NT - 10.01.1985, Síða 16
Fimmtudagur 10. janúar 1985 16
Sj ónva rp
■ Ástráður Sigursteindórs-
son heldur áfram lestri þýðing-
ar sinnar á frásöguþáttum af
kristniboðum í dag.
(NT-mynd: Ari)
Kristniboðinn sem barðist fyrir
réttindum blökkumanna í S-Afríku
■ Ástráður Sigursteindórs-
son heldur áfram lestri þýðing-
ar sinnar á þáttum af kristni-
boðum um víða veröld eftir
Clarence Hall í dag kl.i4.
Þátturinn í dag er sá sjöundi í
röðinni og er þar sagt frá bar-
áttu Trevors Huddleston við
kynþáttavandamál í Suður-
Afríku. Við báðum Ástráð að
segja okkur örlítið frá höfundi
þáttanna og þeim manni, sem
þátturinn í dag fjallar um.
„Petta er þýðing á bók eftir
Clarence Hall sem hann skrif-
aði um kristniboða um víða
veröld. Hall var einn af aðal-
ritstjórum Reader's Digest um
langt skeið og skrifaði þá ýmis-
legt í ritið. Meðal annars tók
hann sér ferð á hendur á fjöl-
margar kristniboðsstöðvar
víðs vegar um heim til þess að
kynnast starfi kristniboðanna
og að því loknu skrifaði hann
þennan greinaflokk sem birtist
í þessari bók. Þar lýsir Hall
kristniboðum frá ýmsum
kirkjudeildum og starfi þeirra
svo gott sem í öllum álfum
heims. Hann lýsir því af eigin
sjón og reynd hvernig kristni-
boðarnir sjálfir verkuðu á
hann, hvaða áhrif það hafði
meðal fólksins sem þeir störf-
uðu við og hvernig þeir börðust
fyrir framförum hjá fólkinu
gegn misrétti, kúgun, hjátrú
og fáfræði," segir Ástráður.
Um Trevor Huddleston
hafði Ástráður það að segja,
að hann sé mjög þekktur mað-
ur sem á sínum tíma lét mjög
mikið til sín taka í baráttu fyrir
jafnrétti blökkumanna í Suð-
ur-Afríku, en aðskilnaðar-
stefna kynþáttanna, sem
stjórnin fylgir enn staðfastlega,
er einmitt ofarlega á baugi
þessa dagana, eins og svo oft
áður. Má þar nefna friðarverð-
launaveitingu Nóbels til suð-
ur-afríkanska blökkubiskups-
ins Tutu og heimsókn banda-
ríska öldungadeildarþing-
mannsins Edward Kennedy
þangað í boði Tutu nýverið.
■ Leópold Sveinsson kvnnir
nýjustu dægurlögin í Dægur-
flugum. Um helgar heldur
hann uppi fjörinu á Skansinum
í Vestmannaeyjum.
Utvarp kl. 20.30:
Hver samdi lögin
Hvað er svo glatt
og nú er sumar?
■ Hermanni Ragnari Stefánssyni, stjórnanda þáttarins Ég man þá tíð, berst meira af óskum um
lög í þáttinn en hann getur látið rætast, enda hefur komið í Ijós að hlustendum fínnst þessi þáttur
fylla upp í ákveðið tómarúm, sem hefur verið á tónlistarvali á útvarpsdagskrá. Það hafa því komið
fram eindregnar óskir um að þáttunum verði fjölgað.
Ég man þá tíð tveggja ára
■ í kvöld kl. 20.30 verður
endurtekinn þáttur í útvarpi,
sem áður var þar á dagskrá 29.
des. s.l. Þátturinn er nefndur
Weyse, gamall kunningi ís-
lendinga og það er Anna María
Þórisdóttir sem licfur veg og
vanda af honum.
Þar sem margir höfðu öðrum
hnöppum að hneppa, þegar
þátturinn var sendur út í fyrra
sinnið, er ekki úr vegi að
benda fólki á að hlusta á í
kvöld, því að það gildir sem
felst í nafni þáttarins, að
Weyse er garnall kunningi ís-
lendinga. Við báðurn Onnu
Maríu að segja okkur aðeins
■ Anna María Þórisdóttir
fræðir okkur um þýsk-danska
tónskáldið Weyse, en lög hans
hafa orðið ástsæl meðal Islend-
inga.
(NT-mynd: Sverrir)
frá honum og lögum hans.
„Við höfun aðallega kvnnst
Weyse úr íslensku söngvasafni
(Fjárlögunum), sem fyrst kom
út 1915, og öðrum íslenskum
nótnabókum. Þar finnunt við
lög hans eins og Hvað er svo
glatt, Nú er sumar og nýárs-
sálminn Hvað boðar nýárs
blessuð sól, lög, sem allir ís-
lendingar þekkja. íslendingar
hafa því sungið lög Weyse í
a.m.k. 70 ár, en það er ekki
þar með sagt að allir viti hver
samdi lögin," segir Anna Mar-
ía.
