NT - 14.11.1984, Page 20

NT - 14.11.1984, Page 20
Miðvikudagur 14. nóvember 1984 20 Sjónvarp kl. 22.15: Gleymdur her dreginn fram í dagsljósið ■ Nú cru órólegir tímar í Indlandi, scm hala haft miklar blóðsúthellingar í för mcð sér. En því miður eru slíkir atburðir engin nýlunda í sögu Indlands, sem með sanni má segja að sé blóði drifin. Það viröist ekki einu sinni hafa linnt látunum eftir að Indland hlaut sjálfstæði frá Bretum, en til skamms tíma hefur það verið látið í veðri vaka aö þeir hafi a.m.k. veriðnokkuö samtaka á m'eðan þeir börðust við sameiginlegan óvin, bresku nýlendustjórnina, og óumdeild- ur foringi þeirra í baráttunni hefði verið Mahatma Gandhi, sem boðaði baráttu án ofbeldis fyrir frelsi sameinaðs Indlands. Nú hafa verið rifjaðir upp atburðir frá þessuni tímum, sem Itafa til skamms tíma legið í þagnargildi og reyndar vcrið gengið hart fram í því að afmá þá af spjöldum mannkynssög- unnar. Frá þeim segir í sjón- varpsþætti í kvöld, sem hcfst kl. 22.15. Hann hcfur á íslensku hlotið nafnið Tígrisstríðið og dregur nafn af mcrki því sem indverski þjóðarherinn, sem alls voru í 40.000 manns, hafði valiö sér í þjóðírelsisharáttunni í stað spunarokks Gandhis. Foringi indverska þjóðarhers- ins var Subhas Chandra Bose, fyrrum náinn samstarfsmaður Gandhis. Hann gerðist ósam- þykkur baráttuaðferðum Gandhis og stofnaði eigin her, skipaðan að mestu leyti lið- hlaupum úr indverska hernum, sem barðist með allt öðrum aðferöum en Gandhi predikaði. Bose hneigðist aö þeirri skoðun, að Indverjum gæfist gullið tæki- færi til að fá sjálfstæði frá Bretum mcö því aö sameinast helstu óvinum þeirra á stríðstím- um, Japönum og Þjóðverjum. Auk þess hafði hann taug til sovéskra kommúnista. Filmu- bútar fengnir úr skjalasöfnum í Japan, Þýskalandi og Indlandi eru dregnir fram í myndinni í kvöld. Indverski þjóðarherinn tapaði hverri einustu orrustu, sem hann tók þátt í og sjálfur lét Bose lífið, þegar hann var á lcið til Rússlands til að lcita aðstoðar fyrir sig og sitt fólk. En þess var vandlega gætt að skýra ekki frá þessum atburðum í samtíma- fréttum. Þó fórst Bretum ekki hönduglegar en svo í stríðslok, þegar þeir drógu eftirlifandi for- ustumenn þjóðarhersins til saka fyrir stríðsglæpi, að þeim tókst aö láta þá líta út eins og frelsis- hetjur í augum fólksins. Atburðir þeir, sem sagt er frá í Tígrisstríðinu, koma líka mikið við sögu í framhaldsflokknum Dýrasta djásnið, sem hefur göngú sína n.k. sunnudags- kvöld. ■ Hermann verður í Wales og lýsir beint í útvarpinu tæpar tvær stundir... Beint í útvarpi og sjónvarpi kl. 19.25: Bjarni lýsir beint með mynd úr sjónvarpshúsinu á sama tíma.... Landsleikurinn við Wales ■ í kvöld leikur íslenska landsliðið í knattspyrnu lands- leik gegn Wales í undankeppni Heimsmeistarakeppninnar á Ninian Park í Cardiff. Leiknum verður bæði sjón- varpað og útvarpað beint til íslands, og er það í fyrsta sinn sem slíkt gerist hér á landi. Þeir félagar Hermann Gunn- arsson á útvarpinu og Bjarni Felixson á sjónvarpinu eru því báðir á fullu gasi í beinum lýsingum hvor á sínum fjöl- miðli, og hvor í sínu landi, Hermann er í Wales. Dagskrá sjónvarpsins færist