NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 14.11.1984, Qupperneq 28

NT - 14.11.1984, Qupperneq 28
Miðvikiidagur 14.nóvember 1984 HRINGDU ÞÁ í SflX/IA 68- Við tökum vid ábendingum um fréttir allan sólarftirincjinn. Greiddar verða 10OO krónur fyrir ftiverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt Islenska lambaketið á völlinn í morgun Leyft fyrir þrýsting yfirvalda. Vonlítill markaður? ■ íslcnskt lambakjöt veröur nú í dag í fyrsta sinn selt í matvörumarkaði bandaríska hersins á Kellavíkurnugvelli. Það eru Sláturfélag Suðurlands og SÍS sem koma sér upp hvor sinni frvstikistunni í markaðin- um og hefur kista Sláturfélags- ins væntanlega verið fyllt strax í morgun. Kjötið er selt með útnutningsbótum en er engu að síður dýrara en svína og nauta- kjötið sem herinn kaupir frá heimalandinu. Frumkvæði að þessari sölu er komið frá Fram- leiðsluráði en einnig hefur land- búnaðarráðuneytið beitt sér í þessu máli. „Það verður alltaf að reyna,“ sagði Vigfús Tómasson hjá SS en kvaðst annars ekki trúaður á að þarna gæti orðið um veruleg- an markað að ræða. „Þrátt fyrir þessar niðurgreiðslur er kjötið dýrara en annað kjöt þarna og svo stoppa flestir þeir Banda- ríkjamenn sem þarna eru frekar stutt, þannig að mjög erfitt er að vinna markað þarna.“ Sagði Vigfús að helsti hugsanlegi ávinningur af þessari sölu væri að bandarískir hermenn, sem hér dvelja, lærðu að meta kjötið og héldu svo áfram að kaupa það eftir að heim er komið svo fremi að það takist að bjóða upp á kjötið á markaði þar. Kista sem Sláturfélagið hefur sett upp er tveggja metra löng og í dag setur SIS upp hliðstæða kistu. Þessum fyrirtækjum var báðum gert viðvart af Fram- leiðsluráði um að nú væri möguleiki á að komast á markað hersins en hann hefur verið íslensku kjöti alfarið lokaður til þessa. Þá hefur Sláturfélagið nú um nokkurn tíma selt lambakjöt í mötuneyti á vellinum þó í litlum mæli sé og er búvörudeild Sam- bandsins að hasla sér völl á sama markaði. Þriðji markaðs- möguleikinn þar sem Sláturfél- agið hefur enn forskotið en SÍS fylgir fast í kjölfarið er sala á lambakjöti í matarveislur hinna ýmsu klúbba á vellinum, meðal annars hinn fræga offiséra- klúbb. Þá má geta þess að Osta- og smjörsalan hefur um nokkurra ára skeið selt vörur sínar á vellinum en í harðri samkeppni við erlendar vörur sem meira eru niðurgreiddar og ódýrari. Engu að síður kvað Óskar H. Gunnarsson hjá Osta- og smjör- sölunni söluna hafa aukist veru- lega að undanförnu. Því fer þó fjarri enn að um svo mikið sem helmings markaðshlutdeild sé að ræða. Þá selur mjólkursam- salan sínar vörur á vellinum og er eitt um hituna, engin mjólk er flutt til landsins og hefur herinn verslað við íslenska aðila frá fyrstu tíð. Þá fer þetta að rætast full- komlega sem skáldið kvað '• “... íslenskir vermenn og amrískir hermenn , eta nú samskonar graut...“ Stefnuræðu frestað ■ Stefnuræðu forsætis- ráðherra, sem áætlað var að flutt yrði á fundi sam- einaðs þings á fimmtudag, hefur verið frestað. NT hafði samband við Steingrim Hermannsson í gærkvöldi og sagði hann ástæðu frestunarinnar vera þá að ekki væri búið að fullvinna efnahagsráðstaf- anir er ríkisstjórnin hyggst gera. Afhenda þarf stjórnar- andstöðunni afrit stefnu- ræðunnar með viku fyrir- vara og sagði Steingrímur að enn væri of snemmt að skýra frá efnahagsráð- stöfunum, þar sem þær væru ekki fullmótaðar. Þá hefur afgreiðslu fjár- lagafrumvarpsins verið frestað, og haft er eftir Albert Guðmundssyni, að hann flytji ekki frumvarp- ið fyrr en eftir að stefnu- ræðan hafi verið flutt. Ríkið býður lífeyrissjóð- unum upp á 9,29% vexti! ■ Ýmsir lífeyrissjóðir - þeirra á meðal sumir hinna stærstu - hafa að undan- förnu haldið að sér höndum Vírussjúkdómur leggst ábörní Reykjavík: