NT - 04.07.1984, Blaðsíða 3

NT - 04.07.1984, Blaðsíða 3
TVFiTMTTR ÁRUMOG 43173 FARPECÍÖVT SÍDAR. Áætlunarflug Amarflugs til þriggja borga á meginlandi Evrópu hefur haft mikil ogjákvæð áhrif á íslensk ferðamál. íslendingum hafa opnast nýjar og hentugar leiðir til meginlands Evrópu, sem þeir notfeera sér tugþúsundum saman. Erlendum ferðamönnum sem Arnarflug fiytur til íslands fjölgar stöðugt, og aukning vöruflutninga er ævintýraleg. Það er mikið átak fyrir flugfélag að hefja í tyrsta sinn áætlunarflug milli landa og það til borga erlendis sem áður hafa litla kynningu hlotið. En nú. tveimur árum síðar, þegar stutt er í 50 þúsundasta farþegann og byg'unarerfiðleikamir eru að baki er ástæða til að fagna þeim árangri sem náðst hefur. Áætlunarvélar Arnarflugs fjjúga nú sneisafullar milli landa ferð eftir ferð. Amarflug lítur því björtum augum til framtíðarinnar og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við íslenska og erlenda ferðalanga/á komandi árum. Nú flýgur Amarflug • Fjórar ferðir í viku til Amsterdam • Tvær ferðir í viku til Zúrich • Eina ferð í viku til Dusseldorf < v KAFI ’I ( )( í MET) m! í dag. 4. júlí, eru tvö ár frá því Arnarflug hóf áætlunarflug sitt til Amsterdam, Zurich og Dusseldorf. í tilefni dagsins býður félagið öllum viðskiptavinum sínum og ferðaskrifstofa sem selja farseðla Arnarflugs upp á rjúkandi hollenskt kaffi, svissneskt súkkulaði og sælgæti frá Þýskalandi. Líttu inn hjá okkur eða ferðaskrifstofunum, rifjaðu upp góð kynni og þiggðu hressingu! ■jiSjlSsK Flugfélag með ferskan blæ ARNARFLUG Lágmúla 7, slmi 84477 AUGLÝSINGAÞJÓNUSTAN

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.