NT - 04.05.1984, Side 4
Föstudagur 4. maí 1984 4
Borgarstjóri kynnir tillögur um skipan fræðslumála í Reykjavík:
Fræðsluskrifstofan lögð
niður sem borgarstofnun
- og skólaskrifstofa Reykjavíkur sett á laggirnar
■ DavíðOddssonborgarstjóri
kynnti tillögu að bókun á borg-
arráðsfundi í fyrradag, þar sem
lagt er til að fræðsluskrifstofa
Reykjavíkur verði lögð niður
sem borgarstofnun frá fyrsta
júní n.k. og frá sama tíma verði
hafinn rekstur skólaskrifstofu
■ Deilan um skipun Aslaugar Brynjólfsdóttur í stöðu fræðslustjóra Reykjavíkur er nú attur komin upp á ytirborðið. Nú hefur Davíð
Oddsson borgarstjóri lagt til að skrifstofa hennar verði aflögð sem borgarstofnun.
Reykjavíkur. Starfsmanna-
stjóra borgarinnar verði falið að
ganga frá uppsögnum starfs-
manna fræðsluskrifstofunnar og
ráðning starfsmanna við skóla-
skrifstofuna í samráði við þá
sem veita henni forstöðu. Þeir
verða samkvæmt tillögu borgar-
stjóra Ragnar Georgsson skóla-
málafulltrúi, og Björn Halldórs-
son lögfræðingur; Ragnar yrði
forstöðumaður kennslumála-
deildar og Björn forstöðumaður
fjármáladeildar. Borgarráð
frestaði afgreiðslu málsins.
Hér hefur skotið upp kollin-
um að nýju gamalt deilumál,
sem gjarna gekk undir heitinu
„fræðslustjóramálið." Þegar
Áslaug Brynjólfsdóttir var
skipuð fræðslustjóri í Reykjavík
í andstöðu borgarstjórnarmeiri-
hlutans, gerði sami meirihluti
tillögur um nýskipan fræðslu-
mála borgarinnar í samráði við
menntamálaráðuneytið. Samn-
ingsdrög milli borgarinnar og
ráðuneytisins í sama anda og
ofangreindar tillögur borgar-
stjóra lágu fyrir í fyrravor, en
þáverandi menntamálaráðherra
Ingvar Gíslason neitaði að stað-
festa drögin, enda lá þá fyrir álit
lögfræðinga þess efnis að þau
stæðust ekki landslög, þ.e.
grunnskólalögin frá 1974. Borg-
arstjórn samþykkti þrátt fyrir
það 19. maí fyrir tæpu ári að
fela borgarstjóra að hrinda sam-
komulagsdrögunum í
framkvæmd. Framkvæmd
þeirra hefði í för með sér að
skólaskrifstofa Reykjavíkur
færi með flest þau mál sem nú
heyra undir fræðslustjóra.
Skólaskrifstofan yrði borgar-
stofnun og heyrði undir borgar-
ráð/borgarstjórn og fram-
kvæmdastjórn borgarstjóra.
Hættið að borða kartöflur
- Þær eru að stórum hluta „óþverri1
■ Neytendasamtökin beina
þeirri áskorun til almennings
að draga úr eða hætta neyslu
kartaflna meðan boðið er upp
á jafn slæma vöru og nú er
reyndin. Ennfremur er
mönnum bent á að skila til
kaupmanna eða Grænmet-
isverslunarinnar öllum ónýtum
kartöflum og krefjast nýrrar
ógallaðrar vöru í staðinn.
Neytendasamtökin skera
nú upp herör gegn þeim kart-
öflum sem hafðar eru til sölu í
búðum um þessar mundir og
virðist þar af leiðandi ætlast til
að fólk leggi sér til munns.
Samtökin hata uú fyrir
skemmstu í tvígang athugað
gæði þeirra kartaflna sem á
markaðnum eru. í fyrra skiptið
reyndist rúmur þriðjungur
kartaflnanna flokkast í þriðja
flokk eða neðar, þ.e. nánast
úrgangur.
Grænmetisverslunin
seinheppin
Forráðamenn Grænmet-
isverslunarinnar kvörtuðu yfir
því að ekki hefðu verið tekin
sýnishorn úr pökkunarsal
þeirra. Til að bæta úr þessu
voru teknir 5 pokar af kar-
töflum úr pökkunarsal Græn-
metisverslunarinriar og athug-
aðir.
Ekki batnaði ástandið við
þetta, því nú reyndust þrír
pokar af fimm, eða 60% eiga
heima í þriðja flokki og neðar.
Fjarlægið þennan óþverra
Vegna þess óþverra sem vart
varð við í könnun Neytenda-
samtakanna, hefur Neytenda-
félag Reykjavíkur sent Holl-
ustuvernd ríkisins, heilbrigðis-
eftirliti og heilbrigðisfulltrúum
á höfuðborgarsvæðinu bréf,
þar sem farið er fram á að
fjarlægðar verði úr verslunum
skemmdar og rotnandi kar-
töflur, enda afleitt að slík vara
sé innan um matvæli.
CrænmelisverslíB
Ætlar land-
búnaðarráð-
herra að hætta
að borða
kartöflur?
■ Hvora kartöfluhrúguna viltu heldur leggja þér til munns. Þú mátt velja - þó ekki fyrr en þú ert bumn
að klippa myndina sundur í miðju og fleygja hægri helmingnum.
■ Neytendasamtökin
hafa beint þeirri áskorun
til almennings að hætta að
borða kartöflur meðan
boðið er upp á jafn slæma
vöru og nú er reyndin. NT
sneri sér til landbúnaðar-
ráðherra, Jóns Helgason-
ar og spurði hann hvort
hann ætlaði að taka þess-
ari ábendingu og hætta að
borða kartöflur:
„Nei, ég geri ekki ráð
fyrir því, en hins vegar
get ég hiklaust sagt það,
að mér finnst skipta ákaf-
lega rniklu máli að kar-
töflur séu góðar, því góðar
kartöflur eru góður matur
en vondar kartöflur eru
vondur matur.“
Hvers vegna er svona
erfitt að fá góðar kartöflur
á íslandi?
„Það var nú viðtal við|
forstjóra Grænmetisversl-
unarinnar í sjónvarpi, þar
,sem hann skýrði það að
ikartöflurnar hefðu ekki
þolað þessa geymslu, enda
er það ekkert nýtt. Við
þekkjum þessi geymslu-
vandræði líka af inn-
lendum kartöflum."
Erlendis virðist nú samt
hægt að fá sæmilega góðar
kartöflur allt árið.
„En viðþurfumaðflytja j
þær erlendis frá, hingað.“
En væri þá ekki hægt að I
flytja þær í kæligámum.
Eru þetta ekki hreint og |
beint einhverjar úrgangs-
kartöflur sem verið er að j
flytja inn?
„Það hygg ég nú alls I
ekki vera. Þetta eru
finnskar kartöflur, þær
sömu og þeir nota á sínum
markaði." .