NT - 21.07.1984, Side 1
Hrossadeila Blöndubænda:
Sýslumaður sendir lög-
reglumenn á staðinn
■ „Ég var að scnda lögreglu
út í dag til að kynna sér málið
- þeir munu tala við viðkom-
andi oddvita og kanna þetta á
annan hátt,“ sagði Jón ísberg
sýslumaður A-Húnavatns-
sýslu, spurður hvort fregnir
um að einhverjir bændur í
A-Hún séu búnir að reka
hross á Auðkúluheiði þrátt
fýrir bann landbúnaðarráðu-
neytisins, ættu við rök að
styðjast. Reynist hross komin
þarna fram eftir sagðist sýslu-
maður leggja málið fyrir
ráðuneytið. „(Yski það eftir að
þau verði þá sótt munum við
gera það“, sagði sýslumaður.
Sigurjón Lárusson, oddviti
á Tindum í Svínavatnshreppi,
kvaðst ekki vita til að menn
hafi rekið ennþá, enda komi
sér það mál ekki lengur við.
„Með ráðuneytisbanninu, sem
er það vitlausasta sem hægt var
að gera í stöðunni eins og hún
var orðin og gerði stórbölvun,
hefur þetta mál verið tekið úr
höndum sveitarstjórna og þá
skipti ég mér ekki nokkurn
hlut af þessu. Landbúnaðar-
ráðherra verður að stjórna
þessu héðan af,“ sagði Sigur-
jón.
„Hins vegar eru nokkrar
jarðir þarna inn frá þar sem
svo hagar til að þær eiga land
framan afréttargirðingarinnar,
og menn gera það ekki að
gamni sínu að sleppa yfirráða-
rétti yfir sínunt eigin löndum.
Bannið lendir hins vegar jafnt
á þeim og það sætta menn sig
ekki við. Hvað öðrum líður
veit ég ekki“. Sigurjón taldi
það á annan tug kílómetra sem
afréttargirðingin liggur þannig
í gegn um eignarlönd bænda,
þannig að sú girðing verði ekki
færð á stundinni.
Auðkúla er ein þessara jarða.
Ásbjörn bóndi Jóhannsson
sagði þónokkurn hluta síns
lands framan afréttargirðing-
arinnar og sagðist ekki sjá
hvernig það ætti að vera hægt
að banna honuin og öðrum að
beita sitt eigið land. „Það væri
þá alveg eins hægt að banna
okkur að beita hér heima við
tún.“ Ekki kannaðist hann þó
við að vera búinn að reka fram
fyrir girðinguna, - „hvað sem
maður kannski gerir seinna.“
■ Verða það einnig örlög
„Birnu“ að týna lífinu vegna
fádæma hugsunarleysis gesta
safnsins. Botninn á flöskunni
sem „Bjöm“ steig á hefur
ekki enn fundist, en líklega
hefur hann mélast við átakið.
Það virðist seint ætla að
takast að koma í veg fyrir þá
áráttu safngesta að kasta
flöskum inn til dýranna, en
tvívegis áður hafði bjöminn
skorið sig á glerflöskum.
NT-mynd: Árni Bjanu.
Steig á glerbrot og
drapst úr blóðeitrun
Heimsmet í spjótkasti:
100 metra múrinn í molum
Austur-Berlín-Reiiter
■ Austur-Þjóðverjinn Uwe
Hohn fleygði spjóti 104.80
metra á móti í Austur-Berlín í
gærkvöldi.
Hohn verður þannig fyrsti
maðurinn til að kasta spjóti
meira en 100 metra. Hohn
bætti eldra heimsmet, sem
Bandaríkjamaðurinn Tom
Petranoff átti, um 5.08 metra.
Heimsmet Petranoffs var
99.72 metrar.
Á sama móti setti búlgarska
stúlkan Ludmilla Andonova
nýtt heimsmet í hástökki
kvenna, 2.07 metra.
