NT - 04.05.1984, Blaðsíða 3

NT - 04.05.1984, Blaðsíða 3
„Stóru“ málin í borgarstjórn í gærkvöldi: Hundar-fjalakettir og gervigras Dauðadómur yfir Búseta ■ Deila um túlkunar- atriöi á lagafrumvarpi um Húsnæðismálstofnun kom upp milli stjórnar- flokkanna á Alþingi í gærmorgun rétt áður en afgreiða átti 1. frumvarpið frá neðri deild þingsins. Halldór Blöndal þingmað- ur Sjálfstæðisflokks hélt fram þeirri skoðun sinni að samkvæmt lögunum næðu ákvæði um lán til húsbygginga félagssam- taka ekki til húsnæðissant- vinnufélaga á borð við Búseta. Alexander Stef- ánsson heldur fast við fyrri túlkun sína þess efnis að samkvæmt lögunum sé opin möguleiki að Búseta- félögin fái umrædd lán. Samkvæmt beiðni Þor- steins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins var afgreiðslu málsins frestað í neðri deild í gær en verður væntanlega tekið fyrir í dag. Fundað var um málið í ríkisstjórn í gær- morgun og innan þing- flokks Sjálfstæðisflokks en svo virðist sem að á hvor- ugum staðnum hafi tekist að útkljá það. Nái hugmyndir Hall- dórs Blöndal sem studdar eru af að minnsta kosti stórum hluta þingflokks Sjálfstæðisflokks fram að ganga þýðir það nánast dauðadóm yfir öllu frek- ara starfi þeirra Búsetu- félaga sem stofnuð hafa verið að undanförnu, sam- kvæmt þeim upplýsingum sem blaðið fékk hjá Reyni Ingibjartssyni starfsmanni Búseta í Reykjavík. ■ Nú þegar Ijóst er að Flugmálastjórn hefur rekið dýpkunarskip um árabil er spurning hvort ekki megi nýta þessa reynslu stofnunarinnar og láta hana taka yfir vitamáiin. Kannski er þetta ekki svo fráleit framtíðarsýn? NT-mynd: Róbert Skipaútgerð Flugmálastjórnar lokið? Hornfirðingar kaupa skip af Flugmálastjórn ■ Það er í mörg horn að líta hjá embætti flugmálastjóra. Um daginn seldi stofnunin skip, dýpkunarpramma, sem verið hefur í hennar eigu um árabil, til Hornarfjarðar. Hafði skipið legið ónotað á Pollinum á Akur- eyri um tveggja ára skeið, en þar áður var hann notaður til að ná í fyllingarefni vegna lenging- ar flugbrautarinnar í kaupstaðn- um. Enn fyrr kom pramminn við sögu flugvallarframkvæmda á Sauðárkróki. Söluverðið var 1.5 milljónir króna. Hornfirðingar sjá margvísleg- an ávinning af því að fá þetta skip í flota sinn. Þeir telja að hingað til hafi Vita- og hafna- málastofnun ekki sinnt höfn þeirra, sem þarf að dýpka með reglulegu millibili vegna fram- burðar á jökulleir og sandi. „Svo er þetta einfaldlega at- vinnuspursmál hjá okkur,“ sagði Sverrir Guðnason formað- ur hafnarstjórnar á Höfn, í samtali við NT. „Við viljum sjálfir annast þetta og láta pen- ineana sem í betta fara rúlla hérna heima en ekki fara út úr byggðarlaginu. En það er um að ræða talsverða fjármuni," sagði hann. Sverrir bjóst ekki við að mik- ið yrði dýpkað í sumar, nema ef vera skyldi við loðnu- og haf- skipabryggjuna. En á næstu árum muni ekki skorta verkefni fyrir prammann. ■ Þessi knöttur, sem Baldur Jónsson vallarstjóri hampar hér á myndinni á að líkindum eftir að rúlla á gerfigrasi í sumar. NT-raynd Róbert stöndum, hlýtur að vera sú að borg og eftir atvikum ríkið geri okkur kleift að afstýra því að svo verði og að Þorkell Valdi- marsson ljái því eyra ef að við höfum eitthvað það að bjóða, sem í veg fyrir niðurrif geti komiö“ sagði Jóhann Páll bóka- útgefandi í 9 líf, samtökum, sem hafa beitt sér fyrir verndun og uppbyggingu Fjalakattarins. „Komi ekki til skilningur borgar og ríkis fæ ég ekki séð að samtök okkar fái miklu áorkað. Hér eru slík menningarverð- mæti í húfi að opinber stuðning- ur verðu að koma til,“ sagði Jóhann. Hundahald leyft með stróngum skilyrðum Næstu fjögur árin verður hundahald leyft í Reykjavík með ströngum skilyrðum eftir ■ í upphafi fundar í borgarstjóm í gærkvöldi voru aðeins mættir auk sjálfs húseigandans, rannsóknarblaðamaður afHelgarpóstinum, kvikmyndaleikstjóri og útvarpsmaður. að hafa verið bannað í 60 ár. Borgarstjórn samþykkti í gær- kvöldi að fela skrifstofustjóra borgarinnar að semja reglugerð þar sem undanþágur frá