NT - 21.07.1984, Qupperneq 27
v \________' 'Vt i ’»Vi «f' V *í .ry/j- i -
0í
Laugardagur 21. júlí 1984 27
Radauglýsingar
ökukennsla
Ökukennsla
og æfingatímar
Kenni á Audi ’82. Nýir nemendur geta byrjað
strax og greiða aðeins tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi.
Æfing í borgarakstri. Greiðslukjör.
Lærið.þar sem reynslan er mest.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
atvinna - atvinna
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Hvamms-
fjarðar Búðardal er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 27. júlí n.k.
Allar upplýsingar um starfið veitir Halldór Þórðar-
son, Breiðabólstað í síma 93-4207.
ísafjarðarkaupstaður
Lausar stöður:
Staða félagsmálafulltrúa.
Auglýst er laus til umsóknar staða félagsmálafull-
trúa hjá kaupstaðnum.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjórinn eða fé-
lagsmálafulltrúinn í síma 94-3722 eða á skrifstofu
bæjarstjóra. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst n.k.
Umsóknum skal skila til skrifstofu bæjarstjórans
að Austurvegi 2, ísafirði.
Staða safnavarðar ísafjarðar er auglýst laus til
umsóknar.
Safnavörðurinn er starfsmaður stjórnar Byggða-
safns Vestfjarða, Listasafns ísafjarðar og húsa-
friðunarnefndar ísafjarðar og skal verksvið hans
vera m.a.:
1. Að veita Byggðasafni Vestfjarða forstöðu,
söfnun þjóðlegra muna, skrásetning þeirra,
viðgerð og uppsetning. Skal hann sjá um, að
safnið sé til sýnis almenningi á tilteknum
tímum og hafa frumkvæði að kynningu á þeim
menningarsögulegu heimildum, sem þar eru
varðveittar, m.a. með sérstökum sýningum í
safninu.
2. Umsjón og eftirlit með verkum Listasafns
ísafjarðar, ráðgjöf við kaup á nýjum listaverk-
um og uppsetning sýninga, sem safnið stend-
ur fyrir.
3. Umsjón með húseignum sem bæjarstjórn
hefur samþykkt að friðlýsa, ráðgjöf í sambandi
við viðhald og endurnýjun þeirra, innkaup á
efni og vinna við viðhald þeirra, eftir því sem
aðstæður leyfa hverju sinni.
Starfinu fylgir íbúð í Faktorshúsi í Neðstakaup-
stað, ísafirði. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst
n.k.
Frekari upplýsingar veitir bæjarstjórinn á ísafirði
í síma 94-3722 eða á skrifstofu sinni og Jón Páll
Hálldórsson, formaður stjórnar Byggðasafns
Vestfjarða í síma 94-4000 eða 94-3222.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu bæjarstjóra
að Austurvegi 2, (safirði.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
m
Sjúkrahúsið í Húsavík
óskar að ráða meinatækni í Vi stöðu frá
1. september. Upplýsingar veitir fram-
kvæmdastjóri í síma 41333.
Sjúkrahúsið í Húsavík sf.
Tæknifræðingur
óskast til starfa úti á landi. Umsóknum skal skila
til Vegagerðar ríkisins, Borgartúni 7,105 Reykja-
vík, fyrir 3. ágúst n.k.
Vegamálastjóri
NT óskar eftir að
ráða í eftirtalin
störf:
Útlitsteiknara
til að annast útlitsteiknun (layout). Nauðsynlegt
að viðkomandi hafi starfsreynslu og þekkingu á
þessu sviði.
Auglýsingateiknara
til að annast hönnun og uppsetningu efnis o.fl.
sem til fellur í auglýsingadeild okkar.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi starfsreynslu í
uppsetningu og gerð auglýsinga og geti unnið
sjálfstætt.
NT er ungt og lifandi dagblað í stöðugri þróun og
örum vexti.
Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns og er lögð
rík áhersla á góðan starfsanda.
Vinsamlegast sendið umsóknir með upplýsingum
um aldur, menntun, fyrri störf og hugsanlega
meðmælendur til NT c/o Haukur Haraldsson,
pósthólf 8080 128 Reykjavík.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
fundir
Félag íslenskra
rafvirkja
Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 24. júlí
kl. 18.00 í Félagsmiðstöð rafiðnaðarmanna Háa-
leitisbraut 68.
Fundarefni: Uppsögn á kaupliðun kjarasamning-
anna.
Önnur mál.
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja
tilkynningar
Fjársterkur aðili
óskast
sem meðeigandi í mjög sérstætt og arðbært
fyrirtæki. Tilboð leggist inn á auglýsingadeild NT
merkt P.M. 1816.
Læknastofa
Hef opnað læknastofu á St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði. Tímapantanir í gegn um skiptiborð
spítalans sími 91-50188 Jóhannes M. Gunnars-
son,sérgrein almennar skurðlækningar.
Lokað
Vegna sumarleyfa frá 23. júlí til 7.
ágúst.
teÚST ABMANN hi
Sími 68 66 77.
Verðkönnun
Steinullarverksmiðjan hf., á Sauðárkróki,
óskar hér með eftir tilboðum í vegg- og
þakklæðningu ásamt tilheyrandi fyrir
byggingu Steinullarverksmiðjunnar hf. á
Sauðárkróki.
Helstu magntölur eru
Kantaðar stálplötur h=20 mm tmin
=0,6 mm 6.500 ferm.
Kantaðar stálplötur h=45 mm tmjn
=0,6 mm 1.000 ferm.
Kantaðar stálplötur h=96-110 mm
tmin=0,6 mm 4.000 ferm.
Útboðsgögn fást afhent hjá Fjölhönnun
hf., Grensásvegi 8, Reykjavík, og skal
skilað þangað eigi síðar en föstudaginn
3. ágúst 1984.
STEINULLARVERKSMIÐJAN
HF.
Sauðárkróki.
Happdrætti Sjálfsbjargar
9. júlí 1984
Aðalvinningur: Bifreið, Mitsubishi, Space
Wagon, árg. 1984 á miða nr. 49176.
Sex sólarlandaferðir að verðmæti kr.
25.000.00 hver. 43 vinningar vöruúttekt, að
verðmæti kr. 6.000.00 hver.
216 18480
463 19004 sólarlandaferð
1459 20485
1754 23135
1755 23389 sólarlandaferð
3156 25164
3827 26147
3933 26303 sólarlandaferð
5507 27533
5033 28429
5988 28770 sólarlandaferð
6051 29397
6322 30209
6607 31500 sólarlandaferð
7920 31885 sólarlandaferð
8762 34082
8763 34533
9054 34807
10101 35797
11797 39835
11868 41577
15227 41942
16607 48713
16610 49176 bifreið
17647 49902
sbjörg,
isamband fatlaðra
tapað - fundið
Hestar í óskilum
í Þingvallahreppi er rauöur hestur meö hvít hár í
enni. Ómarkaöur. Verðurseldur mánudaginn 30.
júlí kl. 16.00 hafi eigandi ekki gefið sig fram fyrir
þann tíma. Einnig jörp hryssa. Mark: Sýlt eöa
sneiðrifað framan og biti framan hægra.
Hreppstjóri