NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 03.07.1984, Qupperneq 24

NT - 03.07.1984, Qupperneq 24
tll' Þriðjudagur 3. júlí 1984 24 írakar réðust á flutn- ingaskip London-Keuter ■ Gríska flutningaskipið Alexandra Dyo var eitt þeirra skipa sem írakar réðust á í fyrradag á Persa- flóa. í frétt frá Lloyd’s tryggingafélaginu í London sagði að ráðist hefði verið á skipið þar sem það var á leið til hafnarborgarinnar Band- ar Khomeini í íran og manntjón hefði orðið í árásinni. Áður hafði utanríkis- ráðuneyti Suður-Kóreu tilkynnt að flutningaskipið Wonjin frá Suður-Kóreu hefði orðið fyrir íröksku flugskeyti og fjórir af 23 manna áhöfn hefðu særst. Ránið á Bólivíuforseta: Hluti valda- ránsáætlunar - fíkniefnalögreglan var uggandi um sinn hag La Paz Reuter ■ „Ránið á Zuazo forseta var hluti af valdaránsáætlun sem skipulögð af hermönnum, lög- reglu, hægri sinnuðum stjórn- málamönnum og eiturlyfja- smyglurum” sagði Gustavo San- hez fulltrúi í innanríkisráðu- neyti Bólivíu í gær. Tilkynnt var í Bólivíu að um 40 manns, þar af 3 fyrrverandi ráðherrar, hefðu verið hand- teknir vegna ránsins á forseta Bolivíu um helgina. Par á meðal var aðstoðarmaður varaforset- ans, Luis Ardaya major en hann skipulagði valdaránið. Þetta var fyrsta tilraun til stjórnarbyltingar í Bólivíu síðan Zuazo var kjörinn forseti árið 1982 eftir tveggja áratuga her- foringjastjórn í landinu. Heimildir innan stjórnarinnar sögðu að foringjar í sveitum þeim sem berjast gegn kókain- framleiðslu í Bólivíu hefði verið viðriðnir samsærið. Flokkurinn sem rændi forsetanum var úr „Hlébörðunum", sérsveit sem stofnuð var fyrir hálfu ári til að berjast gegn fíkniefnafram- leiðslunni. Stjórn Bólivíu hafði á prjónunum áætlanir um hreinsanir innan fíkniefnalög- reglu landsins en spilling er talin vera landlæg innan hennar. Bólivía er stærsti framleið- andi á kókainblöðum í heiminum og þaðan kemur hráefni nær helmings alls kókains sem dreift er um heiminn. Fór niður Niagarafossa í tunnu ■ Karel Soucet, 23ja ára gam- all Kanadamaður fór niður Niagarafossana í tunnu, en það hefur ekki verið leikið síðan 1961. Lögregla sagði að Soucet hefði skriðið á land eftir ævin- týrið og verið fluttur í skyndi á sjúkrahús með skurði, marbletti og brotinn handlegg. Öldungadeild Bandaríkjaþings: Búlgaría er þjóð hryðjuverkamanna Washington-Reuter ■ Öldungadeild Banda- ríkjaþings hefur samþykkt að lýsa því yfir að Búlgarar séu hryðjuverkamenn, vegna meintrar þátttöku Búlgara í banatilræðinu sem Jóhannesi Páli páfa II var sýnt fyrir þrem árum. 1 yfirlýsingunni segir að innanríkis- og viðskipta- ráðuneytin muni ekki verja neinum fjármunum til að greiða fyrir viðskiptum við Búlgaríu. Frumvarpið verður nú lagt fyrir full- trúadeild þingsins. Pað var þingmaður repúblikana, Jesse Helms sem lagði fram frumvarpið en hann er einn íhaldsam- asti þingmaður deildarinn- Flokkur frjálslyndra í Vestur Þýzkalandi á fallanda fæti Hann getur þurrkazt út í næstu þingkosningum ■ MARGT bendir orðið til þess, að Frjálslyndi flokkurinn í Vestur-Þýskalandi þurrkist út í næstu þingkosningum til sambandsþingsins í Bonn á þann hátt, að hann fái engan þingmann kosinn. Flokkurinn hefur orðið fyrir hverju áfall- inu á fætur öðru síðustu miss- erin. 1 kosningunum til þings Efnahagsbandalagsins, sem fóru fram í síðasta mánuði, náði flokkurinn ekki þeim fimm prósentum heildarat- kvæðamagnsins, sem þarf til þess að fá þingmann kosinn. í nokkrum fylkiskosningum að undanförnu hefur hann ekki náð 5% markinu. Takmarkaðar líkur virðast þannig á því, að tlokkurinn geti haldið velli í kosningun- um, sem eiga að fara fram til Bonnþingsins í síðasta lagi í ársbyrjun 1987, nema mikil breyting verði á forustu hans og vinnubrögðum. MARGT er það, sem veldur því, að Frjálslyndi flokkurinn er þannig á undanhaldi, en sennilega hefur það þó mest að segja, að Hans Dietrich Gensc- her hefur ekki reynzt flokkn- um farsæll og traustur for- ingi, en þýzkir kjósendur láta nú sem fyrr ekki síður stjórnast af mati á foringjum en málefn- um. Genscher hefur gegpt flokks- forustunni um tíu ára skeið og verið jafnlengi utanríkisráð- herra. Lítið hefur kveðið að honum sem utanríkisráðherra, enda stefnumótun í þeim