NT - 14.12.1984, Síða 7

NT - 14.12.1984, Síða 7
11 Af hvaða Þórarinn Eldjárn: YDD. For- lagið, Reykjavík 1984. 48 bls. ■ Menn taka líklega fyrst eftir því að Þórarinn Eldjárn hefur nú látið hefðbundna bragi víkja. Ydd er allt hátt- frjálst að „nútímasið". Þessi breyting er þó á ytra borði einungis. Þórarinn er enn sem fyrr hæðinn og orðheppinn. leikur sér að orðunum. sbr. upphaf Ijóðs sem heitir Orðiö okkar starf: Enn verðaþau ú vegimínwn orðin orðin að starfi eða i leik skrítin saga atvik í myrkri alda erindi tilsvar eða nafn allt lifandi málið sem gladdi þig m; Þetta er líklega frentur óheppilegt dæmi fyrir höfund- inn. Sem betur fer er texti hans einatt beinskeittari en hér. Engu að síður er Ydd í heild furðu geigandi bók, líkt og þetta dæmi ber vitni um. Það er eins og Þórarinn viti ekki vel til hvers hann vilji nota orð sín. Að minnsta kosti á ég bágt með að sjá „brýn erindi" í bókinni, svo að vikið sé til annarrar bókar höfundarins. Við skulum í bili gera ráð fyrir að Ydd sé millibók og skáldið eigi eftir að ná sé betur niðri næst. Landið hefur þó allténd sinn golfstraum en Itvuðastraum liöfum vér? Þannig segir í fyrsta ljóðinu. Líkt og samtíðarskáldin flest fjallar Þórarinn hér um rótslit- ið líf, sundrað og ófullnægt, allsherjar leiöindi þessa svo- kallaða nútímalífs þar sem há- vaðinn vex í réttu hlutt'aili við tómleikann innanrifja. En það sem mér finnst skorta hér er tilfinning fyrir tómleikanum. sársaukann sjálfan. Orðaleikir Þórarins eru stundum skemmtilegir, en þegar til lengdar lætur verða þeir líkir yfirbreiðslu, líkt og höfundur fleyti sér yfir vatnið í stað þess að kafa. Og skáldin eiga að kafa - ef þau ætla Ijóðuni sínum annað erindi en að skemmta lesandanum með til- fyndni. Að vísu dettur Þórar- inn sjaldan niður í klisjur, lætur þó nærri í Þjóðráði (til- einkað Þjóð Minni) Varast skaltu ffugumenn veðurfarsimperíalismans með því að taka hnattstöðuna á hverjum morgni Er þetta skáldskapur? Það held ég varla. Kannski svolítið hnyttið, ekkert fram yfir það. Texti Þórarins er jafnan vandlega unninn, og mér þóttu einatt skemmtilegust prósa- Ijóðin. Lokaskýrsla kemur á framfæri minnilegu oröi: ■ Þórarinn Eldjárn. ...mikið dái ég Adolphe Sax, manninn sem gaf okkur saxó- fóninn eða tregahornið eins og ég kysi að nefna þetta hljóðfæri nú á þessari stundu.“ Ennþá undirfurðulegra er ljóðið Ráðstefna þar sem segir frá því er skáldiö situr fyrir svörum ásamt Guðmundi Árnasýni dúllara sem „hafði meðferðis forkunnarfagran kvenvettling sem hann smeygði undir olnboga sinn áður en hann brá litlafingri í eyra. Og það verð ég að segja að mikið öfundað ég hann af þessum græjum." Þannig mætti tína til eitt og annað sem gaman er að í þessu kveri Þórarins. Hann er einatt laginn að nota gamlar tilvísanir í nýstárlegu sanrhengi, en íroní- an nær sjaldan inn að beini. eða alla leið að húðinni eins og sagt er í smellnu Ijóði unt rakvélarnar sem sækja alltaf nær og nær. í síðasta Ijóöinu er látin í Ijós vonin um að komst að sjálfum hlutunum áður en þeir verða yrkisefni „ekki táknskata kæst / þá skriplar ekki á_ henni lengur." Hér virðist mér að Þórarinn sé að vísa frá sér eins og áður þeirri symbótík sem er þó þrátt fyrir allt líftaug skáldskapar- ins, þ.e. ef skáldið getur breitt henni meö persónulegum hætti. Heföir skáldskaparins, eins og þær birtast meðal ann- ars í táknmálinu sem óðar verður staðnað, einnig í mód- ernismanum eins og dæmin sanna, - allt er það þung byrði að bcra. Skáldið vill gcta séð h'lutina ferskri sýn, og slík sjóngáfa er forsenda þess að skáldskapur rísi undir nafni. En efniviður skáldskapar er líka fólginn í bókmenntahefð- inni, táknum sem leiða út frá sér, og það er við þetta sem glíma skáldsins er háð, ekki við orðin ein. Þar skilur á nrilli þess skáldskapar sent nær inn að kviku og hins sem kemst þangað ekki. Þórarinn Eldjárn sýnir enn að hann er natinn höfundur og kann sitthvað fyrir sér í texta- nieðferö. En dálítið víöara sjónarsvið og djarfari tök rnyndu gefa Ijóðum hans þann slagkraft sem þessa bók skortir augljóslega. Gunnar