NT - 03.07.1984, Side 9
ia-
F-Vv''
Þriðjudagur 3. júlí 1984 9
kák
■ Flatey á Breiðafirði var vett-
vangur 24.helgarskákmótsins og var
mótið haldið um síðustu helgi í
einhverri mestu veðurblíðu sem kom-
ið hefur þar þetta sumar. 32 skák-
menn hófu keppni og varð baráttan
um efstu sætin að venju geysihörð og
spennandi. Þegar upp var staðið hafði
sá er þessar línur ritar sigrað á
mótinu, hlotið 6V2 vinning úr 7
skákum en þar á eftir kom Jón L.
Árnason með 6 vinninga úr sjö
skákum. Fyrirfram var búist við því
að keppnin um efsta sætið stæði milli
mín, Jóns L. og Karls Þorsteins.
Þetta rættist að nokkru.
Þegar þrjár umferðir höfðu verið
tefldar voru fjórir skákmenn með
fullt hús vinninga, undirritaður, Karl
Þorsteins, Gunnar Gunnarsson og
Jón L. Árnason. í fjórðu umferð
vann Jón L. snaggaralegan sigur á
Karli og undirritaður sigraði Gunnar
Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason í upphafi skákar sinnar í 5. umferð helgarskákmótsins í Flatey. NT-mynd jgk
24. helgarmótið haldið í Fiatey
Gunnarsson. Það þýddi að toppupp-
gjörið átti sér stað í 5. umferð en það
fór á þá vegu sem sést hér að neðan.
I 6. umferð vann ég Guðmund Hall-
dórsson og j>erði síðan jafntefli við
Ásgeir Þór Árnason í síðustu umferð.
Lokaröðin varð þessi: 1. Helgi Ólafs-
son 2. Jón L. Árnason 3.-6. Asgeir Þ.
Árnason, Gunnar Gunnarsson, Karl
Þorsteins og Tómas Björnsson allir
með 5 vinninga. 7.-8. Guðmundur
Halldórsson og Árni Á. Árnason, 4>/6
v.
Þrjár þeirra kvenna sem munu
skipa Olympíulið kvenna tóku þátt í
mótinu og náði Sigurlaug Friðþjófs-
dóttir bestum árangri þeirra.hlaut 4
vinninga. Guðlaug Þorsteinsdóttir
byrjaði vel, vann tvær fyrstu skákir
sínar en varð síðan að gera sér
jafntefli að góðu gegn Ásgeiri Þór
Árnasyni. Guðlaug tefldi miðtafl
þessarar skákar frábærlega vel og var
komin með gjörunnið tafl er hún féll
í eina af þeim gildrum sem Ásgeir er
svo þekktur fyrir:
m m m m
, m, m, ■£
h ® M, S A
JHI
a b
f g h
Guðlaug-Ásgeir
Þessi staða kom upp í kringum 50.
leikinn og þarf ekki að fara mörgum
orðurn um stöðuna, svartur er með
gjörtapað tafl. En það vinnur enginn
skák á því að gefa hana og það
sannast hér. Ásgeir kom auga á
laglega gildru:
1... Kh8
2. Hgxg7?? Hxf2t!
- Þar sem svarti kóngurinn er nú í,
pattstöðu verður ekki hjá jafntefli
komist. Svartur skákar á f2 og fl og
við því er ekkert að gera. Skák er
harður skóli, sagði Ásgeir eftir skák-
ina.
12 ára gömul stúlka, Jóhanna
Ágústsdóttir, vakti athygli fyrir
skemmtileg tilþrif í mörgum skákum.
Hún er frá Mýrartungu og er ekki
vitað til að hún hafi teflt í móti af
þessari styrkleikagráðu áður. Engu
að síður veitti hún andstæðingum
sínum harðvítugt viðnám. Eftirtekt-
arvert efni.
Bestum árangri skákmanna utan
höfuðborgarsvæðisins náði Þormar
Jónsson frá Patreksfirði. Sturla Pét-
ursson náði bestum árangri meðal
„öldunga" og af heimamönnum náði
bestum árangri Árni Sigmundsson.
Mótið í Flatey minnir um margt á
skákmótið í Grímsey fyrir þrem árum
síðan og líkt og þá heppnaðist mótið
í alla staði vel og verður lengi
í minnum haft. Aðstæðúr voru
þó með nokkuð öðrum hætti nú þar
sem keppendur bjuggu í tjöldum og
virtist ekki væsa um menn. Það er út
af fyrir sig aðdáunarvert afrek að það
skuli hafa tekist að koma mótinu til
Flateyjar, öðrum þræði byggja helg-
armótin á kynningu á skáklistinni og
hljóta að verða öðrum frumkvöðlum
í menningarlífi þjóðarinnar til hvatn-
ingar í þá átt að ráðist í aukna
menningarstarfssemi um land allt.
Tveir menn báru öðrum framar hitann
og þungann af mótshaldinu í Flatey
þeir Eysteinn Gíslason í Skáleyjum
og Hafsteinn Guðmundsson oddviti í
Flatey. Jóhann Þórir sá vitaskuld um
allt það er sneri að þátttöku skák-
manna af höfuðborgarsvæðinu.
Er þá komið að úrslitaskák
mótsins:
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Jón L. Árnason
Enskur leikur
1. Rf3 Rf6
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
4. Dc2 0-0
5. b3
(Eitt traustasta svar hvíts gegn upp-
byggingu svarts. Annar möguleiki er
5. g3 eða 5. e3.)
5. T. d5
(Það er hugsanlegt að þessi leikur
falli ekki vel að þróun stöðunnar.