mál- um verið mest í höndum forustu- manna samstarfsflokka hans í. ríkisstjórninni, fyrst hjá leið- togum sósíaldemókrata og nú hjá leiðtogum kristilegu flokk- anna. Genscher hefur því leik- Genscher og Bangemann Genscher og Lambsdorff ið eins konar peð í utanríkis- málum. Mikil andstaða reis gegn Genscher í flokknum, þegar hann hafði frumkvæði um að rjúfa samstarfið við sósíal- demókrata. Pað kann þó að hafa verið óhjákvæmilegt eins og á stóð. Flokkurinn komst líka klakklaust yfir þingkosn- ingarnar 1983. Andstaðan gegn Genscher hélzt þó áfram og hefur magn- azt svo að undanförnu, að fyrir kosningarnar til Evrópuþings- ins taldi hann ráðlegast að lýsa yfir því, að hann myndi afsala sér flokksforustunni á þingi flokksins 1986, en gaf jafn- framt til kynna, að hann myndi vera utanríkisráðherra áfram. Eftir ósigur flokksins í kosn- ingunum, hefur Genscher látið í það skína, að hann muni hætta flokksformennskunni ári fyrr en ætlað var eða á þingi flokksins 1985, en hann vill enn vera utanríkisráðherra áfram. Eftir kosningarnar til Evrópu- þingsins varð flokkurinn svo fyrir nýju og miklu áfalli. Sá ráðherra flokksins, sem hefur ekki aðeins verið talinn hæfasti foringi flokksins heldur einn hæfasti maðurinn í stjórn Kohls, Otto Lambsdorff efna- hagsmálaráðherra, tók skyndi- lega þá ákvörðun að segja af sér. Á síðastliðnum vetri ákvað ákæruvaldið í Vestur-Þýska- landi að ákæra Lambsdorff og nokkra menn aðra fyrir að hafa tekið við miklum fram- lögum til Frjálslynda flokksins frá þýzku auðfyrirtæki, sem um svipað leyti hafði fengið mikla skattaundanþágu, en Lambsdorff hafði verið einn þeirra ráðherra, sem fjölluðu um málið. Það er algengt að þýzku flokkarnir taki við slík- um framlögum, og skattaundan- þágan, sem fyrirtækið fékk, er talin fullkomlega lögleg. Ákæruvaldið taldi málið of gruggugt og vildi ekki taka það á sig að láta það falla niður.. Lambsdorff var því ákærður. Lambsdorff sagði þó ekki af sér, heldur sat áfram í trausti þess að dómararnir, sem áttu að fjalla um, hvort ákæran yrði tekin til greina, myndu vísa ar. Hann sagði að gögn sem ítalski saksóknarinn hefur lagt fram bendi ein- dregið til þess að Búlgar- íustjórn hafi átt þátt í að skipuleggja tilræðið við páfa. Opinbera fréttastofan í Búlgaríu hefur gagnrýnt harðlega þetta frumvarp. Og flokksblað kommún- istaflokks Búlgaríu sagði að atkvæðagreiðslan væri hluti af fjandsamlegri stefnu Reaganstjórnarinn- ar gagnvart sósíalískum ríkjum. Bandaríkin fluttu út vörur til Búlgaríu fyrir 66 milljónir dollara á síðasta ári en innflutningur frá Búlgaríu var verðlagður á 25 milljónir dollara. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar henni frá. Lögfræðingi Lambs- dorffs mun nýlega hafa borizt vitneskja um, að dómararnir myndu ekki treysta sér til að vísa ákærunni frá og málið gengi því til dómstólanna. Lambsdorff ákvað þá að scgja af sér. EFTIRMAÐUR Lambs- dorffs sem efnahagsmálaráð- herra var skipaður samstundis. Fyrir valinu varð Martin Bange- mann, 49 ára gamall lög- fræðingur, sem ekki hefur sér- staka reynslu á sviði efnahags- mála. Hann hafði átt sæti á þingi Efnahagsbandalags Evr- ópu, en féll í kosningunum á dögunum. Hann hafði áður gegnt ýmsum trúnaðarstörfum hjá Frjálslynda flokknum, m.a. verið framkvæmdastjóri flokksins 1974-1975, en hætt vegna ágreinings við Genscher. Bangemann var þá í hópi þeirra, sem vildu rjúfa samstarfið við sósíaldemó- krata. Ýmsir fréttaskýrendur spá því, að Bangemann verði val- inn eftirmaður Genschers sem formaður Frjálslynda flokksins. Hann verður þá að halda betur á spöðunum en f kosningunum til Evrópuþings- ins, ef flokkurinn á að halda velli í næstu kosningum til Bonnþingsins. Sumir fréttaskýrendur telja, að eftirmaður Lambsdorffs hafi verið ráðinn eins skyndi- lega og raun varð á vegna þess, að Kohl hafi ekki viljað láta Franz Josef Strauss fá tækifæri til að blanda sér í valið. Strauss hafði raunar öðrum hnöppum að hneppa, því að kona hans lézt í bílslysi um líkt leyti. Hann þykir hins vegar líklegur til að láta í sér heyra, þegar Genscher lætur af flokksfor- ustunni. Strauss er talinn hafa auga á embætti utanríkisráð- herra.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.