NT - 04.05.1984, Blaðsíða 12
Föstudagur 4. maí 1984 12
Útvarp kl. 11.35:
Þáttur Jónasar frá
föstudeginum langa
endurtekinn vegna
fjölda áskorana!
■ Þegar blaðamaður NT
hafði samband við Jónas
Jónasson, útvarpsmann á Ak-
ureyri, til að fræðast um hverjir
yrðu kvöldgestir hans þetta
föstudagskvöld, þá sagði hann,
að sér hefðu borist margar
áskoranir um að endurtaka
þáttinn frá kvöldi föstudagsins
langa, - en þá ræddi hann við
Einar J. Gíslason, forstöðu-
mann Fíladelfíusafnaðarins og
Ragnhildi Ragnarsdóttur.
Mikill hópur Vestmanna-
eyinga sendi áskorun til Ríkis-
útvarpsins um að endurtaka
þennan þátt, - en Einar er
fæddur og uppalinn í Vest-
mannaeyjum. Einnig sagðist
Jónas hafa heyrt frá hlustend-
um á Austfjörðum, sem báðu
eindregið um endurtekningu
þáttarins.
Jónas sagðist hafa vísað mál-
inu suður til aðalstöðva og þar
hefði verið tekin sú ákvörðun
að endurtaka þennan þátt.
*'A4*K ,«|
■ Jónas Jónasson hefur rætt
við marga kvöldgesti í þáttum
sínum á föstudagskvöldum og
hlustendur bíða alltaf spenntir
eftir næstu gestum. I þetta sinn
verður endurtekinn þátturinn
frá kvöldi föstudagsins langa,
en óskir um það höfðu borist
frá mörgum hlustendum víða
af landinu.
■ Úr kvikmyndinni Besti maðurinn: Henry Fonda athugar málið.
Sjónvarp kl. 22.00 föstudagsmyndin:
Besti maðurinn
■ Föstudagsmyndin að þessu
sinni er bandarísk frá 1964.
Hún gengur út á átök í sam-
bandi við útnefningu flokk-
anna á forsetaefni og gengur á
ýmsu í baráttunni. Það má
segja að þetta sé tímabær
mynd nú, þegar sams konar
barátta fer nú fram í Banda-
ríkjunum, en vonandi ekki þó
með sömu bellibrögðum og
koma fram í þessari mynd.
Þarna keppa tveir stjórn-
málamenn um útnefningu til
framboðs í forsetakosningum
í Bandaríkjunum. Þeirn er
báðum mikið keppikefli að fá
stuðning ríkjandi - en fráfar-
andi - forseta og annar fram-
bjóðandinn grípur til glæp-
samlegra úrræða til að koma
sínum málstað fram.
I myndinni koma fram marg-
ir góðir leikarar. í aðalhiut-
verki er Henry Fonda, einnig
Cliff Robertson, Lee Tracey,
Shelley Berman, Mahalia
Jackson, Edie Adams, Mar-
garet Leighton og Ann Soth-
ern.
Leikstjóri er Franklin
Schaffner, en þýðandi Guð-
brandur Gíslason.
Útvarp kl. 23.15:
Ferðast með Ara T rausta
í þættinum Heimaslóð
Daníel Júlíusson 1 Júh'usson
■ í útvarpinu kl. 11.35 á
föstudagsmorgun er þátturinn
„Heimaslóð“ - Ábendingar
um ferðaleiðir, sem Ari
Trausti Guðmundsson sér um.
Þetta er 6. þátturinn af átta, og
munu þeir tveir sem eftir eru
verða fluttir á næstu tveimur
vikum.
Ari Trausti var beðinn að
segja lesendum NT svolítið
frá þessum þætti. Honum fór-
ust svo orð:
„Efni þáttarins er kynning á
áhugaverðum leiðum og
stöðum, sem hægt er að heim-
sækja víðs vegar á landinu, og
þá helst þeim stöðum, sem eru
svolítið utan þess venjulega -
ekki alveg kannski á hringveg-
inum.
Ég hef reynt að sýna fram á
eina og aðra króka, sem gaman
væri að fara frá hinum hefð-
bundnu leiðum.
Þessi þáttur á föstudaginn er
reyndar svolítið frábrugðinn
öðrum frásögnum mínum, þar
sem ég mun aðallega fjalla nú
um „gönguferðir með útbún-
að“, eins og við köllum það.
Það eru þessar sérstöku ferðir
þar sem menn ferðast í nokkra
daga með allt sitt farteski á
bakinu.
Ég tala um útbúnaðinn og
hvernig best er að undirbúa
slíkar ferðir, og síðan kynni
ég nokkrar leiðir sem eru til-
valdar fyrir gönguferðir. Ég
dvel líklega mest við hinn
svonefnda „Laugaveg", sem
er gönguleiðin milli Land-
mannalauga og Þórsmerkur.
Ég minnist líka á gönguleiðir á
Hornströndum og af Austur-
landi í Lón.
Næsti þáttur fjallar mikið
um ýmsar sérleiðir á Aust-
fjörðum og sá alsíðasti er aðal-
lega um þessa þrjá aðalfjall-
vegi á landinu, þ.e.a.s. Kjöl,
Sprengisand og Fjallabaks-
leið,“ sagði Ari Trausti Guð-
mundsson að lokum.
■ Ari Trausti Guðmundsson.
