Kúluvarp. 1. Soffía R. Gestsd. Gnúp. 13.06 m 2. HildurHarðard.Dagsbrún 10.05 m Grikkir ábyrgjast OL-eldinn ■ Gríska ríkisstjórnin hefur ákveðið að ábyrgjast tendrun, flutning og af- hendingu á Ólympíueldin- um, sem loga skal, á Ólympíuleikunum í Los Angeles í sumar. Havlek áfram hjá HK ■ 2. deildarlið HK í handknattleik hefur endurráðið Tékkann vina- lega, Rudolf Havlek, sem þjálfara meistaraflokks karla og sem yfirþjálfara handknattleiksdeildar. Austur- rískur sigur ■ Austurríki sigraði Kýpur 2-1, er liðin mætt- ust í undankeppni heims- meistarakeppninnar, sem haldin verður í Mexíkó 1986. Þjóðirnar leika í riðli með Ungverjum og Hollendingum. Austurríkismenn skoruðu úr sínu fyrsta hættulega marktækifæri, en það kom á 37. mínútu. Gisinger skoraði af stuttu færi, eftir að Niederbac- her átti hörkuskot að marki Kýpur. Á 72. mín- útu jöfnuðu Kýpurbúar með marki Christoforou, en Adam var ekki lengi í Paradís, því aðeins tveim- ur mínútum síðar skorð- uðu Austurríkismenn aftur og tryggðu sér sigur í leiknum. Maree er nú Kani! ■ Fyrrum heimsmethafi í 1500 metra hlaupi, S- Afríkumaðurínn Sydney Maree, hefur fengið bandarískan ríkisborgara- rétt. Maree er annar S- Afríku hlauparinn á stutt- um tíma sem öðlast ríkis- borgararétt utan fæð- ingarlands síns, því fyrir skömmu fékk Zola Budd breskan ríkisborgararétt. Hinn 27 ára gamli Maree sem yfirgaf heimaland sitt fyrir sex árum vonar nú til þess að verða meðal kepp- enda Bandaríkjanna á Ó- lympíuleikunum í Los Ángeles í sumar. Á síðasta ári var Maree handhafi heimsmetsins í 1500 metra hlaupi um sjö daga skeið, þegar hann hljóp á 3:31.24 mín, en Steve Óvett bætti síðan metið, er hann hljóp á 3:30.77 mín. Wales vann England ■ Wales-búar lögðu Englendinga að velli í Bretlandseyjakeppninni í knattspyrnu í Wrexham í fyrrakvöld. Eina mark leiksins skoraði Mark Hughes á 17. mínútu. Eftir að öll liðin á Bretlands- eyjum hafa nú leikið tvo leiki í mótinu, þá er al- gjört jafnræði með liðun- um, öll hafa þau tvö stig.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.