allnokkuð úr skorðum vegna beinu sendingarinnar, óg ekk- ert nema gott um það að segja þegar um slíka stórviðburði er að ræða. Sjónvarp hefst klukk- an 18.15 með barnaefni, fréttir koma klukkan 18.45, og beina sendingin hefst klukkan 19.25 Hún stendursíðan í tæpartvær stundir, framhaldsmynda- flokkurinn um Þyrnifuglana hefst klukkan 21.20. í útvarpi verður öllum lands- leiknum lýst beint, og hefst lýsing Hermanns Gunnarsson- ar frá Ninian Park klukkan 19.30. Hermann verður einnig að í tæpar tvær stundir, kátur og hress, laus við stress og segir væntanlega bless klukkan 21.15 eða þar um bil. Eins og áður var nefnt ei þetta í fyrsta sinn sem íslend- ingar geta fylgst með beinni sendingu í sjónvarpi og útvarpi samtímis frá iþróttakappleik. Það er því fróðlegt fyrir þá sem áhuga hafa á að bera sam- an muninn á því þegar lýst er með mynd og því þegar lýst er. með orðum einum saman. Góða skemmtun og áfram ísland.... ■ Mohan Singh var einn forkólfa indverska þjóðarhersins. Það er rætt við hann í þættinum í kvöld. Útvarpkl. 11.15: „Hún var 1jölhæf gáfukona sem lyfti umhverfi sínu“ ■ í fyrravetur flutti Björg Einarsdóttir í útvarp reglu- bundið erindi, sem hún nefndi „Úr ævi og starfi íslcnskra kvenna." Þar sagði hún frá mörgum og merkum formæðr- um okkar, sumar þeirra eru þekktar en öðrum hefur verið haldið minna á loft. Þættir Bjargar þóttu athyglisverðir mjög og hefur nú verið boðuð útkoma þeirra í bókarformi. Björg hefur nú hafið að nýju flutning erinda sinna um ævi og störf íslenskra kvenna. Þættirnir eru á dagskrá viku- lega á miðvikudögum kl. 11.15. Við snerum okkur til hennar og spurðumst fyrir um hvaða konu hún fjallaði í dag. „í þættinum í dag,“ sagði Björg „mun ég fjalla um konu sem fæddist á Áusturlandi árið 1862 en lést 1958 í Höfn í Melasveit eftir 60 ára búsetu þar. Hún hét Þórunn Richards- dóttir Sívcrtsen og var vel- þekkt á sinni tíð fyrir erinda- flutning og greinaskrif um margvísleg efni. Þórunn var velmenntuð og fær í tungumál- um, fjölhæf gáfukona sem gerði garð sin frægan og lyfti umhverfi sínu. Atvikin höguðu því svo að hún fór ung til Skotlands að leita sér lækninga og dvaldist þar hátt á fjórða ár. Hún starfaði þar meðal annars sem herbergisþerna á heimili skosks lávarðar. Heimkomin fékkst hún við kennslu í Kvennaskólanum í Reykjavík og var heimiliskennari á Gils- bakka í Borgarfirði. Eftir að hún ásamt Torfa Sívertsen eig- inmanni sínum hóf búskap í Höfn hafði hún oft börn og ■ Þórunn Richardsdóttir Sí- vertsen unglinga til námsdvalar á heimili sínu og ungar stúlkur sóttust eftir að njóta hand- leiðslu hennar. Þórunn fékk Fálkaorðuna 1932.“ Miðvikudagur 14. nóvember 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þátturSigurð- ar G. Tómassonar frá kvöldinu áður. 8.00 Frétfir. Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorð - Guðmundur Hallgrímsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Frétlir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 11.15 Úr ævi og starfi islenskra kvenna Umsjón: Björg Einarsdótt- ir. 11.45 íslenskt mál Endurtekinn þátt- ur Jóns Aðalsteins Jónssonar frá laugardegi. