NT - 04.05.1984, Page 23
Þúsund Sikhar hand-
teknir á Indlandi
■ í gær handtók lögreglan í
Nýju Delí um 9.800 Sikha sem
mótmæltu stefnu stjórnvalda í
málefnum Punjabfylkis þar sem
Sikhar eru í meirihluta.
Indverjar skiptast í mikinn
fjölda þjóðflokka og þjóðar-
brota, sem tala mismunandi
tungumál sem ekki skiljast inn-
byrðist, hafa mismunandi siði
og venjur og aðhyllast ólík trúar-
brögð. Allt frá því að Indland
varð sjálfstætt ríki árið 1947 og
jafnvel lengur hafa trúarbragða-
deilur og þjóðernisrígur sett
svip á Indland.
Indland skiptist í fylki sem
hafa nokkra sjálfsstjórn í eigin
málum en stjórnvöld í Nýju
Delí hafa samt úrslitavald í
öllum mikilvægum málum.
Þjóðernissinnar, sem tilheyra
ýmsum þjóðflokkum, gera sig
samt ekki allir ánægðir með
þessa takmörkuðu sjálfsstjórn.
Þeir krefjast aukins sjálfstæðis
og segja að ekki hafi Verið tekið
nægjanlegt tillit til þess hvernig
raunveruleg skipting Indlands
milli þjóðarbrota er þegar
landamörk fylkjanna voru á-
kveðin.
Órói meðal Sikha, sem eru
meirihluti íbúa íPunjab-fylki,
hefur að undanförnu verið sér-
staklega mikill. Öfgasinnar úr
þeirra röðum hafa staðið að
bankaránum, sprengjutilræðum
og þeir hafa rofið járnbrautalín-
ur undanfarin tvö ár. Hinir
róttækustu meðal Sikha krefjast
algjörs sjálfstæðis og sam-
■ Claus von Búlow, sem er
ákærður fyrir að hafa gert
tilraun til að myrða forríka
eiginkonu sína, fékk mál sitt
tekið upp á ný og hefur þessi
málarekstur vakið mikla at-
hygli. Von Biilow er danskur
að ætt en hefur búið mestall-
an sinn aldur í Bandaríkjun-
um, þar sem mikið hefur
borið á honum í samkvæmis-
lífí fína fóksins. Fyrír tveim
árum var hann ákærður fyrir
að reyna að myrða eiginkonu
sína með smáskömmtum af
arseniki. Hún hefur legið
fársjúk á spítala í nokkur ár.
Eiginmaðurínn var iátinn
laus gegn einnar milljón doll-
ara tryggingu og hefur hann
gert ítrekaðar tilraunir til að
fá mál sitt tekið upp á ný og
tókst það loks í síðustu viku.
En í gær fékk von Búlow
alvarlegt taugaáfall og var
ekið með hraði á sjúkrahús
þar sem hann liggur nú þungt
haldinn. Myndin var tekin af
honum er hann fékk mál sitt
tekið upp á ný fyrír helgina.
Símamynd Polfoto
bandsslita við Indland. Peir vilja
stofna nýtt ríki á svæði sem þeir
kalla Khalistan og nær ekki
aðeins yfir Punjabfylki heldur
einnig hluta af nágrannafylkum
þar sem Sikhar eru líka fjöl-
mennir.
Stjórnin í Nýju Delí getur
ekki fallist á þessar kröfur því
að stofnun sjálfstæðs ríkis í
Khalistan hlyti að ýta undir
þjóðernissinna í öðrum fylkjum
og Indland myndi leysast upp í
mikinn fjölda smærri ríkja.
Núverandi forsætisráðherra
Indlands, Indira Ghandi, reyndi
í fyrra að friða mótmælendur
með því að láta undan sumum
kröfum þeirra á sviði trúmáia,
en með litlum sem engum ár-
angri.
Síðustu mánuði og vikur hafa
öfgasinnar í röðum Sikha orði æ
djarfari í árásum sínum. Á
þessu ári hafa þeir drepið meira
en 160 manns. Nokkrir af leið-
togum þeirra hafa haft bæki-
stöðvar í hofum þar sem þeir
hafa stjórnað hryðjuverkum.
Stjórnvöld hafa ekki þorað að
ráðast til inngöngu í hofin þar
sem slíkt gæti aukið andstöðu
almennings sem lítur á hofin
sem heilaga staði sem séu frið-
helgir.
