NT - 12.05.1984, Blaðsíða 10
Laugardagur 12. maí 1984 10
DREIFARAR
(14 POKAR)
Hagstætt verð — Góð greiðslukjör
HAFB) SAMBAND - VIÐ SEMJVM
VHABCCe
Bíldshöfða 8 - Símar 8-66-55 & 8-66-80
1. Háls 11 Skanki 17. Slag
2. Herðakambur 12 Síða 18. Skanki
3. Hryggur 13 Klumpur 19. Lundir
6 Þríhyrningur 15. Kviðstykki 20. Bringa
7. Hali 16. Kviðstykki 21 Innanlærisvöóvi
Nautahakk 10 kg. pk....................... kr. 145.- pr. kg.
Nauta-Tbone .............................. kr. 235.- pr. kg.
Nauta-Snitchel ........................... kr. 375.- pr. kg.
Nauta-Gullash ............................ kr. 327,- pr. kg.
Nauta-Roastbeef........................... kr. 348.- pr. kg.
Nauta-Hamborgarar .........................kr. 14.- pr. st.
Kindahakk ................................ kr. 99.- pr. kg.
Lambahakk ................................ kr. 107.- pr. kg.
Ath. kjötverðið hjá okkur er um
40% lægra en almennt verð.
KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalæk 2.S.865II
_____Mirming
Finnbogi Magnússon
skipstjóri Patreksfirði
Fæddur 28. maí 1931
Dáinn 2. maí 1984
■ Hann Bogi er dáinn! Það kom að vísu
ekki óvænt, en fráfall vinar vekur ætíð
trega.
Hann hefur haldið úr höfn í sína
síðustu sjóferð, til þeirrar heimahafnar,
sem við öll náum landi í, að lokum. Góða
ferð vinur og þakka þér fyrir þessa stuttu
samfylgd, sem við urðum aðnjótandi.
Við minnumst þess með þakklæti, að ef
við leituðum til þín með eitthvað, sem þú
gast leyst úr, þá gérðir þú það.
Elsku Stína arama, Dómhildur og þið
öll! Fyrir honum er stríðinu lokið og hann
bíður rólegur samfundanna. Hann siglir
nú lygnan sjó. Við munum minnast hans
eins og hann var: Ötull og óþreytandi,
féll aldrei verk úr hendi, hann gafst aldrei
upp. Guð blessi minningu hans og létti
ykkur sorgina.
Svenni og Begga.
Árnad heilla
Sextugur 5. maí 1984
Ólafur Ólafsson, kaupfélags-
stjóri frá Syðstu-Mörk
Þar sem litlir lækir falla
og Ljósá niður bratta hjalla
stendur fríður bóndabær,
- birki í varpa blaðríkt grær -
Hérna er hann í heiminn borinn,
hérna gekk hann fyrstu sporin.
Á hið liðna ljóma slær.
Útitekinn ungur drengur
afskaplega hratt þar gengur
finnur hjá sér fjör og mátt.
Sól í heiði sunnanátt.
Undi sér í leik við lækinn
lífsglaður og skyldurækinn,
enginn strákur hló eins hátt.
Að Laugarvatni ungur ók hann
alvarlega námið tók hann,
eljan tendruð ungri glóð.
Vinir margir, vistin góð.
Fljótt var hann við flokk sinn bundinn
frjáls í máli björt hver stundin,
- en fyrir sínu fastur stóð.
Sá hið góða í samvinnunni,
sögu hennar nam og kunni,
hugsjón rættist ein og ein,
blöðin mörg á grænni grein.
Stefndi hátt og hóf upp merki
hét að sýna orð í verki
og fyrirheitin festa í stein.
Smiði lét hann byggja og byggja
betri framtíð vildi hann tryggja
og framkvæma hinn forna draum.
Hamrar glumdu hátt á saum.
Bæta verslun vinnu skapa
voga, reyna og þora að tapa,
en beita alltaf upp í straum.
Þannig ætíð áfram miðar
oft þótt reki bát tii hliðar,
ér framtíðar skal byggja brú,
stoðir velja í betra bú
Ennþá gerast ævintýri
ef að þeir, sem halda um stýri
brýna viljann, byggja á trú
- kynda eldinn eins og þú.
Pálmi Eyjólfsson
Minn-
inga-
grein-
ar
■ Þeim, sem
óska birtingar
á minninga-
greinum í blað-
inu, er bent á,
að þær þurfa að
berast a.m.k.
tveim dögum
fyrir birtingar-
dag. Þær þurfa
að vera vélrit-
aðar.
t
Gestur Guðfinnsson
frá Litla-Galtardal
til heimilis Sigtúni 39, Reykjavík
verður i jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 14. maí
kl. 13:30.
Vandamenn.
Hugheilar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð
og hlýhug og lögðu okkur margvíslegt lið við andlát og útför
Gunnínu Sigtryggsdóttur
frá Vestara-Landi
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Húsavíkur fyrir
góða umönnun í veikindum hennar.
Sigrún Kristjánsdóttir
Sveinbjörn Aðalgeirsson
Vésteinn Aðalgeirsson
Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem á margan hátt
heiðruðu minningu frænda okkar
Halldórs Gísla Gunnlaugssonar
Kiðjabergi
sem andaðist 24. apríl s.l.
Blessuð veri minning hans.
Guð blessi ykkur öll.
Systkinabörnin