NT - 15.11.1984, Blaðsíða 25
i,«?»*: r- v«éit»vön .»!• iifflsbatawillí
Ameríka:
Stjórnvöld snúast
gegn eituriðnaði
■ Miklum sögum hefur fariö
af marijúana- og kókaínfram-
leiðslu í Miö- og Suður-Amer-
íku en fæstir gerðu sér grein
fyrir umfangi fíkniefnafram-
leiðslunnar þar fyrr en í síðustu
viku þegar mexíkanska lögregl-
an gerði upptæk um 8000 tonn
af marijúana.
Fíkniefnin fundust í fram-
leiðslu- og dreifingarmiðstöðv-
um í Chihuahua-fylki nálægt
bandarísku landamærunum. 30
vöruflutningabílar fundust á
svæðinu og lögreglan yfirheyrði
um 5000 bændur, sem störfuðu
við vinnsluna. Bændurnir
sögðust hafa verið neyddirtil að
starfa við eiturlyfjafram-
leiðsluna og margir þeirra báru
merki þess að vera vannærðir.
Peir sögðu að yfirmenn sínir
hefðu flúið skömmu áður en að
lögreglan kom á staðinn.
Um þúsund hektarar á þessu
svæði höfðu verið teknir undir
marijúanaræktun og að minnsta
kosti 20.000 bændur höfðu
framfærslu sína af því að rækta
það. Nú verða mexíkönsk
stjórnvöld að útvega þessum
bændum annað lífsviðurværi ef
það á að takast að fá þá til að
hætta marijúanaræktuninni
með öllu.
Fíkniefnin, sem mexíkanska
lögreglan gerði upptæk, voru
ætluð á bandaríska fíkniefna-
markaðinn þar sem stórir þjóð-
félagshópar hafa gert marijúana
og kókaín að daglegri neyslu-
vöru sinni.
Stjórnvöld í mörgum Mið-og
Suður-Ameríkuríkjum hafa
lengst af látið fíkniefnabændur
og starfsemi eiturlyfjasmyglara
óáreitt enda eru þessi lönd það
fátæk að þau eiga erfitt með að
framfleyta íbúum sínum með
löglegum landbúnaði. Eitur-
lyfjaauðhringirnir hafa líka var-
ið miklu fé til mútugreiðslna til
stjórnmálamanna og lögreglu-
og heryfirvalda.
En nú er svo komið að banda-
rísk stjórnvöld telja sig ekki
lengur geta horft svo til að-
gerðalaust á stöðuga aukningu
fíkniefnaflóðsins í landi sínu.
Eiturlyf eru nú orðin svo algeng
þar að jafnvel er talað um að
markaðurinn í mörgum banda-
rískum borgum sé því sem næst
mettaður. Lögregluyfirvöld
telja að það megi rekja stóran
hluta ofbeldisglæpa til
fíkniefnaneyslu og fíkni-
efnaverslunar.
Bandaríkjamenn telja að ár-
angursríkasta leiðin til að draga
úr fíkniefnaneyslunni sé að
hindra upphaflega framleiðslu
fíkniefnanna. Þeir hafa því sett
mikinn þrýsting á ríkisstjórnir í
Mið- og Suður-Ameríku til að
fá þær til raunhæfra aðgerða
gegn fíkniefnaframleiðendum
og smyglhringjum.
Nú þegar hafa stjórnvöld í
Mexíkó, Kólombíu ognokkrum
fleiri Ameríkulöndum hafið
skipulega sókn gegn eiturlyfjun-
um með nokkuð góðum árangri.
En það er samt langt frá því að
þessar aðgerðir þeirra dugi til
að stöðva fíkniefnaframleiðsl-
una því að fíkniefnahringirnir
eru .alþjóðlegir. Þegar fram-
leiðsla er hindruð á einum stað
flytja þeir sig bara á annan.
4.'.! I *
Fimmtudagur 15. nóvember 1984 25
A-Þjódverjar:
Hefja fram-
leiðslu á Volks
wagenvélum
Wolfsburg, Vestur-
Þýskalandi-Reuter
■ Vestur-þýska Volk-
swagen-fyrirtækið hefur
gert samning við Austur-
Þjóðverja um framleiðslu
á 100.000 Volkswagenvél-
Aðalframkvæmdastjóri
Wolkswagenfyrirtækisins
flaug í gær til Austur-Berl-
ínar til að ganga frá áætl-
unum um framleiðslu vél-
anna. Samkomulagið um
vélaframleiðsluna var
upphaflega undirritað í
febrúar síðastliðnum.
Lauslega áætlað er samn-
ingur þessi metinn á um
600 milljón þýsk mörk
(meira en 6 milljarðar
ísl.kr).
Vestur-þýska stjórnin
segist vona að samningur
þessi eigi eftir að auka
viðskipti milli Austur- og
Vestur-Þýskalands og að
Austur-Þjóðverjar muni
flytja meira inn af tækja-
búnaði frá Vestur-Þýska-
landi á næstunni.