Þann 26. apríl síðastliðinn
ákváðu yfirvöld samt loksins að
láta til skarar skríða. Herlög-
reglan umkringdi þrjú af hofum
Sikha þar sem vitað var að
nokkrir öfgasinnaðir leiðtogar
þeirra hefðust við. í skotbar-
daga sem þá varð féllu sjö
manns. Öfgasinnarnir tóku þá
tæplega 350 manns í gíslingu
sem höfðu verið staddir fyrir
tilviljun í hofunum.
Lögreglan greip þá til þess
ráðs að loka fyrir vatn og raf-
magn til hofanna auk þess sem
bannað var að fara með matvæli
þangað.
Sikhar voru margir mjög óá-
nægðir með aðgerðir herlög-
reglunnar og hvernig stjórnin
tók á þessum málum. Sikhar
mótmæltu þess vegna í gær í
Nýju Delí. Lögreglan handtók
þá um 9800 manns og hélt þeim
um tíma á íþróttaleikvangi rétt
fyrir utan borgina.
Skömmu seinna gáfust svo
öfgasinnarnir sem voru 16, loks-
ins upp enda voru þeir orðnir
aðframkomnir vegna hungurs
og vatnsleysis auk þess sem ljóst
var að íbúar hverfisins, þar sem
þessir aburðir urðu, höfðu snú-
ist gegn þeim.
Almennt er búist við því að
indversk stjórnvöld muni nú
sýna meiri hörku en áður í
viðskiptum sínum við róttæka
Sikha..
(Byggt á Rcuter og fleiri heimildum)
■ Það er erfítt verk að halda Indverjum sameinuðum. Svona hugsar teiknari Asíutímarítsins Far
Eastem Economic Review sér baráttu stjórnarinnar í Nýju Delí undir forystu Indíru Gandi gegn
sundrung ríkisins.
Pólland:
Lýðræðislegrar stjórnarskrár
minnst með mótmælum í gær
PóUand-Reuter
■ Mörg þúsund Pólverjar
hlýddur í gær kaili hinna bönn-
uðu verkalýðsfélaga, Samstöðu
og mótmæltu stefnu stjórnvalda
eftir að hafa sótt kirkjur í
Varsjá og Gdansk.
Sjónvarvottar segja að 4-7000
manns hafi tekið þátt í mótmæl-
um eftir messu í Stanislaw-
kirkju en stuðningsmenn Sam-
stöðu sækja þá kirkju reglulega.
Mótmælendur gengu fylktu liði
Breski landssím-
inn seldur í haust
London-Reuter.
■ Telecom, eða breski lands-
síminn verður seldur í haust.
Verðgildi hans er metið á níu
milljarða sterlingspunda, eða
um 400 milljarða ísi. kr. Petta er
liður í þeim áformum bresku
ríkisstjórnarinnar að selja
einkaaðilum ríkisfyrirtæki.
Selja á 51% hlutabréfa síma-
kerfisins. Verður það mesta hluta-
bréfasala eins fyrirtækis sem um
getur í Bretlandi fyrr og síðar.
Norman Tebbit verslunar- og
iðnaðarráðherra tilkynnti söl-
una í breska þinginu. Hann
kvað ekki víst hvað vel yrði
boðið í bréfin, verð þeirra færi
eftir markaðshorfum í haust.
Starfsmenn símans fá hver um
sig gefins hlutabréf fyrir sem
svarar 3 þús. ísl. kr og ef þeir
hafa hug á að kaupa fleiri
hlutabréf fá þeir þau með sér-
stökum kjörum. Einnig verður
18 milljónum símnotenda gef-
inn kostur að eignast hluti í
fyrirtækinu.
eftir þröngum strætum Varsjár-
borgar þar til lögreglan réðst á
þá með bareflum á nálægu torgi.
Lögreglan elti mótmælendur
þar sem þeir flýðu inn í kaffi- og
veitingahús. Margir voru dregn-
ir í burtu og lokaðir inni í
brynvörðum bílum sem fluttu
þá burt.
Um þrjú þúsund manns tóku
þátt í svipuðum mótmælaað-
gerðum í Gdansk.
Mótmælin núna voru haldin í
framhaldi af mótmælum sem
Samstaða boðaði til 1. maí og
náðu til sjö borga. Tilefni þeirra
var m.a. að minnast lýðræðis-
legrar stjómarskrár sem Pólverj-
ar fengu 3. maí árið 1791.