Áekkertskylt við gin og klaufaveiki ■ „Þetta á ekkert skylt við gin og klaufaveiki og engin ástæða til að gera neitt veður út af þessu," sagði Margrét Guðnadótt- ir, prófessor á rannsókna- stofu Háskólans í veiru- fræði, er hún var innt eftir því hvort vírussjúkdómur, sem nokkuð hefur borið á hjá börnum og lýsir sér með útbrotum í greipum, á fótum og í munni, væri samstofna svokallaðri ein og klaufaveiki, sem leggst mjög þungt á búfénað. Margrét sagði að þetta væri allt önnur tegund af vírus, enda legðist ekki gin og klaufaveiki á menn. Þetta væri sármeinlaus vír- us og alltaf einhver tilfelli á fcrðinni, eins og væri með kvefpestir. Sagði hún þetta lýsa sér eins og kverka skítur; menn fengju útbrot en þau löguðust á nokkr- um dögum. Kvað Margrét álíka orðróm hafa komið upp einum tvisvar sinnum áður og þá blásinn upp í blöðunum. Fólk hefði orð- ið dauðskelkað og haldið að eitthvað hættulegt væri á ferðinni, ert það væri ástæðulaust að óttast, þessi vírus væri ekkert al- varlegri en venjulegt kvef! við skuldabréfakaup af fjárfestingalánasjóðum ríkisins, þar á meðal byggingalánasjóðunum, vegna þess að ekki hafa þótt nógu háir vextir í boði hjá ríkissjóði miðað við það sem bankarnir bjóða. Þetta hefur m.a. gert Byggingar- sjóði ríkisins erfitt fyrir með að standa við lánaútborgan- ir til húsbyggjenda/kaup- enda á áætluðum tíma. Til þess að ná í aukið lánsfé frá lífeyrissjóðunum hafa stjórnvöld nú ákveðið að bjóða þeim val á milli fjögurra kosta um ávöxtunarkjör: Breytilega vexti, þ.e. jafn háa útláns- vöxtum bankanna að mcðaltali, sem nú eru 9,29%, kaup á ríkisskuldabréfum sem bera 8% vexti og eru uppsegjanleg eftir 3 ár, og tvennskonar fasta vexti, þ.e. 5% á 15 ára bréfum og 7% á 10 ára bréfum. Allt eru þetta vextir umfram verðtryggingu. Að sögn Höskuldar Jónsson- ar, ráðuneytisstjóra, eru skulda- bréfakaup lífeyrissjóðanna á- kaflega misjöfn. Sumir þeirra séu búnir að Ijúka sinni kaupskyldu til áramóta (þ.e. 40% af ráð- stöfunarfé), m.a. Lífeyrissjóður sjómanna og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda og einnig hefur sjóður ríkisstarfsmanna keypt samkvæmt áætlun. Aðrir sjóðir hafa engin skuldabréf keypt á árinu. Þykir einna merkilegast að lífeyrissjóðir sveitarfélag- anna eru í þeim hópi. Höskuld- ur tók fram að viðskipti við SAL-sjóðina hafi öll gengið sæmilega. Þeir hafi yfirleitt valið breytilegu vextina. Vestir á bilinu 7-9% eru bygg- ingarlánasjóðum ríkisins greini- lega ákaflega óhagstæðir þar sem þeir endurlána húsbygg- endum/kaupendum þetta fé með l% til 3,5% vöxtum og jafnframt til meira en tvöfalt lengri tíma. Davíð fyrstur yfir! Gullinbrú opnuð: ■ Davíð Oddsson, borgarstjóri, opnaði Gullinbrú að viðstöddu nokkru fjölmenni í gær og mundaði skærin fagmannlega er hann klippti á borðann... ■ Gullinbrú var formlega tekin í notkun af borgarstjór- anum í Reykjavík við hátíð- lega athöfn í gær. Bað hann þess að gæfa og gifta fylgdi brú þessari og hún yrði Graf- arvogshverfi og íbúum þess svo og allri borginni til fram- dráttar. Það kom fram í ávarpi borgarstjóra að fyrir 2xh ári hefði verið ónumið land í Grafarvoginum en nú væri að rísa þar öflug byggð og mætti búast við því að næsta haust hefðu þar búsetu á annað þúsund íbúa, sem væri álíka margir og í sæmilega stórum kaupstað úti á landi. Eins og komið hefur fram í NT kostar gerð Gullinbrúar um 20 milljónir og hefur brúin, sem er 58 m löng, verið u.þ.b. 10 mánuði í smíðum. Norrænir menn kölluðu vetrarbrautina Gull- inbrú í heiðinni trú og er vonandi að þetta reynist rétt- nefni á mannvirkinu fyrir íbúa Grafarvogsins. ... síðan settist hann uppí rennireið sína og lét einkabQstjórann aka sér fyrstu ferðina yfir mannvirkið. NT-mjndir: Ámi Bjama

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.