Bandarísku fjárlögin:
Nýtt
hallamet
framundan
Washinglon-Reuter
■ Sanikvæmt nýjustu spám
hagfræðinga bandarísku
stjórnarinnar gæti hallinn á
fjárlögum Bandaríkjamanna
hæglega orðið meira en 190
milljarðar dollarar á nýbyrj-
uðu fjárlagaári í 172.4 millj-
arða eins og áður hafði verið
spáð.
Bandaríska fjárlagaárið
hefst 1. október. A seinustu
fjárlögum var hallinn um 175
milljarðar dollara. í kosninga-
baráttu sinni spáði Reagan
því að ör hagvöxtur í Banda-
ríkjunum yrði til þess að
minnka fjárlagahallann. En
hagvöxturinn hefur ekki orðið
eins ör og hann spáði þannig
að nú er því spáð að fjárlaga-
hallinn aukist.
. BÍLASMIÐJAN w
KYNDXX.L
Stórhöfða 1 8 II
Bílamálun
Bílaréttingar
Vönduð vinna
SÍMI35051
KVÖLDSÍMI
35256
DESOUTTER LOFTVERKFÆRI DIT2LER BÍLALAKK,
BINKS SPRAUTUKÖNNUR
Bíleigendur athugið
Við höfum margra ára reynslu i viðgerðum á mikið löskuðum
bifreiðum, þess vegna notum við eingöngu Guy Chart réttingar og
mælitæki. Við bjóðum viðskiptavinum okkar staðgreiðsluafslátt á
allri tækjavinnu, greiðslukjör og föst verðtilboð á allri vinnu. A
málningarverkstæði okkar notum við Ditzler málningarefni sem er'
amerískt efni og sú staðreynd að General Motors og margar aðrar
amerískar bílaverksmiður nota Ditzier efni tryggir fagmönnum
árangur. Þar ætlum við líka að koma viðskiptavinum á óvart.
Við sækjum bílinn og sendum eiganda að kostnaðarlausu.
Eigum á lager Desoutter loftverkfæri, amerískar
Binks sprautukönnur og varahluti í þær og Ditzler málningarefni
stórhöfði
funahofoi
hYR JARHOFOI
KYNDU.X.
Stórhöfða 18[
SHIÐSHÖFOI
hamarshofði
OVE RGSHÖFOI
VAGNHOFÐI g.
T1
TANGARHÖFOI °
BÍLOSHOFÐI >
BIFBEIOAEFnRUTIO
Japanir semja
um hvalveiðar
Washington-Reuter
■ Bandarísk stjórnvöld hafa
gert samning við Japani þar sem
fallist er á áframhaldandi hval-
veiðar Japana fram til ársins
1987 án þess að veiðiheimildir
þeirra í bandarísku hafsvæði
verði þrengdar. f staðinn lofa
Japanir að hætta hvalveiðum
sínum frá og með árinu 1988.
Verslunarfulltrúi Bandaríkj-
anna, Malcolm Bladrige, sagð-
ist telja samkomulagið mikil-
vægt skref til að stöðva allar
hvalveiðar í heiminum. En nátt-
úruverndarmenn réðust á sam-
komulagið og sögðu að með því
væri stjórn Reagans að snúa
bakinu við verndun hvala.
Samkomulagið felur m.a. í
sér að þann 13. desember næst-
komandi munu Japanir draga til
baka mótmæli sfn vegna
ákvörðunar Alþjóðahvalveiði-
ráðsins um stöðvun hvalveiða.
Svanir í skoðunarferð
Varar Bandaríkjamenn við
að ráðast inn í Nicaragua
Munich-Reuter
■ Fyrrverandi kanslari
Vestur-Þýskalands, Willy
Brandt, hefur varað Banda-
ríkjamenn við ógnvænlegum
afleiðingum þess að ráðast
inn í Nicaragua.
í viðtali, sem Munich
kvöldblaðið birti segir
Brandt að slík árás myndi
hleypa af stað hörðu innan-
landsstríði í Nicaragua.
Sandinistar myndu halda
með lið sitt til fjalla og hefja
skæruhernað. Þar með væru
allar vonir um pólitíska lausn
á vandamálum Mið-Amer-
íku runnar út í sandinn.
Brandt sagðist vona að
Bandaríkjamenn gerðu sér
grein fyrir því hvaða áhrif
slík innrás myndi hafa, ekki
aðeins í Mið- og Suður-Amer-
íku heldur einnig í öðrum
heimshlutum.
Willy Brandt:
sig á Alster-vatni þar sem þeir halda til á
sumrin. Þess vegna eru þeir fluttir árlega í
hlýtt og gott vetrarbæli fyrir utan miðborgina
í Hamborg. Símamynd-POLFOTO
■ Róttækni Willy
Brandts, fyrrverandi kansl-
ara V-Þýskalands, hefur þótt
aukast aftur á hans efri árunt.
Hér sést hann taka þátt í
mótmælaaðgerðum friðar-
sinna í Vestur-Þýskalandi
fyrir skömmu þar sem upp-
setningu nýrra bandarískra
kjarnaflauga í Vestur-Evr-
ópu var mótmælt.
Símamynd-POLFOTO
■ Þegar vetur nálgast og ferðamannatím-
anum er lokið eru þessir svanir teknir í
skoðunarferð um heimaborg sína, Hamborg.
Borgaryfírvöld vilja ekki að svanirnir ofkæli