NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 02.09.1984, Qupperneq 3

NT - 02.09.1984, Qupperneq 3
Sunnudagur 2. september 1984 3 Klám á Lögreglustöðinni ■ Okkur brá illilega í brún þegar okkur barst þessi ljós- mynd í hendur. Getur það verið að það viðgangist eitt- hvert stripplerí á vegum lög- reglunnar. Hvert er siðferðið í landinu komið? Er maður hvergi hultur fyrir guðlöstur- um og klámkjöftum og það inni á gafli hjá sjálfri lögregl- unni. Og löggan, situr bara og les í blaði og glottir við skemmdan jaxlinn. Læknis- skoðun hjá kvenlögreglunni, nei, það getur ekki verið. Pegar nánar var rýnt í mynd- ina kom senr betur fer í ljós að hér var um útlendinga að ræða. Já, auðvitað þetta gat nú varla verið. Nýbúið að dæma í Speg- ilsmálinu og Þór loksins orðinn ánægður og svo þetta. Nei, það gat barasta ekki staðist. Nei, nei, myndin er frá London og það er safnvörður á listasafni þar í borg sem er að kíkja þarna i blaðið sitt. Mann- skapurinn í kringum hann eru gínur sem notaðar höfðu verið í einhverjar uppstillingar. Sem sagt hvorki klánr né guðlast og ekkert vesen. Mönnurn kann að þykja undarlegt, að slíkt skuli tekið fram sérstaklega, en á því er þó íull þörf. Starfsfólkið sem viinn á deildinni var fiést samtaka um að gcra sjúklingunum Itfið sem bærilegast. Hinsvegar haga.ði yfir- stjórn Kleppspítala sér þanmg gagn- vart þeim. að það duldist jafnveli ekki sjóndöprustu mönnum að þar á bæ var litið á gcðsjúklinga sem skynlaus- ar skepnur. Skulu hér nefnd nokkur dæmi í þeirri veiku vonvað það geti orðið fólki til umhugsunar. 1. Deildarlæknirinn var í I0% vinnu á deildinni. Það þýðir væntan- lega að honum bar að vera þar fjórar stundir á viku. Hinsvegar lét hann sjaldan sjá sig oftar en einu sinni í viku þverri og þótti það tíðindum sæta ef hann staldraði við í háiftíma. 2. Einhversálfræðingurvarskráður í hlutastarf á deildinni Hann sást aldrei þann tíma sem ég starfaði þar, enda var engum sem á deildinni starfaði, kunnugt um nafn hans, auk heldur meir. 3. Félagsráðgjafi, sem þáði laun fyrir að liðsinna sjúklingum, lét þá algjörlega afskiptalausa. Aftur á móti ómakaði hann sig tvisvar eða þrisvar við það að halda fyrirlestra yfir starfs- fólki í skandinavískum stíl. 4. Skömmu eftir að fólk hóf störf á Kleppspítalanum, var það sent á námskeið, sem er svo sem gott og blessað. Hitt er öllu lakara að á þessum námskeiðum gekk vart á öðru, en látlausum tilraunum til þess að -fcgra mynd stofnunarinnar. Reyndist oft erfitt að halda sér vak- andi undir þessu ranghugmyndarugli fræðanna og mistókst stundum með öllu. 5. Flutningur sjúkllnga milli deilda var talinn þcim jafn óviðkomandi og það hvort einhver stangaði úr tönnum scr austur í Shanghai. Oft var nauð- synlpgt að færa sjúklinga á aðrar deildir meðan hvað verst stóð á fyrir þeim, eða jafnvel á almenn sjúkra- hús, og þá vitanlega sökum líkam- ,legra kvilla. Að slfítu var þó ekki hlaupið sökum yfirgengilegs skrifræð- is. Hinsvegar átti yfirlæknir spítalan's það til að póstsenda sjúklinga tvist og bast, án þess svo nrikið seni líta á þá, eða eyða sínum dýrmæta tíma í það, að spyrja deildarhjúkrunarkonuna hvort einhver ástæða væri til að flytja viðkomandi sjúkling. Vonandi þ^rf ekki að tiunda það, hvílík áhrif sltkir hreppaflutningar gátu haft á sjúk- linga. Þessu spjalli er ekki ætlað að vera úttekt á ástandinu á Kleppspítala og útibúum hans. Slíkt verk bíður betri tíma. En á meðan gætu þeir scm Kleppi stjórna velt því fyrirsér, hvort þeir teljist til lækna eða búkgeymslu- manna. Að lokum skal það sérstaklega undirstrikað, að á Kleppi eru til ánægjulegar undantekningar frá þess- ari vélrænu framkomu gagnvart sjúk- lingum. En því miður lítum við, sem þetta land byggjum. ekki á „krónískar" gcðdeildir sem sjúkrastofnanir, held- ur sem sóttkví fyrir fólk sem raskar ró okkar. Þvf er vart von á góðu. Pjetur Hafstein Lárusson Þegar Lesley Watson og Gericomplex leggja saman "kiafta"sínar þarf ekki að spyrja að leikslokum: Sigur í Reykjavík Maraþon! Þaö hefur varla fariö fram hjá neinum, sem fylgjast meö íþróttum, aö breska hlaupadrottningin Lesley Watson fór meö sigur af hólmi í kvennaflokki í Reykjavík Maraþon sem fram fór 26. ágúst s.l. Sporlétt og spræk hljóp hún hiö rúm- lega 42ja kílómetra langa hlaup í rign- ingunni, á vel innan viö þremur klukkustundum. Eitt grundvallaratriöa í æfinga- og keppnisskipulagi hennar er neysla Gericomplex. Fáöu bækling um Gericomplex hjá okkur eöa í næsta apóteki. eilsuhúsið Skólavöröustíg 1 Sími: 22966 101 Reykjavík.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.