NT - 14.11.1984, Blaðsíða 27

NT - 14.11.1984, Blaðsíða 27
■ Sævar Jónsson og Pétur Pétursson (innfelld mynd) eiga báðir við smá meiðsl að etja - vonandi að báðir verði hressir í kvöld. Tony Knapp; »Möravandamál“ Við gerum okkar besta ■ „Well, I guess you heard that we have a lot of problems already" sagði Tony Knapp landsliðsþjálfari í viðtali við NT í gærkvöldi. „Þessi vanda- mál eru þau að Asgeir, Janus og Atli verða ekki með og Lárus gefur ekki kost á sér,“ bætti Knapp við. Er hann var spurður um byrj- unarliðið í leiknum í kvöld sagði hann: „Það verður ekki ljóst fyrr en í fyrramálið hvort Sævar og Pétur geta spilað og því verð ég að bíða með að ákveða fullkomlega hverjir spila með. Sævar hefur ekki æft neitt síðan á mánudagsmorgun og hefur verið í rannsóknum af og til en ég hef trú á því að hann sé á batavegi. Sama má segja um Pétur. Vandamálin núna eru hvort þessir leikmenn verða tilbúnir í slaginn í dag “ sagði Knapp. „Ég tel að það hafi verið skynsamlegt að velja 17 menn til að fara til Wales og þá sérstaklega með tilliti til þess að við vorum í nokkrum vafa um hvort tækist að fá alla atvinnumennina lausa og síðan geta meiðsl alltaf komið upp. Eins og ástatt er núna þá var gott að hafa talað við Guðna Bergsson því hann var strax tilbúinn að koma til móts við hópinn.“ „í kvöld (gærkvöldi) förum við út á leikvöllinn og hreyfum- okkur lítið eitt. Þetta verður þó meira að venja piltana við ljósin (flóðljósin) og koma mönnum í rétt skap fyrir leik- inn,“ sagði Tony Knapp. Knapp sagði ennfremur að lið Wales væri nú mun sterkara en það var á íslandi í fyrri leik ■ Tony Knapp landsliðs- þjálfari liðana og taldi hann þar muna mestu um Ian Rush. „Við munum samt spila okkar leik og reyna að hafa ekki áhyggjur af Rush, við höfum nógar áhyggjur af okkar liði svo við séum ekki að bæta honum á okkur,“ sagði Knapp og virtist hvergi banginn. „Eg hef aldrei lent í jafn miklum erfiðleikum með ís- lenska liðið meðan ég hef verið þjálfari en það er mitt starf og landsliðsmannanna að gera okkar besta úr því sem við höfum. Ég er mjög ánægður með ungu mennina í liðinu, þeir hafa lagt mikið að sér og ef við missum Sævar og Pétur þá er ég ekkert hræddur um að piltarnir leggi ekki sitt besta af mörkum í leiknum og það verð- ur dýrmæt reynsla fyrir þá að spila svona leik,“ sagði Tony Knapp landsliðsþjálfari að lok- um í samtali við NT. Celtics unnu ■ Boston Celtics eru enn á sigurbraut í banda- rísku atvinnumanna- deildinni í körfuknatt- leik. í gær unnu þeir sigur á Indiana Pacers, 132-115. Annarleikur var einnig í deildinni í gær, Utah Sazz vann Dallas Mavericks 123-97. Miðvikudagur 14. nóvember 1984 27 Ísland-Wales: Sævar og Pétur spurningamerki - eiga báðir við meiðsl að stríða ■ Það verða líklega fimm at- vinnumenn sem byrja leikinn í Wales í kvöld fyrir hönd ís- lenska liðsins. í fyrri leiknum gegn Wales þá voru þeir sjö talsins. Þeir Atli Eðvaldsson. Janus Guðlaugsson og Ásgeir Sigurvinsson verða ekki með nú en í staðinn kemur Arnór Guðjónssen í liðið. Líklegt er að Knapp stilli upp eftirtöldum mönnum: Bjarni Sigurdsson ÍA Þorgrímur Práinsson Val Arni Sveinsson í A Sævar Jónsson Gudmundur Þorbjörnsson Sigurdur Jónsson Kagnar Margeirsson Sigurdur Grétarsson Arnór Guðjónssen Pétur Pétursson CS Brugge Val ÍA ÍBK Iraklis Anderlecht Feycnoord Eins og fram kemur í viðtali „Allir hressir“ ■ „Við eruin allir hressir og vorum að koma hér