NT


NT - 04.05.1984, Síða 9

NT - 04.05.1984, Síða 9
Föstudagur 4. maí 1984 9 Vettvaragiur ■ Mér virðist að fjölmargir stjórnmálamenn skilji ekki eða vilji ekki skilja vandamálið og hversu áhrifaríkt það er í öllu þjóðlífinu og hve rætur þess standa víða. Stjórnmálamönnunum var gefið tækifæri til að leysa vand- ann með samkomulaginu, og lagasetningunni frá 1979 um breytingu á jarðræktarlögun- um. En með afgreiðslu fjárlaga þau fimm ár, sem síðan eru liðin hafa alþingismenn íslend- inga sýnt að þeir skilja ekki grundvallaratriði mannlegra samskipta þ.e. að standa við gerða samninga. Vandamálið, sem átti að leysa er að mestum hluta óleyst enn og hefur vaxið að umfangi og það brennur nú heitt á fjölmörgum landsmönnum. Margar byggðir ríða til falls ,vegna vanhæfni stjórnmála- manna til að taka á vandamál- unum og leysa þau. Nú er verið að tala um að gera þurfi nýjan fimm ára samning um lausn vandans. Enginn efast um einlægni for- sætisráðherra, Steingríms Her- mannssonar og nokkurra ann- arra alþingismanna í þessu máli. En geta bændur, að feng- inni þeirri reynslu, er að fram- an er lýst, treyst á að Alþingi stæði við gerðan samning, sem stjórnvöld kynnu að gera við bændur um þetta efni? Fólkið í hinum dreifðu byggðum krefst úrlausnar og aðgerða, svo að það neyðist ekki til að yfirgefa staðfestu sína og slást í hóp atvinnuleys- ingja á mölinni í Reykjavík. Eða er það keppikerfli stjórnmálamanna að svo verði? j Viðhald byggðar í dreifbýli I er ekki landbúnaðarmál. Það ■ „Þessi vandi snertir allt fólk, sem vinnur við úrvinnslu landbúnaðarvara í þéttbýli er þjóðmál. landsins. Hann snertir fólkið, sem vinnur við verslunar- og þjónustustörf fýrir landbúnaðinn og Reykjavík, 30. apríl 1984 það snertir ullar- og skinnaiðnaðinn og það fólk, sem þar starfar og enn fleiri“. Gunnar Guðbjartsson hinsvegar um að framlög ríkis- ins skv. jarðræktarlögum til almennra framkvæmda í land- búnaði yrðu minnkuð verulega frá og með árinu 1980 og að því fé, sem þannig sparaðist, yrði veitt til eflingar og styrktar nýjum búgreinum i fimm ár. Alþingi samþykkti lagabreyt- ingu um þetta efni. Þeir fjár- munir, sem þannig spöruðust voru sem hér segir: Einsog fram kemur í þessu yfirliti hefur fjárveitingavaldið ekki staðið við gert samkomu- lag í þessu efni. Sumir stjórnmálamenn og ýmsir aðrir áhrifaaðilar í þjóð- félaginu, þar á meðal ýmsir fjölmiðlamenn virðast reiðu- búnir til að súpa sorann úr áróðri Dagblaðsins og Vísis gegn landbúnaðinum og gera andúðina á landbúnaðinum að eigin stefnumarki, en láta lönd Ár. Sparn. kr. 1980 5,09nullj. 1981 11,08 millj. 1982 11,50 millj. 1983 17,41 miUj. 1984 48,00 millj. Samt. 93,08 millj. Fjárveitingar á fjárlögum sem runnu til aðstoðar nýjum búgreinum kr. 4,96 millj. 7,60 millj. 5,24 millj. 10,94 millj. ca. 28,00millj. 56,74 millj. Kr. Mismunur vöntun: 0,13 millj. 3,48 millj. 6,26 millj. 6,47 mUlj. ca. 20,00 millj. 36,34 mUIj. og leið að skilja það mikla þjóðfélagsvandamál sem hér er fyrir hendi og reyna að finna lausn á því. Það er ekki landbúnaðarins að leysa þann félagslega og atvinnulega vanda, sem skap- ast í sveitum, þorpum og kaup- stöðum landsins ef hefðbundin búvöruframleiðsla er dregin saman. Það er þjóðfélags- vandamál, sem stjórnmála- menn verða að horfast í augu við, taka á og leysa. Þessi vandi snertir allt fólk, sem vinnur við úrvinnslu land- búnaðarvara í þéttbýli landsins. Hann snertir fólkið, sem vinnur við verslunar og þjónustustörf fyrir landbúnað- inn og það snertir ullar og skinnaiðnaðinn og það fólk, sem þar starfar og enn fleiri iðnaðarfyrirtæki. felldu hins vegar samningana og gengu til sérviðræðna við atvinnurekendur. Dagsbrún í Reykjavík var þar stærst. Þeg- ar félög velja að fara aðra leið en gert er í heildarsamningi er ástæðan trúlega yfirleitt tvíþætt. Annars vegar ýmiskonar sérstaða þess hóps sem í hlut á og hins vegar önnur baráttu- staða en almennt er. Hvort tveggja þetta mun hafa átt við að þessu sinni. Ég sé ekki að um efniságreining sé að ræða og fæ því ekki séð að atburðir síðustu mánaða muni leiða til hnökra í samstarfinu í framtíð- inni. Ég