NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 03.07.1984, Qupperneq 7

NT - 03.07.1984, Qupperneq 7
ísfirðingar í Jónsmessuferð V/SA ,n2ZEZ^E3 buðu á ball í Vonarlandi ■ Það var líf og fjör í ferð ísfirskra hestamanna um síð- ustu helgi. Riðið var frá Holti í Önundarfirði gegnum Val- þjófsdal yfir Klúku og tjaldað á Ingjaldssandi. Þaðan var svo haldið í dagsferð næsta dag í Nefsdal. Um kvöldið sem var laugardagskvöld og Jóns- messa, var slegið upp balli í félagsheimilinu Vonarlandi og öllum hreppsbúum boðið til gleðskaparins sem heppnaðist með ágætum. Fyrir dansi léku bræður tveir, Guðmundur og Birgir frá Hrauni á Ingjalds- sandi á harmoniku og gítar. Hvort einhverjir hafi svo tekið sér bað í dögginni um nóttina eins og áar vorir gerðu eru engar óyggjandi heimildir til um, en einhverjir hafa sjálfsagt vöknað umrædda nótt. Daginn eftir var svo riðið til baka og þá farið inn Dýrafjörð framhjá Núpi og Gemlufalls- heiði inn í Önundarfjörð þar sem flestir reiðmannanna geyma hesta sína í hagagöngu hjá klerki Önfirðinga að Holti. Þegar flest var tóku 38 þátt í reiðinni, á aldrinum frá 9 til liðlega sjötugs. Orlofsdvöl aldraðra að Laugum ■ Orlofsdvöl aldraðra Vest- firðinga verður að Laugum í Sælingsdal 9. - 11. ágúst n.k. Þar er öll aðstaða til hvíldar og skemmtunarmjöggóð. Haldnar verða kvöldvökur og stiginn dans. Farin verður dagsferð um Borgarfjörð og Stykkishólmur heimsóttur. Þátttökugjald er kr. fimm þúsund. Þátttakendur geta ekki orðið fleiri en 45. Þeir sem hafa áhuga skrái sig hjá Sigrúnu Gísladóttur í síma 94- 7770 eftir kl. 17.00 frá'og með 25. júní. Ferðavasabók ■ Bókaútgáfari Fjölvís hefur gefið út ferðahandbók í vasa- broti. Bókin hefur að sögn út- gefanda að geyma ýmsar hag- kvæmar upplýsingar fyrir ferða- fólk, jafnt innanlands sem utan. ■ Sigurður Halldórsson, Elísabet Konráðsdóttir og sonur þeirra Sindri Páll kunnu greinilega vel að meta veðurblíðuna. ■ Einar Birgir Steinþórsson og Rannveig Traustadóttir kanna hvað leynist í gjafapokanum. Að baki þeirra stendur Sigurbjörn Kjartans- son tilbúinn með kveðjudrápuna. Ef þú ert á höttunum eftir einhverju sérstöhu... ergott að hafa (/I5A í vasanum ■ Og hopp og hí... Líf og fjör í Vonarlandi þegar ísfirðingar slógu þar upp balli nú síðustu helgi. Það er ITKIegt að þlg langl að versla dálítlð í næstu ferð þlnnl tll útlanda. Þá langar þlg Kannski að kaupa eltthvað sérstakt: sKartgrlpl, húsmuni eða vönduð föt, - eltthvað tll að gleðja fólklð helma. Þótt þú sért vafalítið tll í að Kosta miklu til, þá er ekki víst að þér flnnlst skynsamlegt að fórna síðustu seðlunum eða ferðatékk- unum í að kaupa grlpinn góða. En sértu með VI5A í vasanum ertu vel á vegl staddur. VI5A er elnn útbrelddastl gjaldmiðlll helms.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.