Christoph Ernst Friedrich
Weyse fæddist í Þýskalandi
1774, en fluttist ungur til Kaup-
mannahafnar og dvaldi þar
upp frá því, þar sem hann
gerðist organisti við Frúar-
kirkju. Hann var saintíða
mörgum frægum listamönnum
og andans mönnunt í Kaup-
mannahöfn, s.s. Bertil Thor-
valdsen, H.C. Andersen,
Öhlenschláger o.fl. og samdi
t.d. lög við textaeftirÖhlenslá-
ger. Sagt verður frá samskipt-
um Weyse og þessara manna í
þættinum.
Anna María sagði okkur frá
því, að á árinu 1970 hefði fræg
dönsk söngkona, Lone
Koppel, komið hingað til lands
og tekið þátt í flutningi Söng-
sveitarinnar Fílharmóníu á
Missa Solemnis eftir Beetho-
ven. Þetta þótti mikill tónlist-
arviðburður á þessum tíma og
er mörgum í fersku minni
ennþá. I þættinum leikur Anna
María einmitt lag eftir Weyse
í flutningi Lone Koppel.
■ Þáttur Hermanns Ragnars
Stefánssonar Ég man þá tíð er
á dagskrá útvarps kl. 11 í dag,
en þátturinn á tveggja ára
afmæli í dag. Það var einmitt
mánudaginn 10. janúar 1983
sem fyrsti þátturinn var sendur
út, en fljótlega bættust fimmtu-
dagsþættirnir við, svo að nú er
Ég man þá tíð sent út tvisvar í
viku allan ársins hring.
Hermann Ragnar segir þátt-
inn upphaflega hafa verið ætl-
aðan eldri borgurum, en hann
segist löngu vera búinn að
komast að því, og hafa lúmskt
gaman af, að það er ekki síður
fóík á miðjum aldri, sem hefur
ánægju af að hlusta á hann.
Hermanni berast ókjör af
bréfum, símhringingum og er
oft stöðvaður á á förnum vegi,
þar sem fólk ber upp óskir um
lög í þáttinn, en því miður er
langt frá því að hann geti
annað eftirspurninni, það er
alltaf langur biðtími.
Það vakti undrun blm. að
eitt sinn er hann hlustaði á
þáttinn var beðið um Frjálst er
í fjallasal, og ekki hafði tekist
að finna gamla góða lagið eftir
Kuhlau, sem allir þekkja, og
var í staðinn spilað annað lag.
Hermann Ragnar sagði það
því miður algengt að ekki væri
hægt að hafa upp á upptökum
af gömlum og vinsælum lögum
og ættjarðarlögum, sem allir
hefðu sungið fyrir nokkrum
áratugum. EfÞjóðkórinnhefði
ekki sungið lagið inn á plötu,
eða Liljukórinn, sem gerði
smáskurk í þessu, væru nánast
engar upptökur til.
Eitt segir Hermann Ragnar
vera mjög sérstakt fyrir þenn-
an óskalagaþátt. Það eru yfir-
leitt ekki margir sem biðja um
sama lagið. Flestir hlustendur
þáttarins virðast eiga sitt eigið
eftirlætislag bara út af fyrir sig.
Það verður ekki mikil við-
höfn í tilefni dagsins í þættin-
um í dag. Þó býst Hermann
Ragnar við að spila eitt vinsæl-
asta lagið, sem hvað oftast
hefur verið beðið um á undan-
förnum tveim árum. Það er
lagið Dagný eftir Sigfús Hall-
dórsson, en það hefur geysi-
mikið verið beðið um lög hans
í þættinum
Rás2kl. 14.
Nýtt topp-
lag með Wham
í Dægur-
flugum í dag?
■ Á rás 2 í dag kl. 14 verður
Leópold Sveinsson með þátt
sinn Dægurflugur.
í þættinum er það yfirleitt
stefnan að leika nýjustu lögin,
en þó brá svo við þegar við
ræddum síðast við Leópold í
síðustu viku síðasta árs, að
hann ætlaði ekki að spila eitt
einasta nýtt lag í þættinum.
Úr þessu ætlar hann að bæta
í dag, því að nú stefnir hann að
þvi að spila lög, sem komu út
í desember en hafa lítið sem
ekkert heyrst enn sem komið
er. Plötuútgáfa á nýju ári er af
skiljanlegum ástæðum ekki
komin í gang ennþá.
Meðal þess sem má heyra í
þættinum í dag er nýtt lag með
þeirri geysivinsælu hljómsveit
Wham, sem Leópold segir lík-
legt til að nái vinsældum og
jafnvel að komast á toppinn,
enda eru áðdáendur hljóm-
sveitarinnar tryggir henni. Þá
spilar hann líka lag með Ray
Parker jr., sem það sama gildir
um. Sitthvað fleira forvitnilegt
verður í þættinum í dag, en
Leópold hafði það ekki alveg
handbært, þegar við ræddum
við hann í fyrradag.