■ í þættinum Bylgjur, sem
verður á dagskrá kl. 16.00 í
dag á Rás 2, mun Árni Daníel
Júlíusson spila tónlist þá sem
nefnist nýbylgja. í þættinum í
dag verður ýmislegt á dagskrá,
m.a. verður spilað nokkuð af
tónlist hljómsveitarinnar Joy
Division frá Manchester í
Englandi. Hljómsveit þessi er
ein' af þékktustu nýbylgju-
hljómsveitum Breta, eða öllu
heldur var, - því við dauða
söngvara hennar var nafninu
breytt í New Order, ög starfar
hljómsveitin enn undir því
nafni. GestirþáttarinserOxmá,
fyrirbæri sem í senn er hljóm-
sveit, kvikmyndagerðarfyrir-
tæki og myndlistarfyrirtæki.
Auk þess verða ýmsar nýjar
plötur spilaðar í þættinum.
Árni Daníel er ýmsum
kunnur sem fyrrverandi
hljómborðsleikari í Q4U og
núverandi poppfréttaritari
NT.
Föstudagur
4. maí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Oaglegt mál. Endurt. þáttur Sig-
uröar Jónssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorö - Gyöa Jónsdóttir
talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hnífaparadansinn“ eftir Jón
frá Pálmholti Höfundur les (7)
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Mér eru fornu minnin kær“
Einar Kristjánsson frá Hermundar-
felli sér um þáttinn (RÚVAK)
11.15 Tónleikar
11.35 Heimaslóð. Ábendingar um
ferðaleiðir. Umsjón: Ari Trausti
Guömundsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn-
ar Egilssonar; seinni hluti Þor-
steinn Hannesson les (17).
14.30 Miðdegistónleikar
14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Ei-
ríksdóttir kynnir nýútkomnar hljóm-
plötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir
16.20 Síðdegistónleikar Walter
Triebskorn og Sinfóníuhljómsveit-
in í Berlín leika Konsertínu fyrir
klarinettu og hljómsveit eftir Fer-
uccio Busoni; C.A. Bunte stj. /
Aaron Rosand og Sinfóníuhljóm-
sveit Luxemborgarútvarpsins leika
Fiölukonsert op. 11 eftir Joseph
Joachim; Siegfried Köhler stj.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur:
Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig-
uröardóttir
20.00 Lög unga fólksins Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvakaa. Vatnajökulsleið
og Árnakvæði; fyrri hluti Sigurö-
ur Kristinsson fjallar um leiö þá er
Árni lögmaður Oddsson er sagður
hafa riöið til þings. b. Einar Krist-
jánsson syngur Fritz Weisshapp-
el leikur á píanó
21.10 Frá samsöng Karlakórs
Reykjavíkur í Háskólabíói 5.
apríl sl. Stjórnendur: Páll P. Páls-
son og Guðmundur Gilsson. Ein-
söngvari: Kristinn Sigmundsson.
Pianóleikari: Anna Guöný Guö-
mundsdóttir.
21.40 „Helgarpresturinn", smá-
saga eftir Jörn Riel Matthías
Kristiansen les þýðingu sina og
Hilmars J. Haukssonar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöidsins
22.35 Traðir Umsjón: Gunnlaugur
Yngvi Sigfússon.
23.15 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar
Jónssonar
00.50 Fréttir. Dagskrárlok
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 hefst
með veðurfregnum kl. 01.00 og
lýkur kl. 03.00
Föstudagur
4. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnend-
ur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tóm-
asson og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnendur:
Hróbjartur Jónatansson og Valdís-
Gunnarsdóttir.
16.00-17.00 Bylgjur Stjórnandi: Ás-
mundur Jónsson.
17.00-18.00 í föstudagsskapi Stjóm-
andi: Helgi Már Barðason.
23.15-03.00 Næturvakt á Rás 2
Stjómandi: Ólafur Þórðarson. Rásir
1 og 2 samtengdar með veöurfrétt-
um kl. 01.00 og heyrist þá í Rás 2
um allt land.
sjónvarp
Föstudagur
4. maí
19.35 Tónlistarskólinn bresk teikni-
mynd.
19.45 Fréttir á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Á döfinni Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson. Kynnir Bima Hrólfs-
dóttir.
20.55 Dire Straits Stuttur dægurlaga-
þáttur með hljómsveitinni „Dire
Straits" sem leikur tvö lög.
21.15 Paradís samkvæmt tilskipun
Þýsk heimildamynd frá Norður-
Kóreu sem lýsir landi og þjóð og þá
skki síst þjóðskipulaginu en það er
reist á kennisetningum kommúnis-
mans. Þýðandi Veturliði Guðnason.
Þulur Bogi Arnar Finnbogason.
22.00 Besti maðurinn (The Best
Man) Bandarísk biómynd frá 1964.
Leikstjóri Franklin Schaffner. Aðal-
hlutverk: Henry Fonda, Cliff Robert-
son, Lee Tracy, Shelley Berman og
Mahalia Jachson.
Tveir stjórnmálamenn keppa um
útnefningu til framboðs I forseta-
kosningum í Bandaríkjunum.
Stuðningur rikjandi forseta er þeim
mikið keppikefli og gripur annar
frambjóðandinn til örþrifaráða til að
öðlast hann. Þýðandi Guðbrandur
Gislason.
23.40Fréttir í dagskrárlok