NT - 21.07.1984, Síða 5
Laugardagur 21. júlí 1984 5
Reykhólasveit:
Um 40 þúsund laxaseiðum
sleppt í Laxá og Bæjará
■ Það er hugur í tveimur ungum mönnum,
Árna Baldurssyni og Gunnari Mássyni, sem
eru með Laxá og Bæjará í Reykhólasveit á
leigu. Lífleg silungsveiði hefur verið í ánum
en lítið hefur fengist af laxinum enn sem
komið er þó að alltaf fáist einn og einn og
einstöku sinnum fáist þrír, fjórir á stöngina.
Ef heppnin verður þeim hliðholl má búast við
meiri laxveiði næstu ár.
„Við erum með ein 60 þúsund seiði í
eldiskerjum hérna úti í á og við ætlum að
sleppa þeim öllum í sumar. Priðjungur fer í
Þorskafjarðará og 40 þúsund seiðum ætlum
við að sleppa hérna hjá okkur, 20 þúsundum
í hvora á,“ sagði Gunnar Másson í samtali
við NT. Gunnar sagði að megnið af seiðun-
um væri sumaralið þannig að fjöldinn segði
kannski ekki alla söguna því það væri
staðreynd að gönguseiði skiluðu sér mun
betur.
„Það er nú kannski bjartsýni að búast við
að þetta fari að skila sér í verulegum mæli
fyrr en eftir tvö ár héðan í frá. En ef ailt
gengur að óskum gætu sleppingarnar skilað
verulegum árangri,“ sagði Gunnar. Hann
Rækjuvinnsla
byrjuð á
Breiðdalsvík
■ Ný rækjuverksmiðja hóf starfsemi á
Breiðdalsvík s.l. þriðjudag, og er rekin af
Hraðfrystihúsi Breiðdælinga. Að sögn
Viðars Friðgeirssonar, verkstjóra eru það
um 10-12 manns sem fá vinnu við vinnsluna
- og raunar nokkru fleiri til að byrja með.
Er rækjuverksmiðjan því talin veruleg lyfti-
stöng fyrir atvinnulíf staðarins, sem telur
ekki nema í kringum 200 íbúa.
Viðar sagði rækjuvinnsluna fá hráefni af
200 tonna baf - Sandafelli - sem keyptur var
á staðinn um s.l. áramót og var gerður út til
netaveiða framan af vertíðinni en hefur
orðið að landa annars staðar - fyrir vestan
og norðan - síðan hann hóf rækjuveiðarnar.
Báturinn kom á miðin fyrir austan rétt áður
en vinnslan tók til starfa. Viðar sagði í
athugun hvort reynt yrði að fá annan bát til
rækjuveiða fyrir rækjuvinnsluna .
Tryggvi Gíslason flytur erindi á Blöndu-
SÍ 23. jÚní. Mvnd ÓHT.
Aðalfundur Menor:
Gagnrýnir
listagagn-
rýni blaða
■ Á aðalfundi Menningarsámtaka Norð-
lendinga, sem haldinn var 23. til 24. júní,
var samþykkt ályktun þar sem listgagnrýni
fjölmiðla var harðlega átalin. Segir í álykt-
uninni að leggja verði sama mat á list hvar
sem hún sé fram borin.
Pá segir einnig að ekki megi afgreiða
leiksýningar áhugaleikhúsa sem lélegar, ein-
ungis af því að þar sé um áhugaleikhús að
ræða.
Stjórn samtakanna var endurkjörin, með
þeim breytingum þó að Atli Guðlausson,
sem var gjaldkeri, tók við formanns-
embættinu af Kristni G. Jóhannssyni, sem
verið hefur formaður frá stofnun samtak-
sagði að seiðin væru flest úr ám á Suðurlandi
en nokkur hlut úr Laxá og Bæjará. „Þetta
er nokkuð góður stofn sem við höfum
hérna, stórir fiskar yfirleitt. Og við vonumst
til að halda honum," sagði Gunnar.
Laxá í Reykhólasveit er laxgeng eina 11
kílómetra en Bæjará hefur verið laxgeng um
I kílómetra. í henni hafa þeir Gunnar og
Árni verið að gera ráðstafanir til að hlevoa
laxinum yfir fyrirstöðu og gera þeir sér vonir
um að hægt verði að veiða lax í henni á sjö
kílómetra kafla í framtíðinni.
Gunnar sagði að nú væri heimilt að veiða
á tvær stangir í ánni en ef sleppingarnar skila
góðum árangri vonast hann til að Veiðimála-
stofnun heimili að minnsta kosti fjórar.
„Svæðið sem veitt er á gefur alveg tilefni til
þess,“ sagði Gunnar.
Þetta eru vænstu fískar sem Gunnar velur til undaneldis.
anna.
AFMÆLISTILBOD
Nú er ár liðið frá því að FIAT Uno! var kynntur hér á landi.
Á þessum tíma hefur Uno! selst meira
en nokkur annar einstakur bíll á markaðnum.
í tilefni þessa hefur verið ákveðið
að bjóða Uno! á sérstöku afmælisverði:
Uno!BASIC kr. 218.000.* á qötuna!
218.000,-
á götuna!
TTm
BíU ársins 1984
Unol
■> f
;. v' *• •
•*jL, ■ ' •* ” . ’
f^LHÍÁLMS^iHF.ÍFTTTA (t\
Smiðjuvegi 4, Kopavogi. Símar 77200 - 77202.