NT


NT - 15.05.1984, Side 23

NT - 15.05.1984, Side 23
Ákvörðun okkar er endanleg - segja Sovétmenn um Ólympíuleikana ■ Sovéska fréttastofan APN hafði það í gær eftir formanni sovésku Ólympíunefndarinnar að ákvörðunin um að taka ekki þátt í Ólympíuleikunum í Los Angeles í sumar væri endanleg og henni yrði ekki breytt. Formaður Ólympíunefndar Sovétmanna sagði í ræðu, sem hann hélt í Moskvu í gær að Sovétmenn væru alls ekki að hundsa Ólympíuleikana þótt þeir sendu ekki lið. Pað væri rangt hjá vestrænum fréttastof- um að lýsa ákvörðun Sovét- manna sem „boycotti“. Sovét- menn brytu ekki gegn reglum Alþjóðaólympíunefndarinnar þótt þeir sendu ekki lið til leikanna í sumar. Hin raunveru- lega orsök fyrir því að Sovét- menn treystu sér ekki til að senda lið væri ekki pólitísk held- ur sú að öryggi íþróttamanna væri ófullnægjandi og öfgasinn- aðir hópar í Bandaríkjunum ætluðu sér að nota leikana til andsovésks áróðurs. Formaðurinn flutti þessa ræðu eftir árangurslausar við- ræður við fulltrúa frá Alþjóða- ólympíunefndinni sem reyndu j að telja Sovétmönnum hughvarf. ■ íþróttaráðherra Sovétríkj- anna, Marat Gramov, sem jafn- framt er formaður sovésku Ól- ympíunefndarinnar sagði í gær að Sovétmenn myndu ekki breyta þeirri ákvörðun sinni að senda ekki lið til Ólympíuleik- anna í Los Angeles í sumar. Símamynd-POLFOTO Austur-Þýskaland: Sovéskum kjarnorku- flaugum fjölgað Moskva-Rcutcr ■ Sovéska fréttastofan Tass sagði frá því í gær að samkomu- lag hefði tekist milli sovéskra og austur-þýskra stjórnvalda um að fjölga sovéskum kjarnorku- flaugum í Austur-Þýskalandi. Tass hélt því fram að þetta væri svar við uppsetningu með- aldrægra kjarnorkuflauga í Vestur-Evrópu en ekki var sagt frá því í fréttinni hvenær á- kvörðunin um fjölgun kjarn- orkuflauga í Austur-Þýskalandi hefði verið tekin. Tass frétta- stofan sagði að í framtíðinni myndi Varsjárbandalagið að- eins setja upp nýjar kjarnorku- flaugar þegar slíkt væri nauð- synlegt til að viðhalda jafnvægi og bægja frá ógnun frá Banda- ríkjunum og bandamönnum þeirra. ■ Einn af leiðtogum stjómarandstæðinga á Filippseyjum, Lorenzo Tanada, greiðir atkvæði gegn þátttöku í þingkosning- unum þar í gær í svokallaðri „boycott-miðstöð" þar sem adstæðingar kosninganna sýndu hug sinn til kosninganna. Annars var kosningaþátttakan mun meiri en búist var við þrátt fyrir að margir stjórnarandstæðingar hvettu fólk til að greiða ekki atkvæði. Fyrstu tölur virtust líka benda til að þeim stjórnarandstæðingum, sem í framboði voru, hefði gengið mjög vel, sérstaklega í höfuðborginni Manila.___simamynd-POLFOTO Þriðjudagur 15. maí 1984 23 ■ Sjö Pólverjar sóttu í gær um pólitískt hæli í Svíþjóð eftir að og mun þessi sama vél hafa verið notuð til svipaðs flótta fyrir hafa flogið á þessari tveggja hreyfla vél yfír Eystrasalt. Pólverjarn- tveimur árum. Það er ekki að spyrja að nýtninni hjá Pólverjum. ir lentu á flugvelli nálægt Málmey. Þeir stálu flugvélinni í Póllandi Símamynd-POLFOTO ■ Ólafur konungur tók á móti Mitterrand á flugvellinum í Osló í gær en Mitterrand er fyrsti þjóðhöfðingi Frakka sem kemur í opinbera heimsókn til Noregs í 76 ár. símamynd-POLFOTO Mitterrand í Noregi Osló-Reuter Nasisti deyrúr krabba- meini Santiago-Rcutcr ■ Fyrrverandi nasista- foringi, Walter Rauff, lést í Chile í gær úr krabba- meini 77 ára að aldri. Hann var einn af þremur mest eftirlýstu nasistafor- ingjunum sem enn léku lausum hala. Walter Rauff bar meðal annarra ábyrgð á notkun færanlegra gasklefa í heimstyrjöldinni síðari. Það er talið að um 250 manns hafi verið myrtir í þessum klefum. Fyrir aðeins nokkrum mánuðum sendu stjórnir Vestur-Þýskalands, Frakklands, Bretlands, Bandaríkjanna og ísraels beiðni til stjórnarinnar í Chile