NT - 14.12.1984, Side 13
Vináttan við
Andrewprins varð
þeim hrein
gróðalind
■ Það er sagt að Andrew Bretaprins hafi
svipuð áhrif og Midas kóngur, sem hafði þá
náttúru að allt sem hann snerti varð að gulli.
A.m.k. er þetta sagt eiga við um þær
stúlkur, sem Andrew hefur átt vingott við,
þær hafi óðar orðið eftirsótt vinnuafl og hafi
nánast getað verðlagt vinnu sína sjálfar.
Katie Rabett er ein þessara stúlkna. Hún
hafði reynt að hasla sér völl sem fyrirsæta
með heldur takmörkuðum árangri, áður en
það kvisaðist, að hún hefði haldið upp á 24
ára afmæli prinsins heima hjá sér. Þá þýddi
ekki lengur að bjóða henni 200 sterlings-
pund fyrir að sitja fyrir hjá ljósmyndara á
Föstudagur 14. desember 1984 13
■ Koo Stark er nu bum að taka ser stöðu á bak við myndavélina
og þykir pluma sig vel.
leynileg ástkona prínsins, en
hún hefur ekki enn gert sér
neina peninga úr því.
■ Andrcw príns fær ekki mik-
inn frið fyrir fréttasnápum
og Ijósmyndurum. Hann dett-
ur stundum úr náðinni hjá
mömmu sinni þegar upp kemst
um strákinn Tuma, en vin-
stúlkurnar njóta góðs af.
eftir?ð"það snurrV?h*kkaðiíla
einhvern fimaP|la<.,*S uf að *ún i
um. ma hafa snætí med pr
sundbol. Nú er ekki mir.nst á minna en
8.500 sterlingspund og er giskað á að
árslaunin hennar séu komin upp í 100.000
pund. Og frægð hennar hefur komið fleirum
til góða. Sagt er að fyrrverandi kærasti
hennar, skoski dansarinn Alan Curry, hafi
þegið 15.000 sterlingspund fyrir að segja
satt og rétt frá þeim þrem árum, sem þau
áttu samleið!
Katie neitar þó að nokkuð sé alvarlegra
en vinátta á milli hennar og prinsins og segja
sumir það örugga vísbendingu um að hún sé
bara að hylma yfir ástarævintýri prinsins og
Clare Park, sem hefur ekki haft annað upp
úr krafsinu enn sem komið er en orðróminn
einan.
Koo Stark er frægasta dæmið um hvað má
hafa gott upp úr því að umgangast prinsinn.
Það þótti augljóst í upphafi að fortíð
hennar, en hún hafði í æsku leikið í
klámmynd, yrði til þess að hún fengi ekki
prinsinn sinn. En sérfræðingar í að verð-
leggja endurminningar þeirra, sem frá ein-
hverju hafa að segja, álíta að hún þyrfti ekki
að láta sér nægja minna en 250.000 pund, ef
hún fengist til að skrifa þær. En Koo þegir.
Að vísu hefur hún fengist til að koma fram
í sjónvarpsviðtali í Ástralíu og þegið að
launum 30.000 pund, en þar stóð hún af sér
allar árásir spyrla, sem vildu fræðast um
einkalíf prinsins. Að ástarævintýrinu loknu
hefur hún hins vegar komið sér upp nýju
starfi í óbeinu framhaldi af látunum í
kringum hana og prinsinn. Hún fékk nefni-
lega óþyrmilega að kenna á forvitni frétta-
Ijósmyndara á þeim tíma og fannst nú alveg
tilvalið að hagnýta sér þá reynslu og slást í
hóp með þeim. Hún hefur fengið hrós fyrir
myndir sínar og þykir efnileg á því sviði,
sem er kannski eins gott, því að ekki virtist
bíða hennar mikill frami á kvikmyndatjald-
inu. A.m.k. tókst henni ekki að krækja sér
í hlutverk í James Bond-myndinni Octop-
ussy.
Það tókst hins vegar enn einni stúlku, sem
orðuð hefur verið við prinsinn, fegurðar-
drottningunni Carolyn Seaward, sem hlotið
hefur titilinn Ungfrú Bretland. Að vísu
segir prinsinn aðspurður, að hann rámi ekki
í að hafa hitt ungfrúna nema tvisvar, en eftir
að kvisaðist út að hún myndi hafa snætt með
honum við rómantískt kertaljós, hefur
verðskrá hennar í fyrirsætustarfi snarhækk-
að.
Og þá má ekki gleyma Vicki Hodge, 37
ára gamalli konu, sem gerði sér gróðamögu-
leikana strax ljósa, þegar hún hitti prinsinn
í fríi á Barbados í kjölfar Falklandseyja -
stríðsins. Hún kom því svo fyrir að hún fór
að synda í sjónum með prinsinum, sem
skemmti sér svo vel að hann sá ástæðu til að
fara úr sundskýlunni og veifa henni í
kringum sig. Undarlegt nokk reyndust
Ijósmyndarar vera á sveimi í grenndinni, þó
að prinsinum væri ókunnugt um það, og von
bráðar voru myndirnar á leið á markað í
Bretlandi. Sagt er að frökenin hafi fengið
35.000 pund fyrir viðvikið.