NT - 03.07.1984, Blaðsíða 23
LO í? Þriðjudagur 3. júlí 1984 23
Ll L Útlönd
Demantar eyðast aldrei:
Sovétríkin stórauka
útflutning á demöntum
- Bandaríkin auka innflutning
Antverpen-Reuter
■ Sovétríkin hafa stóraukið
útflutning sinn á slípuðum dem-
öntum á þessu ári til að hressa
upp á gjaldeyrisforða sinn.
Framboð á sovéskum dem-
öntum hefur aukist um helming
á markaði í Antverpen á
fyrstu fintm mánuðum þessa árs
miðað við sama tíma á síðasta
ári. Þetta kom fram í skýrslu
sem lögð var fram á alþjóðiegri
demantaráðstefnu sem hófst í
Antverpen í gær.
Sovétríkin ákváðu á síðasta
ári að leggja áherslu á útflutning
á olíu og olíuvörum en þegar
markaðsverð lækkaði snéru þeir
sér að demöntum.
Þrátt fyrir aukinn útflutning
Sovétmanna er verð á dem-
öntum nú ívið hærra en í árslok
1982, að sögn talsmanns De
Beers, stærsta demantafyrirtæk-
is heirns. Rússar eru nefnilega
klókir kaupsýslumenn og hvort
sem um er að ræða demanta,
gull eða annað passa þeir upp á
að markaðurinn haldist stöð-
ugur, sagði þessi talsmaður.
Hann sagði einnig að Rússar
flyttu út um 20% allra óunna
demanta í heiminum en mark-
aðshlutdeild þeirra í slípuðum
demöntum væri lítil.
í skýrslunni sem lögð var
fram á ráðstefnunni í gær kom
fram að neytendur leggðu nú
meiri áherslu á demanta í háum
■gæðaflokki. Þetta ýtir undir
framleiðslu í Belgíu, ísrael og
Sovétríkjunum en Indland hef-
ur dregist afturúr.
Þá segir einnig að innflutning-
ur landa á slípuðum demöntum
sé í beinu hlutfalli við efnahags-
ástandið í landinu. Innflutning-
ur Bandaríkjanna og Japans
jókst um helnting á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs miðað við
1983, meðan Evrópulönd drógu
yfirleitt úr sínum kaupum,
nema Sviss sem stórjók sinn
innflutning.
í skýrslunni segir að efna-
hagsbati í Bandaríkjunum hafi
valdið því að fólk hafi meira á
milli handanna. Undanfarið
■ SænskafyrirtækiðTeleverk-
et er að hefja framleiðslu á
nýjum símaklefum sem þó eru í
gömlum stíl. Er hér í rauninni
um að ræða að smíða fornminj-
ar. Símaklefarþessirvoru teikn-
hefur þeim peningum verið var-
ið til kaupa á bílurn eða heimil-
istölvum en nú er búist við að
konurnar fái að taka þátt í
velgengninni og sala á dem-
öntum aukist.
í Frakklandi dróst sala á
demöntum hinsvegar santan um
18% á síðasta ári, vegna ýmissa
efnahagstakmarkana. Þóerlcitt
að því getum í skýrslunni að
aðir um aldamótin síðustu fyrir
Televerket og framleiðslan
hófst skömmu síðar. Var fyrsti
símaklefinn með pagóðuþakinu
settur upp í Trjágarði kóngsins
í Stokkhólmi árið 1901.
stjórnmálaástandið í landinu hafi
haft áhrif á tískuna. Fólk kinoki
sér við að bera dýra og vandaða
gimsteina.
í skýrslunni segir að Antverp-
en sé stærsta demantsiðnaðar-
miðstöð heimsins, og veltan á
fyrstu þrem mánuðum þessa árs
hafi veríð 1,4 biljónir banda-
ríkjadala, sem er 25% aukning
frá sama tímabili í fyrra.
Mikið var smíðað af þessum
klefum og voru þeir algengir í
borgum og bæjum en eru nú
sjaldséðir. Þeir hjá Televerket
segja að þörf sé á-að endurnýja
gömlu götumyndina í öllu nú-
tímafarganinu og fátt sé betur
til þess fallið en símaklefarnir.
Þeir verða nær alveg eins og
klefarnir sem smíðaðir voru um
aldamótin, nema síminn verður
nýtískulegur og öskubakkar og
snagar fyrir regnhlífar verða
ckki í nýju fornminjunum.
■ Þetta gerfitungl mun líklega
flnkkast undir geimrusl eftir
nokkur ár.
Menguní
geimnum
■ Þúsundir útbrunninna eld-
flaugamótora og gerfitungla
sem lokið hafa hlutverki sínu
sveima á braut umhverfis jörðu
og trufla geimskot og ný gervi-
tungl á braut. Þessu dóti fjölgar
óðtluga, sérstaklega eftir að far-
ið var að senda mikinn fjölda
gervitungla út fyrir aðdráttarafl
jarðar til fjarskipta.
