NT - 04.05.1984, Side 17
* r. f f
Helgin -fframuncflarB
„Stærsta sýningin
sem ég hef haldið“
Segir Einar Hákonarson um sýningu sína á Kjarvalsstöðum
17
■ Frá 5.-20. maí heldur Einar
Hákonarson myndlistarmaður
sýningu á málverkum og
grafík á Kjarvalsstöðum. Á
sýningunni eru 59 olíumálverk
og 89 grafíkmyndir. Einar
sagði í samtali við NT að þetta
væri 10. einkasýning hans.
„Það eru tvö ár síðan ég
sýndi hér á Kjarvalsstöðum
síðast, en í millitíðinni hélt ég
grafíksýningu í London. Þessi
sýning er stærsta sýning sem ég
hef haldið. Olíumyndirnar eru
málaðar á sl. 2 árum, en grafík-
in er 20 ára yfirlit. Hluti af því,
þriðjungur, er sýning sem ég
hélt 1969 í Unuhúsi. Það var
fyrsta einkasýningin sem ís-
lenskur listamaður hélt á
grafík.“
- Hvað fæst þú helst við að
mála?
„Þetta eru áhrif frá mannlíf-
inu. Ein myndin heitir Skip-
brotsmaður og er máluð eftir
að skipbrotsmaðurinn synti til
lands í Heimaey. Svo er mynd
af skáldi sem bíður eftir anda-
gift. Mér finnst heldur iítið
hafa komið frá skáldum okkar
upp á síðkastið, þau bíða bara
eftir andagiftinni.
Bókmenntir hafa verið
grundvöllurinn að okkar
menningu. Ef við tökum t.d.
stríðsárin þá hvíldu aðrar list-
greinar á bókmenntum:
- Hvað finnst þér þá um
íslenska myndlist?
„Það er mun meiri kraftur
og gróska bæði í myndlist og
tónlist, þar hafa komið bita-
stæðari hlutir en í bók-
menntum. Svo er mikill áhugi
á kvikmyndagerð. Kannski
hefur rithöfundatendensinn
farið út í kvikmyndagerð. Það
Fóstudagur 4. maí 1984
stendur alveg klárt að hversu
góð sem tæknin er þá er það
hin skáldlega innsýn sem verð-
ur að vera til staðar í kvik-
myndinni."
- Hvað segirðu um þróun í
þínum verkum?
„Ég held að það sjáist á
sýningunni að munurinn frá
fyrri sýningum er sá að ég hef
aðeins starfað sem myndlist-
armaður síðan ég hætti sem
skólastjóri Myndlista- og hand-
íðaskólans, og myndmeðferð
og -hugsun hefur vonandi
þroskast."
„Ég gleymdi að minnast á að
það eru 30 nýjar grafíkmyndir
með. Ég tek períódur í grafík-
inni, og finnst gott að skipta
um efni að vinna í með vijsu
millibili."
- Hafa nýjar stefnur í mynd-
listinni haft einhver áhrif á þig?
„Ég er glaður yfir því að
menn eru farnir að mála aftur.
Hugmyndalistin höfðaði lítíð
til mín. Ég hef alltaf litið á mig
sem expressíónista, tilfinn-
ingamálara, og nýja málverkið
gengur mikið út á það. Ég held
að ég sé það balanséraður
málari að það hafi haft lítil
áhrif. Þó hef ég losað um í
ýmsum myndum."
- Þú er t með ýmsar trúarleg-
ar myndir?
„Já, tvær eða þrjár. Þær
voru sýndar á kirkjulistarsýn-
ingunni. Meginhugsunin í
þeim er að færa þetta til okkar
tíma.“
„Finnst ég vera að mála mig
og mínar tilfinningar“
Talað við Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur listmálara
■ Laugardaginn 5. maí kl.
14.00 verður opnuð í List-
munahúsinu við Lækjargötu
sýning á málverkum eftir Jó-
hönnu Kristínu Yngvadóttur.
Jóhanna er 29 ára gömul, lauk
námi við MHI árið 1976 en
fór þá til Hollands og nam þar
í fjögur ár. Við spjölluðum við
Jóhönnu niðri í Listmunahúsi.
- Hefurðusýnt oft áður?
„Tvisvar, fyrst í Nýlistasafn-
inu á síðasta ári og svo líka í
Landspítalanum, einnig á síð-
■ Jóhanna Kristín með dótt-
ur sinni í Listmunahúsinu.
NT-mynd Sverrir.
asta ári. Að vísu áttu myndirn-
ar ekki heima þar.“
- Hvað geturðu sagt mér um
málverkin?
„Ég fjalla um samskipti mín
við fólk. Fólk erþaðsem hefur
mest álirif á mann, veldur
gleði ogsorg. Það hefura.m.k.
haft niest áhrif á mig og mitt
málverk.