Föstudagur 4. maí 1984 23
■ Páfinn við komuna til Suður-Kóreu. Hann sagðist vonast til að
þjóðfélagið þar yrði mannlegra.
Páfinn vill
sameiningu
Norður- og
Suður-Kóreu
Stúdentar nota heimsókn páfa
til mótmæla gegn stjóminni
Scoul-Reuter
■ Jóhannes Páll páfi annar
kom í gær til Suður-Kóreu en
þetta er í fyrsta skiptið sem
páfinn heimsækir Kóreu.
Við komuna til höfuðborgar
Suður-Kóreu, Seoul, sagðist
páfinn vona að þjóðfélagið þar
yrði mannlegra í framtíðinni.
hann sagði enn fremur að hann
bæði fyrir því að Suður- og
Norður-Kórea muni sameinast
með friðsamlegum hætti en
Kóreuskaginn er eitt helsta
spennusvæði í Asíu. Bæði
Norður- og Suður-Kóreumenn
hafa öfluga heri sem eru í
stöðugri viðbragðsstöðu ef til
átaka skyldi koma þótt báðir
aðilar hafi lýst yfir friðarvilja og
ósk um sameiningu.
Á undanförnum fimmtán
árum hefur kaþólikum fjölgað
mjög ört í Suður-Kóreu og eru
Lífið í sveitinni
Mjaltakonurnar
fullar og
kýrnar stálma
■ Sífellt ber meira á því að
blöð í Sovétríkjunum vanda
um fyrir þegnunum og reyna
að leiða þeim fyrir sjónir
hvernig á ekki að haga sér í
sosíalísku þjóðfélagi. Drykkju-
skapur og slugs við vinnuna
er eitt af því sem reynt er að
venja þjóðina af og virðist sú
viðleitni ekki ganga nægilega
vel því mikið er skrifað um
þessa ósiði.
Ef marka má þessar grein-
ar virðist drykkjuskapur
meðal sovéskra kvenna vera
að færast í vöxt. Kveður svo
ramt að þessu að mjaltakon-
urnar í sveitinni eru farnar
að gleyma að mjólka kýrnar
vegna drykkjuskapar, og
mikil mjólk fer til spillis af
þessum sökum.
Sovjetskaja Rossija ervíð-
lesið blað, sem nýverið
endurbirti grein úr landbún-
aðarblaðinu Selskaia Zhizn,
og er hún skrifuð af nafn-
kenndum sálfræðingi. Segir
sá að ekki sé hægt að loka
augunum fyrir hve ört
drykkjusýkin breiðist út
meðal kvenna og fer hann
mörgum orðum um þetta
alvarlega vandamál.
í sama blaði er önnur
grein, þar sem fjallað er um
sama mál og sagt að það sé
alkunna að til þessa hafi
alkoholismi aðallega verið
karlasjúkdómur en nú sé
þetta að breytast og sífellt
fleiri konur verði drykkju-
sýki að bráð. í enn einni
grein í sama blaðið segir að
konur sem taki veikina verði
enn fljótar háðar henni og
fari að drekka reglubundið
og sé erfitt að lækna þær.
í Sovjetskaja Rossija var
lýsing á lífinu í sveitinni og
segir þar að þá daga sem
launin eru borguð út gleymi
mjaltastúlkurnar öllu um hús
og heimili og jafnvel mjólk-
urkúnum, en drekki þar til
síðasta rúblan er uppurin.
þeir nú meira en 1.7 milljónir.
Margir þeirra eru í andstöðu við
núverandi stjórnvöld og óska
þess að þjóðfélagið verði
mannúðlegra og lýðræðislegra
en það er núna.
Stúdentar í Seoul notuðu
heimsókn páfans til þess að efna
til mótmæla gegn stjórnvöldum.
Um þúsund háskólanemendur
tóku þátt í mótmælum þar í
gær. Um fimmhundruðstúdent-
um lenti saman við óeirðalög-
reglu í aðeins 500 metra fjar-
lægð frá kirkjugarði þar sem
páfinn var í heimsókn. Peir
köstuðu grjóti í lögregluna og
kölluð vígorð gegn Chun Doo-
hwan forseta Suður-Kóreu sem
þeir sökuðu um að bæla niður
lýðræði. Lögreglan skaut tára-
gassprengjum að mótmæl
endum til að dreifa þeim.