hunda- banni verða skilgreindar. Innan fjögurra ára fari fram almenn atkvæðagreiðsla um málið, hin fyrsta sinnar tegundar í Reykja- vík. Skilyrðin verða þessi: Alla hunda skal skylt að skrá, eig- endur hunda greiða afgjöld í borgarsjóð, þegar leyfi eru feng- in eða þau framlengd, hundar skulu skoðaðir og hreinsaðir árlega, skylt verður að tryggja hunda, þeir skulu hafðir í bandi, eða helsi utandyra, ekki má vera með hunda í almennings- görðum milli kl. 08 og 21, lausbeislaðir hundar verða gerðir upptækir. Innan fjögurra ára skal fara fram almenn atkvæðagreiðsla um hvort leyfa skuli hundahald í borginni í ljósi reynslunnar af þessari reglugerð. Hundaeig- endur verða skyldir að sæta þeim ákvörðunum sem teknar verða í framhaldi af slíkri at- kvæðagreiðslu. Tillaga Alþýðu- bandalags, Alþýðuflokks og Kvennaframboðs um skoðana- könnun um nokkra valkosti í hundamálum nú í sumar var felld. Fulltrúar Framsóknar- flokksins greiddu atkvæði með meirihlutanum. Gerður Steinþórsdóttir var þó andvíg tillögunni um al- menna atkvæðagreiðslu. Ég tel að minnihlutinn verði að eiga sinn rétt,“ sagði hún t' samtali við NT, „70% borgarbúar eiga ekki að geta bannað 30%, að halda hund“. Gengið frá lagningu gervigrass „Við höfum lifað í þessu landi án gervigrass í ellefuhundruð ár og ættum að geta gert það í einn mánuð til eitt ár enn“ sagði Sigurjón Pétursson borgarfull- NT-myndir Arni Sæberg trúi i gær er hann gagnrýndi samninginn við þýska fyrirtækið Balsam um lagningu gervigrass á Laugardalsvöllinn, en sá samningur var staðfestur í borg- arstjórn í gær. Fyrirtækið Balsam hefur litla reynslu af lagningu gervigrass nema í Austurlöndum. Svo hafði verið ráð fyrir gert að beðið yrði eftir því hvernig fyrirtækinu tækist til við lagn- ingu gervigrass á íþróttavöll í Osló áður en Reykjavíkurborg gengi frá lokasamningum við það. Nú hefur borgarstjórn fall- ið frá því vegna tafa á verkinu í Osló. Gagnrýndi Sigurjón og fleiri fulltrúar minnihlutans þessa ákvörðun og töldu ekki fengna næga tryggingu hvorki fyrir gæðum grasmottunnar né nægjanlega vandaðri undirbún- ingsvinnu. Júlíus Hafstein for- maður íþróttaráðs sagði fyrir- tækið vaxandi í seinni grein og taldi samninga borgarinnar við það góða. Fyrirtækið greiddi 10% tryggingu sem væri óaftur- kræf kæmu gallar í Ijós. Sömu- leiðis ætti borgin kröfu á að fá 20% fyrirframgreiðslu endur- greidda í slíkum tilvikum. Enn- fremur hefur verið gengið svo frá að ágreiningsefni milli borg- arinnar og þýska fyrirtækisins yrði útkljáð fyrir íslenskum dómstólum. ■ Niðurrif Fjalakattarins hef- ur verið heimilað. Á fundi borg- arstjórnar í gærkvöldi var sam- þykkt með 11 atkvæðum gegn 9 að leyfa eiganda hússins, Þor- keli Valdimarssyni, sem um ára- bil hefur þurft að greiða fast- eignagjöld af lóð hússins án þess að geta nýtt það á nokkurn hátt, að rífa það. Allir fulltrúar sjálfstæðismanna greiddu at- kvæði með heimildinni utan Hulda Valtýsdóttir, sem greiddi atkvæði gegn. Minnihlutinn var gegn heimildinni fyrir utan að Sigrún Magnúsdóttir og Sigurð- ur E. Guðmundsson sátu hjá. „Ég sef rólegur á þessu í nótt. En nú er mér efst í huga að það hefur verið hlustað á hinn þögla meirihluta,“ sagði Porkell Valdimarsson, eigandi Fjala- kattarins við Aðalstræti 8 í Reykjavík, við blaðamann NT eftir að borgarstjórn hafði í gærkvöldi heimilað honum niðurrif hússins. „Ég vona að ég geri ekkert sem ég á eftir að sjá eftir frekar en hingað til,“ sagði Þorkell þegar blaðamaður spurði hann hver hans næstu skref varðandi Fjalaköttinn yrðu. Þorkellsagði að ekki hefði verið haft sam- band við sig áður en samtökin 9 líf voru stofnuð, en þau beita sér fyrir varðveislu hússins. Ekki vildi Þorkell gefa neitt út á það hvort hann væri tilbúinn í viðræður við samtökin. „Það sem samtökin vilja gera núna var mér bannað af slökkviliðs- stjóra árið 1978.“ „Ég hlýt að harma ef að til niðurrifs Fjalakattarins kemur. Von okkar, sem að 9 líf

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.