Stefánsson Snjall trompetleikari ■ Síðustu tónleikar Sinfón- íuhljómsveitarinnar fyrir jól voru haldnir í Háskólabíói 6. desember; Páll P. Pálsson stjórnaði en Ásgeir Hermann Steingrímsson lék einleik á trompet. Fyrst flutti hljóm- sveitin „Orgíu" eftir Jónas Tómasson (f. 1946), sem segir þetta um verkið: „Sú orgía sem hér er flutt er ekki b jál- æðislegsvallveisla. Grískaorð- ið orgía var upphaflega notað um athöfn, leynilega helgiat- höfn, blót eða fórn." Jónas er sjálfur flautuleikari, auk þess að vera tónskáld, kennari og stjórnandi í sínu byggðarlagi. enda er flauta mikilvæg í Org- íu: Jósef Magnússon lék á alt- flautu, og stundum minnti verkið helst á Strayhorn-verk Dukes Ellington, þar sem lúðra- samhljómar skapa andrúmsloft en einsömul flauta eða klarin- etta flytur innhverft stef. Næst flutti einleikarinn Són- ötu fyrir trompet og strengi eftir Purcell. Einhvern veginn náðist ekki hinn rétti Purcell- andi þarna, og Ásgeir virtist vera ögn óstyrkur þannig að flutningurinn varð órólegri og minna markviss en æskilegt væri. En það átti allt eftir að breytast. Þá kom 85. sinfónía Haydns í B-dúr, „La Reine" eða „Drottningin". Haydn átti ennþá eftir að ná fullri stærð og semja margar sinfóníur þeg- ar hér var komið sögu, og tónlistin náði sér ekki almenni- legaástrikhjáS.Í. íþetta sinn. Nú flutti hljómsveitin og Ás- geir Steingrímsson konsert eft- ir Armeníumanninn Alexand- er Arutjunjan (f. 1920), mjög skemmtilegt og litríkt verk, sem Ásgeir spilaði afburðavel og af lygilegu öryggi. Ásgeir er Húsvíkingur og stundaði síðast trompetnám í New York en kom heim fyrir svosem ári síðan. Hann er sýnilega bæði snjall og efnilegur listamaður. og verður fróðlegt að fylgjast nreð honum í framtíðinni. Síðast og mest á efnisskránni var hið sinfóníska ljóð Richards Strauss, „Till Eulenspiegels lustige Sdtreiche" (Hrekkja- brögð Eulenspiegels), op. 28. Strauss (1864-1949) er af mörg- um talinn hafa verið meðal ■ Þegar Helga Ingólfsdóttir semballeikari hélt hljómleika sína í Kristskirkju á Listahátíð 1984 og spilaði Bach þótti öllum sem þá hefði hátíðin riálgast hámark sitt. Helga flutti þarna þrjú meiri háttar sembalverk Bachs. Forleik að frönskum hætti í h-moll, Kons- ert í ítölskum stíl í F-dúr og Franska svítu nr. IV í Es-dúr. og fór allt saman: Háleit tónlist Bachs, vandaður og glæsilegur flutningur Helgu og umhverf- ið þar sem kirkjan var, með prýðilegum hljómburði sínum og byggingarstíl sem er til þess fallin að leiða hugann til hæða. Nú hefur Fálkinn gefið út hljómplötu með leik Helgu fremstu tónsetjara fyrir hljóm- sveit, enda voru þarna í þeim tilgangi 4 flautur, 5 horn, 3 klarinettur og bassaklarinetta, 3 óbó og enskt horn, 3 fagott og kontrafagott, 3 trompetar, 3 básúnur og túba, og 4 menn r slagverki - þ.á.m. 2 hrossa- brestir - auk Patreks Neuba- uer pákuleikara. Sinfóníu- hljómsveit íslands tekst oft vel upp með „spektakel" eins og þetta, sem raunar er ákaflega Ingólfsdóttur, þar sem hún flytur þessi þrjú verk. Upptak- an var gerð í Garðakrikju á Álftanesi nú í sumar, með aðstoð upptökumeistara ríkis- útvarpsins, og hefur tekizt af- burða vel í hvívetna. Platan sannar það, sem haldið var fram í tilefni af ofangreindum tónleikum í Kristskirkju, að Helga er í fremstu röð sembal- ista, afar heilsteyptur listamað- ur og vandaður, vel menntuð og heils hugar í list sinni. Ég hygg að þessi plata gefi hvergi eftir erlendum hljómplötum viðurkenndra meistara sem flutt hafa þessi verk, hvorki að því er lýtur að leik Helgu sjálfrar eða tæknilegunr frá- gangi plötunnar. Sumir segja, áheyrilegt í sjálfu sér, og var mjög gaman á að hlýða. - Till Eulenspiegel er þýzk þjóðsagnapersóna, óforbetr- anlegur skelmir, sem mig minnir að hafi verið mynda- sögupersóna í Þjóðviljanum seint á Stalínstímabilinu, og tónaljóð þetta á að verða „pró- grammtónlist" sem lýsi ævin- týrum hans sem enduðu með hetjuna hangandi í snörunni. Sig.St. að maður eigi aldrei að reyna að endurlifa stórkostlega at- buðri ævinnar - slíkt jafnist aldrei á við endurminninguna, og verði fremur til að