Annars finnst mér ég alltaf
vera að mála sjálfa mig og
mínar tilfinningar.”
- Hvaða stefna er þetta?
„Þetta er fígúratívur ex-
pressíónismi."
-Byrjaðirðuungað teikna?
„Já, já, er maður ekki alltaf
teiknandi. Þetta er ein af frum-
þörfum mannsins.“
- Sýndirðu snemma mikla
hæfileika?
„Nei. í Myndlista- og hand-
íðaskólanum sagði Bragi As-
geirsson að ég væri afskaplega
þungmelt. Þá voru allar mynd-
irnar svartar eða dökkar.
Síðar sagði Bragi mér að í
Japan væri svart litur gleðinn-
ar, þannig að hann hefur breytt
skoðun sinni. Ég reyni að
koma hvorutveggja til skila,
sorg og gleði."
- Hvernig seldust verkin á
fyrri sýningunum?
„Ekki mikið."
- Skiptir það miklu máli?
„Nei, nei. Ég var bara hissa
að eitthvað seldist. Enda mála
ég ekki með það fyrir augum
að selja myndir.“
■ Einar Hákonarson við mynd sína „Bæn“.
Mánudagur
7. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Halldóra Þorvarðardóttir flytur
(a.v.d.v.). Á virkum degi - Stefán
Jökulsson - Kolbrún Halldórsdóttir
- Kristin Jónsdóttir. 7.25 Leikfimi.
Jónína Benediktsdóttir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Baldvin Þ. Kristjáns-
son talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hnffaparadansinn“ eftir Jón
frá Pálmholti Höfundur les (8).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl. (útdr.).
Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Kotra Endurtekinn þáttur Sig-
nýjar Pálsdóttur frá sunnudags-
kvöldi (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Lög úr kvikmyndum
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn-
ar Egilssonar; seinni hluti Þor-
steinn Hannesson les (18).
14.30 Miðdegistónleikar David Ger-
ingas og Tatjana Schatz leika á
selló og píanó „Sex ljóð“ eftir
Jóhannes Brahms.
14.45 Popphólfið - Sigurður Krist-
insson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16:15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna leikur forleik
að óperunni „Belfagor" eftir Ottor-
ino Respighi; Lamberto Gardelli
stj. / Lev Kuznetsov, Boris Dobrin,
Sergej Yavkovenko og Sinfóniu-
hljómsveit Moskvuútvarpsins flytja
atriði úr „Ágjarna riddaranum“,
óperu eftir Sergej Rakhmaninoff;
Gennady Rozhdestvensky stj. /
Leontyne Price syngur með Hljóm-
sveit Rómaróperunnar áriu úr óp-
erunni „Aidu" eftir Giuseppe Verdi;
Oliviero de Fabritiis stj. / Konung-
lega fílharmóniusveitin í Lundún-
um leikur „Simple Symphony" op.
4 eftir Benjamin Britten; Sir Mal-
colm Sargent stj.
17.10 Síðdegisvakan Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson og Borgþór S.
Kjærnested.
18.00 Vísindarásin Þór Jakobsson
ræðir við Pál Halldórsson eðlis-
fræðing um áhrif jaröskjálfta á
Islandi.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál Mörður Amason
talar.
19.40 Um daginn og veginn Sigurö-
ur Magnússon fyrrv. blaðafulltrúi
talar.
20.00 Löng unga fólksins. Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Vatnajökulsleið
og Árnakvæði; síðari hluti Sig-
urður Kristinsson tekur saman og
flytur. b. Tilberi og tilberamóðir
Sigríður Schiöth les frásögn úr
Grimu. Umsjón:HelgaÁgústsdótt-
ir.
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir
les valdar sögur úr safninu í
þýðingu Steingríms Thorsteins-
sonar (7).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Ríkisútvarp, grenndarútvarp.
Þáttur um skipan útvarpsmála i
Svíþjóð. Umsjónarmenn: Ólafur
Angantýssonog ÞorgeirÓlafsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárfok.
Þriðjudagur
8. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. þáttur Marðar
Árnasonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Bjarnfríður Leósdóttir
talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hnífaparadansinn" eftir Jón
frá Pálmholti. Höfundur lýkur
lestrinum (9).
9.20 Leikflmi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Man ég það sem iöngu leið“
Ragnheiöur Viggósdóttir sér um
þáttinn.
11.15 Við Pollinn Ingimar Eydal
velur og kynnir létta tónlist
(RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Tim Hardin, Arlo Guthrie,
Bob Dylan o.fl. syngja og leika.
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn-
ar Egilssonar; seinni hluti Þor-
steinn Hannesson les (19).
