NT - 04.07.1984, Side 28
LÚRIR ÞÚ Á FRÉfT?
HRINGDU ÞÁ Í SÍIX/IA68-65-38
Vid tökum vid ábendingum um fréttir allan sólarliringinn.
Greiddar verða 10OO krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir
til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir
til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
■ Amór Pétursson formað- ■ Hér sést Haukur Gunn-
ur íþróttafélags fatlaðra: arsson í 400 m hlaupinu, en
„Fórum með vonina í töskum hann varð þriðji.
út.“
„Við fórum
með vonina í
töskunum út“
segir Arnór Pétursson einn fararstjóra íslenska liðsins.
gaer.
■ Við komuna til Ketlavíkur í
„Ég æfði fjórum sinnum í
viku áður en ég fór út og stefnan
er að halda áfram að æfa og
keppa í framtíðinni" sagði
Sigrún.
Jónas Óskarsson:
„Ólýsanleg
tilfinning“
-Átti heimsmetið
í fjóra klukkutíma
■' „Ég var búinn að æfa mikið
fyrir leikana, en svona góðum
árangri átti ég ekki von á“ sagði
Jónas Oskarsson sem varð ann-
ar í 100 m bringusundi á Ólymp-
íuleikunum í New York. Jónas
átti heimsmetið í greininni, í
fjórar klukkustundir, þegar
hann synti á 1:14.16 mín. í
milliriðli.
„Petta er í annað skipti sem
ég keppi á Ólympíuleikum fatl-
aðra, ég var einnig með á
síðustu leikum sem haldnir voru
í Hollandi. Ég keppti þá í
lyftingum og náði þriðja sætinu.
Þá hef ég líka farið á Norður-
landamót og keppt.“
„Ég hætti í lyftingum og sneri
mér að sundinu og því sé ég
ekki eftir. Lyftingarnar koma
mér samt til góða, alla vega í
Tímamynd: Ari
bringusundinu, þar sem gott er
að vera handsterkur," sagði
Jónas Óskarsson Ólympíufari.
Hafdís Gunnarsdóttir:
„Þarf að fara út
í sveit til að æfa“
-en verð á lýðháskóla
í Noregi í vetur.
■ „Þaö voru svo fáir keppend-
ur í borðtennis, að mér finnst
eins og ég hafi fengið þessi
verðlaun gefins" sagði Hafdís
Gunnarsdóttir sem varð þriðja
í borðtennis, en hún varð einnig
í þriðja sæti í tvíliðaleik, ásamt
Hafdisi Ásgeirsdóttur. Þær
stöllur töpuðu mjög naumlega
fyrir Bretlandi, 3-2, en Bretland
varð í öðru sæti.
„Það hefði gengið betur hjá
okkur Hafdísi, ef við hefðum
verið búnar að æfa okkur
saman, en það gátum við ekki.“
„Ég hef tvívegis áður keppt á
mótum erlendis, í Solna í
Stokkhólmi og á afmælismóti í
Danmörku. Eg ætla að halda
áfram að keppa á mótum erl-
endis. f ágúst fer ég til Noregs í
lýðháskóla. í Noregi þar sem
aðaláherslan ér lögð á íþróttir.
Ég ætti þá að geta æft meira en
heima. Eg bý á Akureyri og
þarf að fara út í sveit til að æfa,
vegna þess að borðtennisíþrótt-
in er lítið sem ekkert stunduð á
Akureyri" sagði Hafdís Gunn-
arsdóttir í samtali við NT.
■ „Þessi árangur fer fram úr
okkar björtustu vonum. Við
hefðum ekki einu sinni þorað
að láta okkur dreyma um svona
góðan árangur1' sagði Arnór
Pétursson, einn af fararstjórum
íslenska íþróttafólksins, sem
tók þátt í Ólympíuleikum fatl-
aðra í New York, í sámtali við
blaðamann NT við heimkom-
unajgær.