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.20 Barnagaman Umsjón: Gunn- vör Braga. 13.30 Zara Leander, Marika Rökk og Roland Cedermark syngja og leika. 14.00 „Á íslandsmiðum" eftir Pi- erre Loti Séra Páll Pálsson á Bergþórshvoli les þýðingu Páls Sveinssonar (15). 14.30 Miðdegistónleikar 14.45 Popphólfið. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar •17.10 Siðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tóm- asson flytur þáttinn. 20.00 Útvarpssaga barnanna: „Ævintýri úr Eyjurn" eftir Jón Sveinsson Gunnar Stefánsson les þýðingu Freysteins Gunnars- sonar (3). 20.20 Hvað viltu verða? Starfskynn- ingarþáttur i umsjá Ernu Arnardótt- ur og Sigrúnar Halldórsdóttur. 21.00 „Let The People Sing“ 1984 Alþjóðleg kórakeppni á vegum Evrópubandalags útvarpsstöðva. 21.30 Útvarpssagan: Grettis saga Óskar Halldórsson byrjar lesturinn. Hljóðritun frá 1981. Hjörtur Páls- son flytur formálsorð. 22.00 Horft í strauminn með Krist- jáni frá Djúpalaek. (RÚVAK). 12.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Tímamót Þáttur í tali og tónum. Umsjón Árni Gunnarsson. 23.15 Nútímatónlist Þorkell Sigur- björnsson kynnir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Miðvikudagur 14. nóvember. 10.00-12.00 Morgunþáttur. Róleg tónlist. Viðtöl. Gestaplötusnúður. Ný og gömul lög. Stjórnendur: Kristján Sigurjónsson og Jón Ólafsson. 14.00-15.00 Út um hvippinn og hvappinn. Létt lög leikin úr ýmsum áttum. Stjórnandi: Inger Anna Aikman. 15.00-16.00 Nú er lag. Gömul og ný úrvalslög að hætti hússins. Stjórn- andi: Gunnar Salvarsson. 16.00-17.00 Nálaraugað. Djass- rokk. Stjórnandi: Jónatan Garðars- son. 17.00-18.00 Ur kvennabúrinu. Hljómlist flutt og eða samin af konum. Stjórnandi: Andrea Jóns- dóttir. Miðvikudagur 14. nóvember 18.15 Aftanstund Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni. Sögu- hornið - Velvakandi og bræöur hans. Sögumaður Eiríkur Stefáns- son, myndir eftir Tómas Tómas- son. Litli sjóræninginn, Tobba og Högni Hinriks. 18.35 Fréttaágrip á táknmáli ! 18.45 Fréttir og veður 19.15 Auglýsingar og dagskrá 19.25 Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu Wales-lsland Bein útsending frá Cardiff. 21.20 Þyrnifuglarnir Fjórði þáttur. Framhaldsmyndaflokkur í tíu þáttum, gerður eftir samnefndri skáldsögu Colleen McCulloughs. Efni síðasta þáttar: Meggie er nú orðin átján ára friöleiksstúlka og fer ekki leynt með ást sína á séra Ralph sem stenst þó freistinguna. Mary Carson deyr, nóttina eftir 75 ára afmæli sitt. Talið er víst að hún arfleiði Paddy og fjölskyldu hans að eigum sínum en í Ijós kemur að hún hefur ánafnað katólsku kirkj- unni auðæfum sínum. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 22.15 Tigrisstriðið Bresk heimilda- mynd um Þjóöaher Indverja og leiðtoga hans. Þeir höfnuðu hug- myndum Gandhis um andspyrnu án ofbeldis og háðu strið gegn Bretum við hlið Japana. Tákn þeirra var ekki spunarokkur heldur tigrisdýr. Atburðir þeir sem hér er lýst koma við sögu í nýjum fram- haldsmyndaflokki: „Dýrasta djásnið" sem hefst á sunnudags- kvöldið. Þýðandi Helgi Skúli Kjar- tansson. 23.15 Fréttir í dagskrárlok.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.