NT - 10.01.1985, Blaðsíða 23

NT - 10.01.1985, Blaðsíða 23
Elkjær kjörinn ■ Preben Elkjær-Lar- sen var á dögunum kos- inn knattspyrnumaður ársins hjá Dönum. Elkjær, sem er 27 ára og spilar nú með Verona á Ítalíu, skoraði mikið fyrir Dani í Evrópukeppninni sem og á öðrum vígstöð- um. Hann hefur gert alls 27 mörk í 46 leikjum fyrir danska landsliðið. Skíðastökk: Norðmaðurinn sigraði ■ Norðmaöurinn, Ro- ger Ruud, sigraði í Skíðastökki í heimsbikar- keppninni. Xéppt V2r ! Cortina D’Ampezzo á 70 m palli. Næstur honum í röðinni var annar Norð- maður, Halvar Persson, og þriðji Andreas Bauer frá V-Þýskalandi. Ann- ars var röð efstu manna þessi: Roger Ruud Noregi 206,6 stig Halvar Persson Noregi 206,4 stig Andreas Bauer V-Þýsk. 205,7 stig Reed Zuhlke Bandar. 204,6 stig Mike Holland Bandar. 204 stig. Staða efstu manna í stiga- keppni heimsbikarsins er nú þessi: Andreas Felder Austurr. 115 stig Jari Puikkonen Finnl. 84 stig Ernst Vettori Austurr. 82 stig Matti Nykaenen Finnl. 79 stig Jens Weissflog A-Þýsk. 69 stig Urvalsdeildin í kvöld: ■ Einn leikur verður leikinn í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld. ÍS og KR leika í íþróttahúsi Kennaraháskólans kl. 20.15. Leikur þessi er einn þeirra sem frestað var vegna farar landsliðs- ins til Noregs á dögunum en hann átti að leika 3. janúar. Meistaramót íslands í stökkum án atrennu ■ Meistaramót íslands í stökkum án atrennu verður haldið í íþrótta- húsinu á Selfossi laugar- daginn 26. janúar og hefst klukkan 14. Þátttakend- ur skrái sig hjá HSK box 77, 800 Selfossi, eða í síma 99-1189 í síðasta Iagi fimmtudaginn 24. janúar. Þátttökugjald á grein er 100.- Pólski gullverðlaunahaf- inn í stangarstökki á ÓL í Moskvu árið 1980, Wladysl- aw Kozakiewicz, hefur verið settur í keppnisbann til 28. febrúar af pólsku íþrótta- stjórninni. Astæðan ku vera sú að kappinn hefur farið á mót erlendis án þess að fá farar- leyfi heimanfrá til þess. Óneitanlega harðir kostir fyrir þennan keppnisglaða stangarstökkvara. Grand Prix keppnin í tennis: Einvígi hinna stóru ■ Grand Prix meistarakeppnin í tennis byrjaði í gær í Madison Square Garden í New York í Bandaríkjunum. Keppendur eru 12 bestu tennismenn í heiminum í dag. Þar af eru 6 Bandaríkjamenn og 4 Svíar. Keppnin er því einskonar einvígi númer tvö á milli Bandaríkjamanna og Svía, en Svíar sigruðu eins og kunnugt er í Davis-Cup í desember. Fjórir þeir bestu sitja hjá í fyrstu umferð, þ.e. McEnroe, Connors, Lendl og Wilander. í „undankeppninni" voru tveir leikir í gær. Anders Jar- ryd frá Svíþjóð sigraði landa Enskir punktar: Irwin veitir skopverðlaun ■ Marklrwinereinnafþeim sem skrifar jafnt og þétt í enska knattspyrnutímaritið Shoot. Hann hefur þar eigin dálk sem kallaður er „Irwin at large“. Þar segir hann ýmsar skondnar og ýktar sögur af knattspyrnumönnum og knatt- spyrnuleikjum. I síðasta jóla- blaði þá brá Irwin enn á létta strengi og veitt nokkrum leik- mönnum og þjálfurum viður- kenningu fyrir eitt og annað. Hér á eftir kemur hluti listans og er hann færður í íslenskt mál: Hróa hattar verðlaunin: Til nýjustu stjörnunnar hjá Co- ventry, Cyrille Regis - fyrir að fara þangað sem engin stjarna hefur áður farið, Coventry. Houdini