„Ég vissi að Jónas Óskarsson
var mjög sterkur og hinir voru
vel yfír ÓÍympíulágmörkunum,
en annað vissum við ekki. Við
fórum með vonina í töskunni,
má segja.“
„Það var yfirleitt yfir 30 gráðu
hiti þegar verið var að keppa,
en þrátt fyrir það þá spruttu
þessir ungu krakkar, sem aldrei
hafa keppt á mótum erlendis,
út, þrátt fyrir mikið álag. Hauk-
ur Gunnarsson þurfti til dæmis
að hlaupa allt að fimm hlaup
sama daginn."
„Það þarf því ekki að kvíða
framtíðinni, ég er bjartsýnn á
hana. Við erum með geysilega
góðan efnivið, og við vitum um
marga sem ekki eru enn farnir
að æfa.“
„En eitt aðalstríðið í íþrótt-
um fatlaðra er að menn séu í
þessu heilsunnarvegna,fáiþjálf-
un og vissa endurhæfingu,
þannig að þeir verði betur í
stakk búnir til að takast á við
lífið. Ég leyfi mér að fullyrða
það að þau íþróttafélög sem
hafa íþróttir fatlaðra á stefnu-
skrá sinni, spari rikinu stórfé,
vegna þess að innlagnir fatlaðra
sem stunda íþróttir á sjúkrahús,
eru mun færri en hinna sem
ekki stunda íþróttir. Ég get
nefnt mörg dæmi þessu til
stuðnings'*.
„Með tilkomu íþróttahúss
fatlaðra í Hátúni, kemur okkar
aðstaða til með að breytast
mikið. Húsið breytir öllu. í stað
þess að vera út um hvippinn og
hvappinn þá verðum við a
einum stað þar sem allt er
hannað með þarfir fatlaðra í
huga. Þá ættum við að geta náð
til fleiri og jafnframt hlúð betur
að því afreksfólki sem við eig-
■ Jónas Óskarsson: „Ólýs- ■ Hafdís Gunnarsdóttir
anleg tilfinning.“ keppti í borðtennis.
um“ sagði Arnór Pétursson,
einn frumkvöðull íþrótta fatl-
aðra á íslandi og fararstjóri
íslensku Ólympíufaranna í New
York.
Haukur Gunnarsson:
„Var undir
heimsmetinu“
tvenn bronsverðlaun á
ÓL fatlaðra.
■ „Þetta er í fyrsta skipti scm
ég keppi á stórmóti á borð við
Ölympíuleika, þannig að það var
mjög gaman að vera þarna og
vinna til verðlauna“ sagði
Haukur Gunnarsson einn ís-
lensku Ólympíufaranna, í sam-
tali við NT.
Haukur, sem er aðeins 17 ára
gamall, náði frábærum árangri
á leikunum, en hann varð
þriðji í 200 og 400 m hlaupum.
Hann komst einnig í úrslit í 100
mhlaupiogvarð8. íkúluvarpi.
„í 400 m hlaupinu hljóp ég á
tíma, sem var undir gildandi
heimsmeti, ég var rétt á eftir
Kanadamanninum Robert Me-
arens, sem varð annar. Það var
Júgóslavinn Brudi Kockut sem
sigraði. Ég varð líka þriðji í 200
m hlaupinu. Það var Daninn
Ponsen sem sigraði, en Frakk-
inn Babte varð annar.“
„Ég byrjaði að æfa fyrir ári
síðan og ég undirbjó mig vel
fyrir þessa keppni, æfði oftast
þrisvar í viku. Ég er ákveðinn í
því að setja stefnuna á næstu
Ólimpíuleika, sem líklega
verða haldnir í Kóreu“,sagði
Haukur Gunnarsson brons-
verðlaunahafi á_ Ólympíu-
leikum fatlaðra, í samtali við
NT.
Sigrún Pétursdóttir:
„Gaman að
vera með“
-kom heim með eitt siif-
ur og tvö bronsverðlaun
■ „Ég er mjög ánægð með að
ná góðum árangri, en aðalatrið-
ið var að vera með, það var
mjög gaman“ sagði Sigrún Pét-
ursdóttir, í samtali við NT.
Sigrún varð önnur í 25 m bak-
sundi og þriðja í 25 m skriðsundi
og 50 m skriðsundi.
■ Haukur Gunnarsson: ■ Sigrún Pétursdóttir kom
„Það var gaman að vinna.“ heim með þrenn verðlaun.
Ólympíu*
leikar
fatlaðra: