NT - 10.01.1985, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 10. janúar 1985
Falleg, skapgóð
■ Lindu Evans dá jafnt kon-
ursem karlar,-og þaðeru víst
fáar leikkonur sem geta státað
af því, en þetta kemur fram í
blaðagrein og skoðanakönnun
sem breskt blað gerði í haust.
Linda Evans hefur orðið
afar vinsæl í hlutverki sínu sem
Krystle í Dynasty, og þessi
sjónvarpsþáttur er sagður eiga
þeirri persónu mikið að þakka
vinsaHdir sínar. - Þó sumir
segi, að Joan Collins sem hin
viðsjála Alexis sé ekki síður í
uppáhaldi hjá sjónvarpsáhorf
endum Dynasty-þáttanna.
Nú er Linda orðin 41 árs,
mannlaus og barnlaus. Hér á
árum áður var hún kona Johns
Derek leikstjóra, en svo varð
hann ástfanginn af Bo og fékk
skilnað frá Lindu og giftist
henni. Bo Derek þykir mjög
lík Lindu, en hún er árutugum
yngri, og John Derek lyfti
henni í sæti fremstu kynbomba
í heimi.
Það þykir lýsa skapgerð
Lindu Evans vel, að hún hefur
alltaf verið hin þægilegasta við
Bo og þær eru sagðar vinkonur
nú orðið.
Fyrir eins og tveimur árum
sást Linda alltaf með George
Santo Pietro veitingahúsaeig-
anda og voru þau farin að búa
saman og allir bjuggust við
brúðkaupi. Þó fór svo að sam-
band þeirra slitnaði áður en að
segja aðdáendur leikkonunnar
til brúðkaups kæmi. Nú hafa Ýmsar umsagnir um
þau tekið saman á ný ogsegjast Evans:
vinir þeirra búast við að þau John Tayíor í Duran C
gangi í það heilaga áður en hljömsveitinni segir: H
langt líður. Linda er sögð hafa dásamlcg og ég reyni að
áhuga á að eignast barn „áður aldrei af Dynasty-þætti í
en það verður of seint", cins '
og haft er eftir henni, og í sama
viðtali sagði hún: „Hvenær
sem er myndi ég taka fjöl-
skyldulíf fram yfir leikferil,
þ.e.a.s. ef ég ætti mína eigin
fjölskyldu...".
Á myndum má sjá að Linda
Evans hefur mikið breyst síðan
hún fór að leika í Dynasty. Þar
eru leikkonurnarsífellt ílúxus-
fötum, og það hefur greinlega
orðið svo, að Linda virðist
kunna betur við fínu fötin en
þessi þægilegu sem hún var í
hér áður fyrr. Nú er hún ekki
iengur í gallabuxum og bóm-
ullarbol - heldur í samfesting
úr silki og sérsaumuðum
íþróttabúningum úr besta efni.
„Föt geta auðvitað líka verið
þægileg, þó þau séu fín“, eins
og hún segir sjálf.
■ Carrington-hjónin í Dynasty
sportklædd úti í náttúmnni.
■ Linda Evans sést nú orð-
ið sjaldan í svona „galla-
jakka“, því jafnvel æfinga-
gallarnir hennar eru sér-
saumaðir úr fínum efnum.
■ Þau George Santo Pietro
og Linda Evans sjást hér á
mynd, sem tekin var fyrir
tvcimur árum, þegar allir
bjuggust við að þau væru að
ganga í það heilaga, - en það
brást þá. Nú hafa þau tekið
saman á ný og er beðið eftir
brúðkaupi.
■ í Dynasty-þáttunum er
Linda alltaf klædd í skart-
klæði og með glampandi
skartgripi og hún virðist
kunna því hið besta.