á hótelið, síðan er létt æfing á Ninian Park í kvöld“, sagði Ársæll Kristjánsson lands- liðsmaður í samtali við NT í gærkvöldi. íslcnska liðið kom á hótclið,þar sem búið verður á ineðan á lciknum stendur,um kl. 17 í gærdag. „Nú slöppum við aðcins af og síðan er æfíng í kvöld og þá verða lagðar síðustu lín- urnar fyrir leikinn“ sagði Ársæll ennfremur. „Sævar Jónsson og Pétur Pétursson eru að verða góðir af meiðslunum, hafa náð þeim að undanförnu og vondandi verða þeir báðir til í slaginn. Við erum ákveðnir að standa okkur þrátt fyrir að ýmsa lykilmenn vanti“, sagði Ársæll að lokum. ■ Ian Rush mun örugglega gera íslendingum marga skrá- veifuna í kvöld. Hann er stór- hættulegur. við Tony Knapp landsliðsþjálf- ara þá veltur allt á því hvort Sævar og Pétur verði orðnir heilir fyrir leik. Þeir eru báðir á batavegi en ekki verður Ijóst fyrr en í dag hvort þeir verða nægjanlega góðir til að spila leikinn. Guðni til Skotlands ■ Á sanra tíma og landsleikur íslendinga og Walesbúa fer fram í kvöld eigast Skotar og Spánverjar við í Glasgow. Sá leikur er í sama riðli og leikur íslands og Wales og skiptir því miklu máli fyrir íslendingana. Búast má við að Spánverjar spili uppá að halda jöfnu í þeim leik enda myndu þeir þá standa best að vígi í riðlinum eftir það. Þessi tvö lið eru almennt talin munu berjast um sigurinn í riðlinum. Guðni Kjartansson, fyrrum landsliðsþjálfari, mun fara á leik Skota og Spánverja til að fylgjast með þessum liðum. ís- lendingar leika báða leikina gegn Spánverjum á næsta ári og seinni leikinn gegn Skotum. Ef hagstæð úrslit fást á móti Wales og leikur Skota og Spán- verja endar með jafntefli þá eru möguleikar íslendinga í riðlinum fyrir hendi. ■ Gudni Kjartansson HM í kvöld: Punktar ■■■ Punktar... ...Leikur Spánverja og Skota sem fram fer á Hampden Park í Glasgow verður trúlega mest spennandi leikurinn í heims- meistarakeppninni af þeim sem leiknir verða í kvöld. Skotar hafa að baki tvo ný- lega heimasigra og Spánverjar unnu Wales 3-0, einnig heima. ...Skotland er aðeins eitt af fimm löndum innan breska heimsveldisins sem leikur í heimsmeistarakeppninni í kvöld: Englendingar heimsækja Tyrki til Istanbúl í 3. riðli, Wales mætir íslendingum í 7. riðli í Cardiff, N.-írar taka á móti Finnum í Belfast í 3. riðli og írar leika við Dani í Kaup- mannahöfn í 6. riðli. ...Englendingar eru nokkuð borubrattir fyrir leikinn gegn Tyrkjum og miða við það að Finnar unnu Tyrki á útivelli með 2-1 en Englendingar höfðu stuttu áður unnið Finna 5-0 á Wembley.... Walesbúar telja að nærvera Ian Rush sé nóg til að endur- vekja vonir þeirra um að kom- ast í úrslitakeppnina í Mexíkó og vilja meina að tvö töp til þessa í riðlinum, fyrir íslend- ingum 0-1 og Spánverjum 0-3 sé að miklu leyti vegna fjarveru hans... ...í Vínarborg mætast Austur- ríkismenn og Hollendingar í 2. riðli og Portúgalir leika við Svía í Lissabon í sama riðli. Portúgalir eru sigurvissir þó þá vanti tvo fastamenn vegna meið- sla, þá Pacheo og Chalana. Þeir unnu leikinn í Stokkhólmi 1-0 í september... Sjónvarp og útvarp ■ Landsleiknum í kvöld gegn Wales 'verða gerð góð skil í ríkisfjölmiðlum. Leikurinn verður sem sé sýndur beiní f sjónvarp- inu og útvarpað beint líka. Sjónvarpsútsendingin hefst kl. 19.25 á eftir fréttum sem verða færðar fram til 18.45. Hemmi Gunn byrjar svo lýsingu sína í útvarp- inu kl. 19.30.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.