Þetta „rusl" allt saman veldur
truflunum á rafeindatækjum og
sendingum milli jarðar og gervi-
tungla. Eftir því seni fjarskipta-
hnettirnir verða stærri og öflugri
trufla sendingar til þeirra og frá
önnur fjarskipti og sjá menn
ekki frant á annað en að þessi
vandræði eigi eftir að aukast til
mikilla niuna í framtíðinni.
■ Aftur er farið að smíða sams konar símaklefa og framleiddir
voru í Svíþjóð um aldamótin og þeir seldir út um borg og bý. Svona
klefi stóð lengi á Lækjartorgi en varð undan að láta eftir að þjóðin
komst á það menningarstig, að hlífa helst engu hvorki dauðu né
lifandi í sjó eða á landi.
Gamlir símaklefar verda reistir aftur
Radaug lýsi ngar
tilkynningar
Útivistarferðir
Símar: 14606 og 23732
Miðvikudagur 4. júlí kl. 20 Strompahellar.
Hellaskoðun. Fjölbreyttar hellamyndanir. Hafið
Ijós með. Verð 250 kr. Fríttf. börn m. fullorðnum.
Brottför frá BSÍ bensínsölu.
Sumardvöl í Þórsmörk. Fimmtud. 5. júlí kl.
8.00. Lengið helgarfríið eða dveljið heila viku í
Básum. Góð gistiaðstaða.
Einnig dagsferðir alla sunnudaga.
Uppl. á skrifst. Lækjarg. 6a. Sjáumst.
Útivist
Útivistarferðir
Símar: 14606 og 23732
Helgarferðir 6.-8. júlí
1. Þórsmörk. Góð gistiaðstaða í'Útivistarskálan-
um Básum. Gönguferðir við allra hæfi. Kvöld-
vaka.
2. Purkey - Breiðafjarðareyjar. Náttúruparadís
á Breiðafirði. Fuglaskoðun. Náttúruskoðun. Sigl-
ing m.a. í Klakkseyjar. Tilvalin fjölskylduferð.
3. Öræfi - Skaftafell Gönguferðir í þjóðgarðin-
um. Snjóbílaferðir í Mávabyggðir.
4. Öræfajökull Tjaldað í Skaftafelli.
5. Landmannahellir - Rauðfossafjöll.
Tjaldferð. Fjölbreytt svæði á Landmannaafrétti.
Upplýsingar og farmiðar á skrifst. Lækjargötu 6a,
símar: 14606 og 23732.
Sjáumst.
Ferðafélagið Útivist
Oskum eftir
þriggja til fjögurra herbergja íbúð sem fyrst. Erum
á götunni.
Upþlýsingar í síma 91-31752 eftir klukkan 19.
Vísindastyrkir
Atlantshafsbanda-
lagsins 1984
Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af
mörkum til að styrkja unga vísindamenn til
rannsóknastarfa eða framhaldsnáms erlendis.
Fjárhæð sú er á þessu ári hefur komið í hlut
íslendinga í framangreindu skyni nemur um
560.000 kr. og mun henni verða varið til að styrkja
menn, er lokið hafa kandídatsprófi í einhverri
grein raunvísinda, til framhaldsnáms eða rann-
sókna við erlendar vísindastofnanir, einkum í
aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins.
Umsóknum um styrki af fé þessu - „Nato Science
Fellowships" - skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 1.
ágúst n.k. Fylgja skulu staðfest afrit prófskírteina
svo og upplýsingar um starfsferil. Þá skal tekið
fram hvers konar framhaldsnám eða rannsóknir
umsækjandi ætli að stunda, við hvaða stofnanir
hann hyggst dvelja, svo og skal greina ráðgerðan
dvalartíma. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneyt-
inu.
Menntamálaráðuneytið
28. júní1984
atvinna - atvinna
LAUSAR stöður hja
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurhöfn
óskar að ráða SkrÍfstöfUStjÓra.
Krafist er stjórnunarmenntunar, helst á háskóla-
stigi og starísreynslu. Upplýsingar gefur Hafnar-
stjóri í síma 91-28211. Umsóknum ber að skila
til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar Pósthús-
stræti 9, 6. hæð á sérstökum umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn
9. júlí 1984.
Ritari
Óskum eftir að ráða ritaratil aö annast bréfaskrift-
ir, móttöku auglýsinga og ýmislegt sem til fellur í
sölu- og markaðsdeild okkar. Við leitum að
samviskusömum og dugmiklum vélritara, sem
hefur ánægju af fjölbreyttum verkefnum. Um-
sóknir með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist til NT % Haukur Haraldsson
Síðumúla 15 105 Reykjavík.
Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnað-
armál.