spilla henni. En leikur Helgu og tónlist Bach hefur sig hátt yfir slík sjónarmið, og ættu allir þeir, sem góðum semballeik unna, eða Jóhanni Sebastían Bach, að verða sér úti unr gersemi þessa. Ekki spillir lær- dómsfull umfjöllun Reynis Ax- elssonar á umslaginu, þar sem varpað er fersku ljósi hinn undarlega snilling sem samdi þau verk er óbrotgjörnust kunna að reynast allra afreka mannsandans. Sigurður Steinþórsson BACH-plata Helgu Ingólfsdóttur Föstudagur 14. desember 1984 Málsvarí frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Framkvæmdaslj.: Siguröur Skagfjörð Sigurösson Markaðsstj.: Haukur Haraldsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gislason Ritstj.: Magnús Ólafsson (ábm). Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Guðbjörnsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. — Sími: 686300, Auglýsingasími: 18300 Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, taeknideiid 686538. Lærum af gesti okkar ■ Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar gistir ísland í opinberri heimsókn í dag. í heimalandi sínu og innan Norðurlandanna þykir Palme einna litrík- astur og gáfaðastur stjórnmálamanna, en jafnframt er hann í hópi hinna umdeildustu eins og títt er um mikla stjórnmálamenn. Á alþjóðavettvangi er Palme án nokkurs vafa þekktastur og virtastur allra norr- ænna stjórnmálamanna. Pað er í tísku um þessar mundir á íslandi að níða niður skóinn af þeirri sam_félagsgerð sem þróast hefur undanfarna áratugi meðal frænda okkar á Norðurlöndunum. Boðbefar frjálshyggju og óheftrar markaðshyggju hafa fundið á Norðurlöndum forynju mikla, sem aíbúin sé að taka í land á íslandi. Pessi forynja er verferðarþjóðfélagið. Margir gildir blek- bændur hafa skipað sjálfa sig landvætti og búist til varnar eins og þeir landvættir sem tóku óblíðum tökum á móti sendingu Haraldar konungs Gormsson- ar forðum. Árás á velferðarhugsjónir granna okkar er auðvitað í innsta eðli sínu barátta gegn velferðar- ríki á íslandi. í þeim sviptivindum, sem gengið hafa yfir í stjórnmálum á vesturlöndum þau ár sem liðin eru síðan Olof Pajme tók við forustu í flokki sænskra jafnaðarmanna af Tage Erlander, hefur mikið mætt á sænska velferðarþjóðfélaginu og þeim hugmyndum sem liggja því til grundvallar. Það hefur verið skrifað upp á mörg dánarvottorð því til handa, en það lifir enn og hefur sannað að það verður ekki svo auðveldlega kveðið í kútinn. Það hcfur reynst betur í stakk búið en flest önnur þjóðfélög á vesturlöndum til að mæta erfiðleikum síðustu ára. Og það án þess að kasta fyrir_ borð þeim meginhugmyndum, sem hefur verið kjölfesta þess í áratugi. Hugmyndum um samhjálp þegnanna og félagslegt öryggi öllum til handa. Þar hefur auðmannssonurinn frá Östermalm verið hinn óþreytandi fyrirliði. Hollt er fyrir okkur íslendinga að spyrja sjálfa okkur hvort við sækjum betri fyrirmyndir til Bretlands Thatchers, þar sem stöðugur innanlandsófriður ríkir, eða Bandaríkja Ronalds Reagan. Vill nokkur í alvöru fórna hugsjón- um Norðurlanda um félagslegan jöfnuð á altari þess frelsis sem búið er íbúum fátækrahverfa Chicago, héimaborg Miltons Friedman. Á alþjóðavettvangi hafa Svíar verið ötulir tals- menn friðar og afvopnunar og jöfnuðar meðal þjóða hefms. Þeir hafa afneitað fylgispekt við risana tvo í austri og vestri. Olof Palme hefur verið í fararbroddi í þeirri baráttu. Nefnd, sem ber nafn hans, hefur unnið ítarlegar tillögur um leiðir út úr þeim vftahring ögrana og vígbúnaðarkapphlaups, sem nú ógnar öllu lífi. Hann hefur einnig barist fyrir hugmyndinni um að Norðurlönd lýsi sig kjarnorkuvopnalaust svæði. Tillaga um stuðning við þá hugmynd liggur nú fyrir Alþingi, borin fram af fólki úr öllum stjórnmála- flokkum. íslendingar eiga sænsku þjóðinni mikla skuld að gjalda. Þúsundir íslendinga hafa sótt til hennar menntun og þekkingu og flutt heim. Notið gistivin- áttu hinnar örlátu og trygglyndu sænsku þjóðar. Olof Palme er því velkominn gestur og þeim sjónarmiðum sem hann er fulltrúi fyrir vottuð virðing.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.