er þess fullviss að innan verkalýðshreyfingarinn- ar er traust samstaða um þau verkefni sem framundan eru. Einn þáttur í gagnrýni á samningana á vetur kom mér illilega í opna skjöldu. Það er sú eindregna fordæming sem úr óvæntum áttum mætti þeim félagslegu úrbótum sem gerðar voru í tengslum við samning- ana. Hið ótrúlegasta fólk lýsti því yfir að þessi mál hefði átt að leysa með aukinni kaup- hækkun. Ég tel það óraunhæft tal að ætla að leysa vandamál einstæðra foreldra, barnmar- gra fjölskyldna með lágar tekj- ur eða öryrkja og aldraðra með almennri kauphækkun. Það er naumast rökrétt að reikna með því að einstæðum foreldrum sé greitt hærra kaup en giftu fólki eða barnmörgu fólki hærra en barnlausu. Ég tel þá fordæmingu sem hér kom upp fráleita og hættulega félaglega afsiðun, fyrirlitningu á þeim sem við erfiðleika eiga að stríða. Þeir sem sterkar standa verða að veita þeim veikari stuðning. Verkalýðs- baráttan er ekki bara barátta um kaup og kjör. Samkennd okkar með þeim sem erfiðast eiga gerir tilkall til þess að við gleymum þeim ekki. Okkur er skylt að sýna samhjálp í verki en láta ekki orðið standa eftir sem skrautmælgi á tylli- dögum.“ Ný atvinnu- tækifæri Fátt er eins mikilvægt í hagkerfi okkar íslendinga í dag og að skapa ný og arðbær atvinnutækifæri. Sú einhæfa atvinnumálastefna að byggja allt á sjávarútvegi getur aldrei gengið til lengdar eins og undanfarin misseri hafa ef til vill best sýnt. Nýjar hugmyndir eins og fiskirækt og nýjar bú- greinar eins og loðdýrarækt verðum við að þróa. Athygl- isverðasta hugmyndin í þessu sambandi er þó sú, sem kom upp á aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins á Akur- eyri um síðustu helgi, þ.e. að veita 500 milljónum til háþró- aðs iðnaðar á næstu fimm árum. Möguleikar okkar á sviðum eins og rafeindaiðnaði og lífefnaiðnaði geta verið ó- takmarkaðir. Um atvinnumálin og at- vinnuleysisdrauginn sagði Ásmundur annars: „Ef við eigum að tryggja hér atvinnu til frambúðar, og ná varanlegum árangri í barátt- unni gegn verðbólgunni, hlýtur frumforsenda að vera ný- sköpun arðbærra atvinnutæki- færa. Atvinnuástand er nú mjög í hættu, bæði vegna þess mikla samdráttar sem stjórn- völd hafa leitt yfir almenning. Ef ekki verður gripið til raun- hæfra aðgerða getur almennur atvinnumissir blasað við. Reynsla nágrannalandanna sýnir okkur ótvírætt að það er auðveldara að detta í atvinnu- leysisgryfjuna, en ná sér upp úr henni aftur. í flestum löndum í kringum okkur er um 10. hver maður atvinnulaus. Það samsvarar því að tíu til tólf þúsund manns væru at- vinnulausir á íslandi. Það er meira en tvöfaldur fjöldi allra vinnandi manna í Austurlands- kjördæmi öllu. Hjá því ástandi verðum við að komast, og til þess verða stjórnvöld að breyta um stefnu. Uppbygging öflugs efnahagslífs verður að koma í stað kjaraskerðingar. I.september í lok ræðu sinnar fjallaði Ásmundur um næsta þrepið í kjarabaráttunni en eins og kunnugt er, verður hægt að segja samningunum upp frá og með 1. september n.k. „Kaupliðir samninga eru uppsegjanlegirm.v. 1. septem- ber, en ákvörðun hefur ekki verið tekin um það hvort því ákvæði verði beitt. Næstkom- andi mánudag hefur Alþýðu- sambandið boðað til fundar þar sem fulltrúar landssamb- anda og svæðasambanda munu koma saman til þess að ræða stöðu kjaramála og þau verk- efni sem framundan eru. Þegar við metum hvort samningum skuli sagt upp 1. september munum við skoða hvert stefnir með forsendur samningsins í vetur. Með að- gerðarleysi sínu í almennri stjórn efnahagsmála, tilfærsl- um til fjármagnseigenda og álögum á launafólk raðar ríkis- stjórnin lóðum á þá vogarskál að samningum verði sagt upp. Við hljótum einnig að meta ástandið almennt, meta styrk samstöðunnar og stöðu okkar til átaka. Verði tekin ákvörðun um uppsögn samninga felur sú ákvörðun í sér ákvörðun um að ganga lengra, sækja meira en þau þrjú prósent sem eru í vændum 1. september verði samningar látnir standa. Með uppsögn samninga væri tekin ákvörðun um að beita hörku, því atvinnurekendur eru ekki líklegir til þess að láta neitt af hendi þegjandi og hljóðalaust. Ákvörðun