■ Hann hefur varla gert sér
grein fyrir því maðurinn sem
henti tómri glerflösku í ís-
bjarnargryfjuna í Sædýrasafn-
inu í Hafnarfirði að flaskan ætti
eftir að drepa stærsta ísbjörn í
heimi.
Isbjöminn „Björn“ drapst á
þriðjudag vegna meiðsla sem
hann hlaut þegar hann steig á
glerflösku. Igerð komst í sárið
og fékk Bjöm blóðeitrun sem
dró hann til dauða. Björn var 15
ára og var talinn stærsti ísbjörn
í dýragarði í heiminum.
Starfsmenn Sædýrasafnsins
tóku eftir því á sunnudaginn var
að ísbjörninn var haltur. Strax
var reynt að koma honum inn í
hús svo hægt væri að skoða
sárið. Kallað var á dýralækni,
sem kom næsta dag. Læknirinn
reyndi að gefa Birni súlfalyf til
varnar blóðeitrun, en björninn
leit ekki við matnum sem lyfin
voru sett í. Ekki fékkst hann
heldur til að drekka og þaðan af
....~y)|iiii"iyi'1iw'i'"iii"u,i III n.
Skatturinn á
miðvikudag
■ Álagningarskrár skatta
verða lagðar fram í öllum
skattumdæmum landsins á
miðvikudag. Gestur Stein-
þórsson, skattstjóri í
Reykjavík, sagði í samtali
viðNT að vegna ákvörðunar
Alþingis i velur yrðu skrárn-
ar ekki gefnar út fyrir al-
menning að þessu sinni,
heldur yrðu þær iátnar liggja
frammi á skattstofunum í
tvær vikur til skoðunar.
Álagningarseðlar til allra
gjaldenda í landinu voru
lagðir inn á pósthús í gær, og
cr miðað við að þeim hafi
verið dreift til viðtakenda
fyrir miðvikudag.
síður til að fara inn í hús sitt.
Á þriðjudag heppnaðist loks
að lokka björninn inn í húsið og
sást þá að hann var með svöðu-
sár á vinstra afturhrammi. Var
þegar í stað kallað í dýralækni,
en Björn gaf upp öndina um
klukkan 15 þann dag, ör-
skömmu áður en læknirinn
kom.
Við leit í lauginni í búrinu
fundust þrjár pilsnerflöskur og
var ein þeirra brotin. Botn
hennar fannst hvergi og þykir
fullvíst að björninn hafi stigið á
flöskuna og síðan tætt út úr
sárinu er hann reyndi að ná
brotinu úr hrammi sínum.
Jón Gunnarsson, forstöðu-
maður Sædýrasafnsins, sagði að
björninn hefði ekki verið
tryggður, enda væru tryggingar
fyrir dýr í dýragorðum mjög
lélegar. „Þetta er óbætanlegt
tjón fyrir okkur,“ sagði Jón.
Hann kvaðst ekki vita hvort
safnið myndi reyna að fá annan
björn í staðinn, en nú er aðeins
eitt kvendýr í Sædýrasafninu.
ísbjörninn var jólagjöf frá
dýragarðinum í Kaupmanna-
höfn og kom hann hingað fyrir
15 árum. Þá var hann aðeins
lítill húnn, en var orðinn um
700-800 kg að þyngd er hann
lést. Mun sjaldgæft að ísbimir
nái þeirri stærð.
Þess má geta að ísbjörninn
hefur tvívegis áður skorist á
flöskubroti. í fyrra skiptið var
hent flösku niður í búrið og
greip björninn hana í kjaftinn
og skarst illa við það. í síðara
skiptið steig hann á glerbrot líkt
og nú, en þá náði björninn að
pilla brotið úr sárinu.
Að sögn starfsmanna safnsins
hefur einnig komið fyrir að
flöskum hafi verið hent inn til
apanna, en engin slys hafa orðið
á þeim. Stranglega er bannað
að fara með flöskur inn á safnið.