um að hann yrði framseldur til þess að hægt væri að dæma hann fyrir glæpi sína. En herstjórnin í Chile neitaði að verða við þessum beiðnum á þeirri forsendu að dóms- úrskurður árið 1963 um að Walter Rauff skyldi ekki framseldur til Vestur- Þýskalands kæmi í veg fyr- ir framsal hans nú. Fyrir tuttugu árum skýrði Rauff frá því að kaþólskir prestar hefðu hjálpað sér að flýja í lok heimstyrjaldarinnar. Hann hefði fyrst dvalist í nokkurn tíma í Vatikan- inu en síðan hefði hann farið til Sýrlands. Árið 1949 hefði hann svo flust til Ecuador og þaðan til Chile árið 1958 en í Chile búa margir Þjóðverjar sem sumir eru sagðir hafa tengst nasistum. Þegar fréttin af láti Walter Rauffs barst til ís- raels sögðust embættis- menn þar vera vonsviknir því að þeir hefðu vonast til að geta leitt hann fyrir rétt þar sem hann hefði verið dæmdur fyrir glæpi sína. ísraelsku embættis- mennirnir sögðust óska þess að öðrum eftirlýstum stríðsglæpamönnum takist ekki líka að komast undan réttvísinni. ■ Forseti Frakklands, Franco- is Mitterrand, kom í gær til Noregs í opinbera heimsókn. Þar mun hann m.a. ræða við norsk stjórnvöld um stamstarf í orkumálum. Mitterrand er fyrsti þjóðar- leiðtogi Frakka sem heimsækir Noreg í 76 ár. { för með honum eru auk annarra samgöngu- málaráðherra Frakka, og póst- málaráðherra og utanríkisráð- herra Frakka, Claude Cheys- son, mun bætast í hópinn í dag. Frakkar hafa á undanförnum árum haft margs konar sam- vinnu við Norðmenn í orkumál- um í tengslum við olíu- og gaslindir Norðmanna í Norður- sjó. Norðmenn eru sagðir nokk- uð ánægðir með samvinnuna við Frakka fram til þessaog frönsk.fyrirtæki vonast til þess að nýir samningar verði undir- ritaðir um áframhaldandi og aukið samstarf. Enn fremur er búist við því að Frakkar og Norðmenn ræði um utanríkismál en þar eru norskir íhaldsmenn og franskir sósíalistar sammála í mörgum veigamiklum atriðum, t.d. hvað varðar staðsetningu nýrra með- aldrægra kjarnorkuflauga í Vestur-Evrópu. Olíuskip í björtu báli Bahrain-Rcutcr ■ Siglingar á Persaflóa eru nú orðnar mjög óör- uggar eftir að írakar hófu loftárásir á skip sem fara til írönsku hafnanna við Kharg-eyju og Bushire. Tryggingargjald fyrirskip, sem sigla á þessar hafnir hefur þegar hækkað mikiö og nú eru tryggingarfélög að endurskoða tryggingar- gjöld fyrir skip sem sigla til annarra hafna við Persaflóa. { gær stóðu þannig fjögur stór olíuskip í Ijós- um logum á flóanum eftir loftárásir íraka. Skipin eru fráSaudi-Arabíu, Kuwait. Panama og íran. Árásirn- ar auka líkurnar á því að stríðið breiðist enn út og fleiri ríki taki afstöðu með öðrum hvorum aðilanum. Vestur-Þýskaland: Áframhaldandi verkföll Stuttgart-Reuter ■ Málmiðnaðarsambandið í Vestur-Þýskalandi mun halda áfram skæruverkföllum til stuðnings kröfu sinni um stytt- ingu vinnuvikunnar niður í 35 stundir. Fyrsta verkfall sambandsins hófst í gær. Það náði til 13.000 verkamanna í 14 verksmiðjum í Stuttgart og nágrenni. BMW bílaverksmiðjurnar hafa þegar tilkynnt að ef verkföllin haldi áfram neyðist þær til að loka fjórum verksmiðjum sínum, þar sem 30.000 manns vinna, vegna skorts á ýmsum mikilvægum bílahlutum sem málmiðnaðar- menn framleiða. Volkswagen- verksmiðjurnar sögðust geta haldið áfram framleiðslu þrátt fyrir verkföll í að minnsta kosti eina viku en þá myndi verkfalls- ins fara að gæta. Talsmenn ann- arra bílaverksmiðja höfðu svip- aða sögu að segja. Leiðtogar málmiðnaðar- sambandsins hafa ekki fengist til að segja frá því hvernig þeir hyggjast haga skæruverkföllunum á næstunni. Þeir hafa þó sagt aö verkföll muni fljótlega hefjast í Frankfurt og nágrenni þar. sem margar helstu bílaverk- smiðjur Þjóðverja eru. j

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.