Leópold hefur sína aðalat-
vinnu á auglýsingastofu, en
bregður sér um helgar til Vest-
mannaeyja, þar sem hann er
plötusnúður á skemmtistaðn-
um Skansinum. Áður hafði
hann snúið plötum á ýmsum
helstu diskótekum Reykjavík-
ur í 3 ár, en nú hefur hann
haldið tryggð við Vestmanna-
eyinga í rúmt ár.
T
Fimmtudagur
10. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degl. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurð-
ar G. Tómassonar frá kvöldinu
áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð - Sigurjón
Heiðarsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Elsku barn“ Andrés Indriðason
les sögu sína (4).
9.20 Leikflml. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liönum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 „Það sklptlr ekkl rnáll", smá-
saga eftir Marianne Larsen Krist-
ín Bjarnadóttir les þýðingu sína.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttlr. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Heiðdis
Norðfjörð. (RÚVAK).
13.30 Tónlelkar
14.00 „Þættir af kristniboðum um
vfða veröld" eftlr Clarence Hall
Kynþáttavandamál í Suður-Afríku.
Barátta Trevors Huddleston. Ást-
ráður Sigursteindórsson les þýð-
ingu sína (7).
14.30 Á frfvaktinni Sigrún Sigurðar-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
(RÚVAK).
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónlelkar: Tónlist
eftlr Wolfgang Amadeuz Mozart
a. Divertimento f F-dúr, K. 253.
Hollenska blásarasveitin leikur;
Edo de Waart stjórnar. b. Kvintett
í A-dúr fyrir klarinettu og strengja-
kvartett, K. 581. Karl Leister og
einleikarar úr Fflharmóníusveit
Berlínar leika.
17.10 Sfðdeglsútvarp Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 Hvfskur Umsjón: Hörður Sig-
urðarson.
20.30 Weyse, gamall kunningi ís-.
lendlnga Endurtekinn þáttur önnu
Maríu Þórisdóttur frá 29. des. sl.
um Iff og starf þýsk-danska tón-
skáldsins Weyse og leikin nokkur
lög eftir hann.
21.10 Samleikur f útvarpssal Jón
Aðalgeir Þorgeirsson og Guðný
Ásgeirsdóttir leika saman á klarin-
ettu og píanó. a. Dans-prelúdíur
eftir Witold Lutoslawski. b. Klarin-
ettusónata eftir Francis Poulenc.
21.40 „Strfðlð vlð otnlnn", smá-
saga eftlr Ólaf Jóhann Slgurðs-
son Knútur R. Magnússon les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Flmmtudagsumræðan
Umsjón: Jón Ormur Halldórsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
10. janúar
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Kristján Sigurjónsson og
Sigurður Sverrisson.
14.00-15.00 Dægurflugur Nýjustu
dægurlögin.
15.00-16.00 I gegnum tíðina Stjórn-
andi: Þorgeir Astvaldsson.
16.00-17.00 Bylgjur Framsækin
rokktóniist. Stjórnandi: Ásmundur
Jónsson og Árni Daníel Júlíussoa
17.00-18.00 Einu sinni áður var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962 =
Rokktímabilið. Stjórnandi: Bertram
Möller.
Hlé-
20.00-24.00 Kvöldútvarp-
Föstudagur
11. janúar
19.15 Á döfinnl Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs-
dóttir.
19.25 Krakkarnir f hverfinu 4.
Nonnl fær sér föt. Kanadískur
myndaflokkur i þrettán þáttum, um
atvik í lífi nokkurra borgarbarna.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós. Þáttur um innlend
málefni. Umsjón: Páll Magnússon.
21.10 GrínmyndasafniðSkopmynd-
ir frá árum þöglu myndanna.
21.25 Hláturinn lengir Iffið. Niundi
þáttur. Breskur myndaflokkur í
þrettán þáttum um gamansemi og
gamanleikara i fjölmiðlum fyrr og
síðar. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.55 Kaldhæðni örlaganna (L'iron-
ie du sort) Frönsk bíómynd frá
1973. Leikstjóri Edouard Molinaro.
Aðalhlutverk: Pierre Clementi,
Jacques Spiesser, Jean Desailly,
Pierre Vaneck, Hans Verner, Mar-
ie-Helen Breiliat. Myndin gerist I
síðari heimsstyrjöld og er um þrjú
ungmenni í frönsku andspyrnu-
hreyfingunni. Hún sýnir hvernig
lítil atvik ráða örlögum þeirra á
einn eða annan veg. Þýðandi Ólöf
Pétursdóttir.
23.15 Fréttir f dagskrárlok.