Oftast er leikið 5-b6.)
6. Bb2 He8
(Hvítur nær yfirhöndinni eftir 6.-d4.
7. Rb5 c5 8.a3 Ba5 9. b4! o.s.frv.)
7. e3 Bf8
8. d4 c5
(E.t.v. var betra að leika 8.-b6.)
9. dxc5 Bxc5
(Það er ekki auðvelt að ná peðinu
aftur á annan hátt sem þýðir að
byrjun svarts hefur beðið skipbrot,
liann hefur leikið þessum biskup í
þrígang.)
10. Be2 Rc6
11.0-0 Dxc4
12. Bxc4 a6(?)
(Svártur uggir ekki að sér, hann hefur
tapað miklum tíma og þar sent þessi
leikur hefur ekki bein áhrif á gang
mála virkar hann sem tímasóun. Best
var 12. - De7 13. Re4 Rxe4 14. Dxe4
Bd7 o.s.frv.)
13. Hfdl De7
14. Re4! Rxe4
15. Dxe4 Bd7?
mmm
i
mM i •. ■
B É 1 I
BA #§I ■
fl &
b c d e f g h
(Hér varð svartur að reyna 15.-f6 þó
hvítur virðist geta tryggt sér varanlegt
frumkvæði með óvæntum leik, 16.
g4! með hugmyndinni 17. g5 eða 17.
Bd3 Textaleikurinn gefur hvítum kost
á snoturri fléttu sem stenst í öllum
afbrigðum. Þess má geta að Jón hafði
eytt miklum tíma í byrjunina og
hugðist bæta það upp með því að
leika 15.-BÓ7 svo til strax. Mistök
sem þessi eiga sér harla oft stað.)
16. Hxd7! Dxd7
17. Rg5 g6
(Að sjálfsögðu ekki 17. -f5 vegna 18.
Dxf5! o.s.frv.)
18. Dh4!
(Freistandi var 18. Rxh7 því 18. -
Kxh7 strandar á 19. Dh4f og 20. Dh8
mát. En svartur á leikinn 18. - Dd2
og þó hvítur nái vinningsstöðu með
19. Rfót Kf8 20. Dh4! Dxb2 21. Dh8t
Ke7 22. Rg8t! Hxg8 23. Dxb2 þá
tekur langan tíma að innbyrða vinn-
inginn.)
18... h5
(18.-Í5 strandar á 19. Rxe6! Hxe6 20.
Dxf6 og svartur er glataður.)
19. Re4! Be7
(Eða 19.-De7 20. Rf6t! (20. Dfóætti
einnig að vinna) Kf8 21. Dg5 Dd6 22.
Rh7t Kg8 23. Dh6 og vinnur.)
20. Rf6t Bxf6
21. Dxf6 e5
(Eða 21. - Kf8 22. Dg7t Ke7 23. Bf6t
Kd6 24. Hdlt o.s.frv.)
22. Dxg6 - Kh8
(Svartur verður fljótt nrát eftir 22. -
Kf8 23. Ba3!)
23. Bxf7 He6
24. Bxe6
—og Jón gafst upp.
Stærsta frímerkj asýning
á íslandi hefst 1 dag
7 Frímerkjasýningin NORDIA 84 verður
SS\. k opnuð í dag kl. 16.00 í Laugardalshöll
S og verður opin til kl. 21.00 í kvöld. Sýn-
ingunni lýkur n.k. sunnudagskvöld.
NORDIA 84
Þetta er umfangsmesta, fjölbreytilegasta og
skemmtilegasta frímerkjasýning, sem haldin
hefur verið hérlendis, enda þátttakendur frá
Norðurlöndunum fimm. Auk þess eru sýnd
söfn frá Færeyjum og Grænlandi.
Sem sýningarauki er merkilegt íslenskt korta-
safn, safn barmmerkja, Ijósmyndasýning,
sýning á leirmunum og fjórir myndlistarmenn
sýna verk sín.
Gerðir hafa verið 6 sérstimplar. í dag verður
í notkun stimpillinn „DAGUR ÍSLANDS“, á
morgun „DAGUR DANMERKUR“ o.s. frv.
NORDIA 84 er sérstæður menningarviðburð-
ur, sem við viljum að sem flestir njóti. Að-
gangseyri er því mjög stillt í hóf, kr. 50 fyrir
fullorðna og kr. 10 fyrir börn. Miði sem gildir
allan sýningartímann kostar kr. 150.
Póst- og símamálastjórnin hefur látið gera
þrjár smáarkir í tilefni sýningarinnar, og
rennur hluti af andvirði þeirra til styrktar
sýningunni. Tvær smáarkir eru úr gildi falln-
ar, en sú þriðja og fegursta verður til sölu til
loka sýningarinnar þann 8. júlí. Um leið og
sýningunni lýkur verður óselt upplag eyðilagt.
Sýningarnefnd hefur látið gera umslög og
kort í tilefni sýningarinnar í takmörkuðu upp-
lagi. Með sýningarskrá fylgir svonefnt svart-
prent í 2.500 eintaka upplagi. Ennfremur hef-
ur sýningarnefnd látið gera „nýprent“ í 8 þús.
eintaka upplagi.
18 aðilar eru með sölubása á sýningunni, svo
að búast má við fjörugum viðskiptum í hinum
fjölbreytilega heimi frímerkja, korta og um-
slaga.
Bandalag kvenna í Reykjavik sér um kaffisölu
og lofar veitingum í gömlum og góðum stíl.
Verið velkomin