14.30 Upptaktur - Guðmundur
Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Islensk tónlist Sinfóníuhljóm-
sveit Islands leikur „Concerto
breve" eftir Herbert H. Ágústsson;
Páll P. Pálsson stj. / Guðrún Tóm-
asdóttir syngur lög eftir Þorstein
Valdimarsson. Ólafur Vignir Al-
bertsson leikur með á píanó /
Sinfónfuhljómsveit íslands leikur
„Fáein haustlauf" eftir Pál P.
Pálsson; höfundurinn stj.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur:
Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig-
urðardóttir.
20.00 Sagan: Flambardssetrið II.
hluti „Flugið heillar" eftir K.M.
Peyton Silja Aðalsteinsdóttir byrjar
léstur þýðingar sinnar.
20.30 Ensk þjóðlög
20.40 Kvöidvaka a. „Síðasta fullið“
Aldís Baldvinsdóttir les sögu eftir
Sigurð Nordal; fyrri hluti. (Síðari
hluti verður fluttur á sama tíma á
morgun). b. Stefán Islandi syng-
ur
21.10 Vornóttin Umsjón: Ágústa
Björnsdóttir.
21.45 Útvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir
les valdar sögur úr safninu í
þýðingu Steingríms Thorsteins-
sonar (8).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Kvöfdtónleikar: Johan
Svendsen og verk hans Knútur
R. Magnússon kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok
Mánudagur
7. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-15.00 Dægurflugur Stjórn-
andi: Leópold Sveinsson
15.00-16.00 Á rólegu nótunum
Stjórnandi: Arnþrúður Karlsdóttir.
16.00-17.00 Á Norðurslóðum
Stjórnandi: Kormákur Bragason.
17.00-18.00 Asatími (umferðarþátt-
ur) Stjórnendur: Ragnheiður
Davíðsdóttir og Július Einarsson.
Þriðjudagur
8. maí
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson, og Jón Ólafsson.
14.00-15.00 Vagg og velta Stjórn-
andi: Gísli Sveinn Loflsson.
16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur Stjórn-
andi: Kristján Sigurjónsson.
17.00-18.00 Frístund Stjórnandi: Eð-
varð Ingólfsson.
Mánudagur
7. maí
19.35 Tommi og Jenni Bandarísk
teiknimynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Heilsulindir - lækning eða
leyndardómur Kanadisk heim-
ildamynd. I meira en 2000 ár hefur
fólk leitaö sér lækninga á gigt og
öðrum kvillum með laugum eða
leirböðum, oft með góðum árangri.
i myndinni er vitjað nokkurra
kunnra heilsulinda og fjallaö um
lækningamátt þeirra. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
21.40 Kusk á hvítflibbann. Endur-
sýning Sjónvarpsleikrit eftir Davið
Oddsson. Leikstjóri Andrés Ind-
riðason. Leikendur: Árni Ibsen,
Elfa Gísladóttir, Þóra Friðriksdóttir,
Jón Sigurbjörnsson, Ragnheiður
Arnardóttir, Sigurður Sigurjóns-
son, Jóhanna Norðfjörð, Borgar
Garðarsson, Gunnar Rafn Guð-
jónsson, Steindór Hjörleifsson og
Róbert Arnfinnsson. Eirikur er
ungur og framsækinn maður i
góðri stöðu. Atvikin haga þvi svo
að á hann fellur grunur um eitur-
lyfjabrask og verður hann að sæta
gæsluvarðhaldi meðan málið er
rannsakað.
Áður sýnt í Sjónvarpinu á jólum
1981.
22.35 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
23.10 Fréttir í dagskrárlok
Þriöjudagur
8. maí
19.35 Hnáturnar 9. þáttur. Breskur
teiknimyndaflokkur. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen. Sögumaður
Edda Björgvinsdóttir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Veiðikló Bresk náttúrulífsmynd
um ránbjöllur, ein skæðustu rándýr
í hópi skorkvikinda. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
21.05 Norður og Suður - Veröld í
vanda i þættinum er fjallað um
samskipti ríkra iðnríkja norðursins
og þróunarlanda í suðri en bilið
milli þeirra hefur verið að breikka i
seinni tið. Rætt verður við ýmsa
menn sem hafa látið þetta málefni
til sin taka á alþjóðavettvangi og
sóttu ráöstefnu á vegum Evrópu-
ráðsins í Lissabon i siðasta mán-
uði, þar sem fjallað var um hlutverk
Evrópurikja í samskiptum Norðurs
og Suðurs. Þættinum lýkur með
umræðum í sjónvarpssal. Umsjón-
armaður Ögmundur Jónasson.
22.15 Snákurinn Þriðji þáttur. Italsk-
ur framhaldsmyndaflokkur í fjórum
þáttum. Þýðandi Þuríður Magnús-
dóttir.
23.15 Fréttir í dagskrárlok.