verður að taka að vel athuguðu máli. Hvað sem dagsetningu líður er hins vegar ljóst að verkalýðshreyfingin ætlar launafólki stærri hlut. Það er brýnt að ná auknum kaupmætti. Það er brýnt að styrkja stöðu þeirra sem veik- astir standa. Annað meginverkefni er að knýja fram breytta efnahags- stefnu í landinu. Efnahags- stefnu sem hafi að markmiði að tryggja fulla atvinnu um allt land. Öll launþegasamtök landsins verða að knýja á í þessu efni. Góðir félagar! Eins og áður er samstaða forsenda árang- urs. Styrk þess sterka verður að beita til hagsbóta fyrir þann sem minna má sín. Samkennd okkar hvers með öðru, sam- kennd okkar með þeim sem veikt standa, samkennd en ekki sérhyggja er það afl sem á knýr. Góðir félagar. Við fylkjum okkur um kröfur dagsins. Við krefjumst bættra kjara og traustrar atvinnu. Við fylkjum okkur í samstöðu um þau verk- efni sem framundan eru. Stöndum saman. Sýnum styrk.“ m fíF Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn fi.f. Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og Þórarinn Þórarinsson Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verð í lausasölu 25 kr. Áskrift 250 kr. Setning og umbrot: Tœknideild NT. Prentun: Biaðaprent hf. Ræða Asmundar ■ Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands, flutti ræðu á hátíðafundi verkalýðssamtak- anna á Norðfirði. í ræðu sinni lagði Ásmundur mikla áherzlu á atvinnuöryggið, en segja má, að það sé nú mál málanna hjá verkalýðsstéttunum um allan heim. Um þetta mál sagði Ásmundur meðal annars: „Ef við eigum að tryggja hér atvinnu íil frambúðar, og ná varanlegum árangri í baráttunni gegn verðbólg- unni, hlýtur frumforsenda að vera nýsköpun arð- bærra atvinnutækifæra. Atvinnuástand er nú mjög í hættu, bæði vegna þess mikla samdráttar fiskafla, sem við stöndum frammi fyrir og eins vegna þess tekjusamdráttar sem stjórnvöld hafa leitt yfir al- menning. Ef ekki verður gripið til raunhæfra aðgerða getur almennur atvinnumissir blasað við. Reynsla nágrannalandanna sýnir okkur ótvírætt, að það er auðveldara að detta í atvinnuleysis- gryfjuna en ná sér upp úr henni aftur. í flestum löndum í kring um okkur er um 10. hver maður atvinnulaus. Það samsvarar því að tíu til tólf þúsund manns væru atvinnulausir á íslandi. Það er meira en tvöfaldur fjöldi allra vinnandi manna í Austurlands- kjördæmi öllu.“ Pað er vissulega mikilsvert, að forseti Alþýðu- sambandsins varar þjóðina við að falla í atvinnuleys- isgryfjuna. Það verður hins vegar ekki gert með því að halda uppi falskri kaupgetu. Það er einmitt öruggasta leiðin niður í gryfjuna. Hættunni verður að bægja frá með því að styrkja grundvöll atvinnuveganna og hefjast handa um nýsköpun á atvinnusviðinu, eins og eftirminnilega var lagt til á Akureyrarfundi miðstjórnar Framsókn- arflokksins. í framangreindum ummælum forseta Alþýðusambandsins er tekið undir þá skoðun. Það kemur vel í ljós í framangreindum ummælum forseta Alþýðusambandsins að stjórnarstefnan hér á ekkert skylt við leiftursóknarstefnu Reagans og Thatchers, sem hefur leitt til þess, að í löndum þeirra gengur tíundi hver maður atvinnulaus. Hér er hins vegar næstum ekkert atvinnuleysi. Það talar skýrustu máli um muninn á stjórnarstefnunni hér og þar. Atvinnuleysinu verður hins vegar ekki bægt frá dyrum landsmanna, nema áfram verði fylgt ábyrgri efnahagsstefnu og kappsamlega unnið að því að efla atvinnulífið. Það er jafnt undirstaða atvinnuöryggis og raunhæfra kjarabóta. Erlendu skuldirnar ■ Það er vissulega nokkurt áhyggjuefni að enn þurfi að auka erlendu lántökurnar vegna afkomu ríkissjóðs. Hjá því verður þó ekki komizt, þaf sem ekki náðist samkomulag um aðra tekjuöflun. Það kemur skýrt fram í Mbl. í gær, að undir forustu fjármálaráðherra snerist meirihluti þing- manna Sjálfstæðisflokksins gegn öllum skattahækk- unum, þótt ástæða væri til þess um skeið að búast við öðru. Eftir það var aukin erlend skuldasöfnun þrautalendingin. Einhver von mun til þess, að þrátt fyrir þetta fari erlendu skuldirnar ekki yfir það mark, sem stjórnin hafði sett sér.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.