verðlaunin: Til Ricky Hill hjá Luton fyrir að hverfa sporlaust af knattspyrnusvið- inu. Robert Maxwell’s verðlaunin: Til Ron Atkinson, fram- kvæmdastjóra Manchester United, fyrir að sanna að pen-1 ingar eru ekki allt. Þess má I geta að Robert Maxwell er landsfrægur breskur auðmaður sem á félagið Oxford Utd (og hefur gert það að því sem það er) og fleiri félög. Gullna hanskann: Til Mark Wright hjá Southampton fyrir að halda út heila lotu í hnefa- leikum við þungaviktarmann- inn Lawrie McMenemy... sinn Henrik Sundström 6-4 og 6-1. Þá sigraði Johan Kriek frá Bandaríkjunum Aaron Krick- stein landa sinn, 7-5 og 6-3. Jarryd mun mæta McEnroe en Kriek leikur á móti Wi- lander. Þess má geta að Krick- stein er yngsti maðurinn sem tekið hefur þátt í þessari keppni, aðeins 18 ára gamall. Tékkneskur sundmaður yfir múrinn ■ Hinn tvítugi landsliðs- maður Tékka í sundi, Onders Krenek, tók áhætt- una og strauk er félagslið hans, Bohemians Prag, var í keppnisferð í Vestur- Þýskalandi. Nokkrum dög- um seinna birtist hann hjá lögregiunni í Reutlingen og bað um hæli. Um leið sagði hann lögreglunni að hann vildi tlytjast vestur um haf, til Bandaríkjanna. Skip Sambandsins munu terma til íslands á naastunni sem hér s^: sem her segir: Hull/Goole: Dísarfell .......... 11/1 Dísarfell ...........21/1 Dísarfell ............ 4/2 Rotterdam: Dísarfell ...........22/1 Dísarfell ............ 5/2 Antwerpen: Dísarfell ...........23/1 Dísarfell ............ 6/2 Hamborg: Dísarfell ...........25/1 Dísarfell ............ 8/2 Helsinki: Hvassafell............ 18/1 LúbGCk: Arnarfell .......... 14/1 Hvassafell...........21/1 Falkenberg: Arnarfell ...........15/1 Larvik: Jan................. 14/1 Jan..................28/1 Jan.................. 11/2 Gautaborg: Jan.................. 15/1 Jan ..................29/1 Jan ..............•.. 12/2 Kaupmannahöfn: Jan..................16/1 Jan .................30/1 Jan ................. 13/2 Svendborg: Jan ................ 17/1 Jan...................31/1 Jan ................. 14/2 Aarhus: Jan ................ 17/1 Jan..................31/1 Jan...................14/2 Gloucester, Mass.: Skaftafell...........31/1 Jökulfell............. 8/2 Halifax, Canada: Skaftafell...........24/1 Jökulfell............. 9/2 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshusmu Pósth 180 121 Reykjavik Simi 28200 Telex 2101 „Áhugamennirnir“: Gross ekki á flæðiskeri ■ Vestur-þýski sundkapp- inn, Michael Gross, sem er sá besti í heiminum þessa stundina, er ekki látinn svelta. Nú hefur hann fengið 50.000 þýsk mörk frá „þýsku íþróttahjálpinni." Gross fékk 15.000 mörk fyrir hverja gullmedalíu sem hann vann til á Ólympíu- leikunum í Los Angeles í sumar og 10.000 fyrir hvert silfur. Aðrir Ól-verðlauna- hafar, þýskir, voru á sama taxta, sama hvort var í Los Angeles eða Sarajevo þar sem vetrarólympíuleikarnir fóru fram. Á myndinni hér að ofan má sjá Gross skála við einn ráðamanninn í hófi þar sem þessir „styrkir" voru veittir. Garðabær - Grindavík Umboðsmenn vantar fyrir NT í Grindavík, Hveragerði og Garða- bæ. Upplýsingar gefur dreifingarstjóri (Kjartan Ásmundsson) í síma 686300.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.